Miklar breytingar orðið á íslenskum vinnumarkaði

Vís­bend­ingar eru um að stór hópur erlendra starfs­manna á íslenskum vinnu­mark­aði sé hvergi skráður.

Íslenskur vinnu­mark­aður hefur tekið miklum breyt­ingum frá hruni en aug­ljóst er að mik­ill upp­gangur er nú í þjóð­ar­bú­skapnum og þenslu­merkin sjást greini­lega. Breyt­ing­arnar sem orðið hafa á vinnu­afli á mark­aði eru miklar í sumum geirum, en minni í öðrum. Fram­leiðni vinnu­aflsins mæld­ist um 4 pró­sent í fyrra sem er langt umfram fram­leiðni­vöxt und­an­far­inna ára.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í ítar­legri grein dr. Katrínar Ólafs­dóttur, lekt­ors við Háskól­ann í Reykja­vík, í Vís­bend­ingu sem kom út í dag, en hún á sæti í pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands.

Í grein­inni rekur Katrín þær miklu breyt­ingar sem orðið hafa á vinnu­mark­aðnum. „Upp­gangur í þjóð­ar­bú­skapnum er mik­ill um þessar mundir og kenna má ýmis þenslu­merki á vinnu­mark­aði. Atvinnu­leysi er nú svipað og það var á árinu 2008 og í fyrra fluttu 4 þús­und fleiri ein­stak­lingar til lands­ins en frá því. Störfum hefur fjölgað mjög og vís­bend­ingar eru um að opin­berar tölur nái ekki utan um allan þanna fjölda starfa sem orðið hafa til í land­inu,“ segir meðal ann­ars í grein Katrínar.

Hún segir einnig lík­legt að nokkur fjöldi erlendra starfs­manna komi til lands­ins til að vinna tíma­bundið, án þess að þeir séu skráðir í þjóð­skrá. Í ljósi þess að vinnu­mark­aðs­könnun Hagstofu Íslands nái aðeins til þeirra sem eru skráðir í þjóð­skrá, þá sé lík­legt að það vanti gögn um fjölda starfs­manna. „Fjöldi erlendra þjón­ustu­fyr­ir­tækja sem starfa hér á landi fór úr 11 fyr­ir­tækjum á árinu 2016 í nálægt 50 fyr­ir­tæki í ár. Fjöldi starfs­manna­leiga hefur á sama tíma tvö­fald­ast úr 15 í nálægt 30. Starfs­manna­fjöldi þess­ara fyr­ir­tækja var sam­tals um 400 í fyrra, en er nú ríf­lega 1.500,“ segir í grein Katrínar í Vís­bend­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár