Hætta ekki fyrr en stóriðja í Helguvík stöðvast

Mikill áhugi var á fundi í Reykja­nesbæ um stór­iðju í Helguvík.

Þungt hljóð var í fund­ar­gestum í Stapanum í gær þar sem rætt var um mál­efni United Silicon og kís­il­verk­smiðju þess í Helguvík. Á þriðja hund­rað manns mættu á fund­inn en Andri Snær Magnason rit­höf­undur var einn þeirra sem hélt tölu á fund­inum.

Í við­tali við Frétta­blaðið segir hann að þriðj­ungur gesta á fund­inum hefði staðið upp, þegar borin var upp spurn­ing um hverjir fyndu fyrir veik­indum eftir að verk­smiðjan hóf starf­semi. Á fund­inum var sam­þykkt ályktun um að biðla til almanna­varna að grípa til aðgerða vegna þeirrar stöðu sem upp er komin í bænum. „Fólki var mikið niðri fyrir. Margir lýstu auknum veik­indum eftir að verk­smiðjan kom og aðrir bentu á að ekki væri óhætt lengur að hleypa börnum út að leika,“ segir Andri Snær í við­tali við Frétta­blaðið.

„Næsta skref er að hrinda af stað alþjóð­legri söfnun fyrir Félag and­stæð­inga stór­iðju í Helguvík,“ segir Einar Már Atlason, for­maður félags­ins, en það stóð fyrir fund­inum.

United Silicon óskaði eftir greiðslu­stöðvun 14. ágúst síð­ast­lið­inn, en áform eru uppi um að stöðva rektur kís­il­málm­verk­smiðju United Sil­icon í Helgu­vík 10. sept­em­ber næst­kom­andi til að gera umbætur á bún­aði henn­ar.

Alls hafa þrír íslenskir líf­eyr­is­sjóðir fjár­fest í United Sil­icon fyrir 2.166 millj­ónir króna. Sjóð­irnir sem um ræðir eru Festa líf­eyr­is­­sjóð­ur, Frjálsi líf­eyr­is­­sjóð­ur­­inn og Eft­ir­­launa­­sjóður fé­lags ís­­lenskra at­vinnu­flug­­manna (EFÍA).

Þá hefur Arion banki hefur fært niður 16,3 pró­sent eign­ar­hlut sinn í United Sil­icon að fullu í bókum sín­um. Bank­inn er auk þess með átta millj­arða króna úti­stand­andi við félag­ið, þar með talið lánslof­orð og ábyrgð­ir. Nið­ur­færslu­þörf á þeim lánum er enn óljós og háð fjár­hags­legri end­ur­skipu­lagn­ingu United Sil­icon.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár