Störf í byggingariðnaði úr 12 í 15 þúsund á næstu árum

Mikil fjölgun starfa er nú í bygg­ing­ar­iðn­aði og ljóst að mik­ill fjöldi starfs­manna þarf að koma til lands­ins erlendis frá til að anna eft­ir­spurn.

Vöxtur í byggingariðnaði hefur verið mikill undanfarið. Flestar spár gera ráð fyrir áframhaldandi hækkun fasteignaverðs.
Vöxtur í bygg­ing­ar­iðn­aði hefur verið mik­ill und­an­farið. Flestar spár gera ráð fyrir áfram­hald­andi hækkun fast­eigna­verðs. Mynd: Birgir Þór

Mikill vöxtur er nú í bygg­ing­ar­iðn­aði enda framundan umfangs­mikil upp­bygg­ing íbúða, hót­ela og atvinnu­hús­næðis á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á næstu árum.

Störfum í bygg­ing­ar­iðn­aði hér á landi mun fjölga um nokkur þús­und á næstu árum, gangi spár eftir. Karl Sig­urðs­son, sér­fræð­ingur hjá Vinnu­mála­stofnun, segir í sam­tali við Morg­un­blaðið í dag að nauð­syn­legt sé að leita til útlanda eftir starfs­fólki í bygg­ing­ar­iðn­aði til að mæta eft­ir­spurn­inni sem framundan er. Einnig bendir hann á að skortur sé á iðn­mennt­uðu fólki af ýmsu tagi og að aug­ljós­lega verði mikla vinnu að hafa fyrir verka­menn á næstu miss­erum.

Árni Jóhanns­son, sviðs­stjóri mann­virkja­sviðs hjá Samtökum iðn­að­ar­ins, segir í sam­tali við Morg­un­blaðið að áætlað sé að tæp­lega tólf þús­und manns starfi í bygg­ing­ar­iðn­aði og að raun­hæft sé að þeim muni fjölga um allt að þrjú þús­und á næstu árum, gangi spár um vöxt í grein­inni eftir.

Framundan er mik­ill upp­bygg­ing­ar­tími á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem mik­ill skortur er á íbúð­ar­hús­næði. Búist er við því að um níu þús­und íbúðir verði byggðar á næstu þremur árum til að mæta eft­ir­spurn, og stuðla að jafn­vægi á fast­eigna­mark­aði.

Á sama tíma er mikil eft­ir­spurn eftir hús­næði og hefur fast­eigna­verða rokið upp á síð­ustu árum. Hvergi í heim­inum hefur það hækkað hraðar en á Íslandi, en hækk­unin á síð­ustu tólf mán­uðum hefur verið rúm­lega tutt­ugu pró­sent að með­al­tali á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Flestar spár gera ráð fyrir áfram­hald­andi hækkun fast­eigna­verðs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár