Störfum fjölgar langsamlega mest í byggingariðnaði og ferðaþjónustu

Mikill vöxtur er í hag­kerf­inu þessi miss­erin, og er fjölgun starfa lang­sam­lega mest í bygg­ing­ar­iðn­aði og ferða­þjón­ustu.

Um 60 pró­sent af nýjum störfum í hag­kerf­inu, á und­an­förnu ári, hafa verið í bygg­ing­ar­iðn­aði og ferða­þjón­ustu. Samtals fjölg­aði laun­þegum um 8.500 á und­an­förnu ári og voru um fimm þús­und af þeim í bygg­ing­ar­iðn­aði og ferða­þjón­ustu. Þetta kemur fram í tölum frá Hagstofu Íslands, sem birtar voru í dag.

Störfum í sjáv­ar­út­vegi hefur fækkað um 300.

Mikill vöxtur í ferða­þjón­ustu hefur verið helsti drif­kraftur hag­vaxtar hér á landi und­an­farin ár, en því er spáð að um 2,3 millj­ónir erlendra ferð­manna heim­sæki landið á þessu ári sam­an­borið við 1,8 millj­ónir í fyrra. „Á tólf mán­aða tíma­bili, frá maí 2016 til apríl 2017, voru að jafn­aði 17.079 launa­greið­endur á Íslandi og hafði þeim fjölgað um 790 (4,8%) frá síð­ustu 12 mán­uðum á undan. Á sama tíma­bili greiddu launa­greið­endur að með­al­tali um 182.800 ein­stak­lingum laun sem er aukn­ing um 8.500 (4,9%) sam­an­borið við 12 mán­aða tíma­bil ári fyrr. Skipt eftir atvinnu­greinum hefur laun­þegum fjölgað mikið á milli ára hjá launa­greið­endum í bygg­ing­ar­iðn­aði og ferða­þjón­ustu. Laun­þegum hefur hins vegar fækkað í sjáv­ar­út­vegi,“ segir á vef Hagstofu Íslands.

Í apríl voru 2.478 launa­greið­endur og um 11.500 laun­þegar í bygg­ing­ar­starf­semi og mann­virkja­gerð og hafði laun­þegum fjölgað um 1.600 eða um 16% sam­an­borið við apríl 2016. Sömu­leiðis voru í mars 1.614 launa­greið­endur og um 25.100 laun­þegar í ein­kenn­andi greinum ferða­þjón­ustu og hafði laun­þegum fjölgað um 3.400 eða um 16% á einu ári. Laun­þegum hefur á sama tíma fjölgað um 8.500 eða um 5%.

Hafa verður í huga að í þessum tölum eru ekki upp­lýs­ingar um ein­yrkja, að því er segir á vef Hagstofu Íslands, sem eru með rekstur á eigin kenni­tölu og greiða sjálfum sér laun, en slíkt rekstr­ar­form er algengt í bygg­ing­ar­iðn­aði, land­bún­aði, hug­verka­iðn­aði og skap­andi greinum svo dæmi séu tekin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár