Fjársvikamál gegn Björgólfi og Landsbanka í Lúxemborg fyrir dómi í París

Fyrr­ver­andi for­maður banka­ráðs Lands­bank­ans, Björgólfur Guð­munds­son, er á meðal níu manns sem er ákærður í fjársvika­máli sem er fyrir frönskum dóm­stólum. Aðal­með­ferð hófst í dag og stendur yfir til 24. maí. Allt að fimm ára fang­elsi er við brot­unum.

Björgólfur Guðmundsson var stjórnarformaður og einn aðaleiganda Landsbanka Íslands fyrir bankahrunið.
Björgólfur Guð­munds­son var stjórn­ar­for­maður og einn aðal­eig­anda Lands­banka Íslands fyrir banka­hrunið. Mynd: Skjáskot

Aðal­með­ferð í máli gegn Björgólfi Guð­munds­syni, fyrr­ver­andi for­manni banka­ráðs Lands­banka Íslands, Gunnari Thorodd­sen, fyrr­ver­andi yfir­manni Lands­bank­ans í Lúx­em­borg, og sjö öðrum ein­stak­lingum sem störf­uðu beint eða óbeint fyrir bank­ann hófst fyrir í saka­dómi í París í dag. Þeir sem eru ákærðir í mál­inu er gefið að hafa brotið gegn grein í frönskum hegn­ing­ar­lögum sem fjallar um lof­orð um áhættu­laus við­skipti.

Málið hefur verið í und­ir­bún­ingi og rann­sókn árum saman. Einn þekkt­asti rann­sókn­ar­dóm­ari Frakk­lands, Renaud Van Ruymbeke, rann­sak­aði það og skil­aði nið­ur­stöðu síðla árs 2014. Skömmu síðar voru níu ein­stak­lingar og lög­að­il­inn Lands­bank­inn í Lúx­em­borg ákærðir í mál­inu. Samkvæmt frönskum fjöl­miðlum geta brotin sem um ræðir leitt að sér allt að fimm ára fang­els­is­dóma og sekt upp á 375 þús­und evrur, um 43,4 millj­ónir króna á gengi dags­ins í dag.

Málið er mjög umfangs­mikið og er gert ráð fyrir því að aðal­með­ferð þess, sem hófst líkt og áður sagði í dag, standi til 24. maí.

Keyptu skuldabréf íslensku bankanna

Í mál­inu er Lands­bank­anum í Lúx­em­borg, Björgólfi Guð­munds­syni, Gunnari Thorodd­sen og sjö öðrum gefið að hafa blekkt um eitt hund­rað aðila á árunum 2006 til 2008. Á meðal ann­arra sem eru ákærðir eru þrír fyrr­ver­andi yfir­menn hjá Lands­bank­anum í Lúx­em­borg; Daninn Torben Bjer­regaard Jensen, Svíinn Olle Lindfors og Belginn Failly Vincent. Flestir þeir aðilar sem telja sig hafa verið blekktir af Lands­bank­anum eru elli­líf­eyr­is­þegar og 22 meint fórn­ar­lömb bank­ans hafa lát­ist frá því að málið kom upp.

Einn þeirra sem telur sig blekktan vegna þess sem kallað er í frönskum fjöl­miðlum svika­mylla Lands­bank­ans er Enrico Macias, 78 ára gam­all söngv­ari sem er þjóð­þekktur í Frakk­landi. Í máls­gögnum sem Kjarninn hefur undir höndum segir að Macias hafi verið boðið að fá 35 millj­ónir evra að lán til 20 ára og að vext­irnir á lán­inu yrðu 9,69 pró­sent. Hann átti að fá níu millj­ónir evra útgreiddar en afgangur láns­ins yrði settur í fjár­fest­ingar hjá Lands­bank­anum í Lúx­em­borg sem átti að skila nægj­an­legri ávöxtun til að borga vaxt­ar­kostn­að­inn af lán­inu hið minnsta. Macias var því í raun boðið að losa um níu millj­ónir evra, um einn millj­arð króna, í gengum þann strúktúr sem honum var boð­inn. Á móti þurfti hann hins vegar að setja raun­veru­leg veð í fast­eignum. Í máls­gögn­unum segir Macias að hann hafi verið blekktur og að Lands­bank­inn í Lúx­em­borg hafi mis­notað umboð sitt til fjár­fest­inga fyrir láns­féð með því t.d. að kaupa skulda­bréf á Lands­bank­ann á Íslandi og Kaupþing skömmu áður en bank­arnir tveir féllu haustið 2008. Þau skulda­bréf féllu gríð­ar­lega í verði við banka­hrunið, enda kröfu­hafaröð breytt og inn­lán gerð að for­gangs­kröfum. Auk þess er því haldið fram að rangar upp­lýs­ingar hafi verið gefnar um sterka stöðu Lands­banka Íslands.

Virði fasteigna blásið upp til að hækka lánin

Svika­myllan sem fólkið heldur fram að það hafi verið blekkt til að taka þátt í snýst því um að Lands­bank­inn hafi fjár­fest lánin sem það veitti fólk­inu með öðrum hætti en því hafði verið sagt og að staða bank­ans hafi verið mun verri en þeir sem seldu fólk­inu aðkomu að við­skipt­unum höfðu haldið fram.

Slitabú Lands­bank­ans í Lúx­em­borg hélt hins vegar áfram að reyna að inn­heimta lánin sem veitt voru með þessum hætti og það hefur sett þá sem þau tóku í mik­inn fjár­hags­vanda.

Lang­flestir sem tóku þátt í þessum við­skiptum Lands­bank­ans í Lúx­em­borg eru ekki jafn efnað fólk og Macias og ekki er um jafn háar upp­hæðir að ræða. Og hluti hóps­ins fékk ekki greitt út 25 pró­sent láns­ins sem var veitt heldur setti það allt í fjár­fest­ingu hjá Lands­bank­anum.

Á heima­síðu sem hóp­ur­inn heldur út, og kall­ast www.landsbankivictims .co.uk, segir að hóp­ur­inn hafi „tekið þátt í þess­ari hræði­legu svika­myllu eftir að gengið var á eftir okkur. Til­gang­ur­inn var að hagn­ast á fjár­fest­ing­unni og veita okkur áhyggju­laust ævi­kvöld og vernda börnin okkar.“ Þar segir enn fremur að virði húsa fólks­ins hafi verið blásin upp svo þau gætu fengið hærri lán gegn hærri veðum. Þannig gat Lands­bank­inn bók­fært hærri upp­hæð sem útlán og fékk hærri upp­hæð til að fjár­festa fyrir í nafni elli­líf­eyr­is­þeg­anna. „Við vorum blekkt,“ segir á heima­síð­unni.

Lögmaður Björg­ólfs Guð­munds­sonar sagði við RÚV í sept­em­ber 2014 að búið hefði verið að koma því á fram­færi við rann­sókn­ar­dóm­ar­ann í Frakk­landi að Björgólfur hefði ekki haft nein yfir­ráð yfir Lands­bank­anum í Lúx­em­borg. Hann var samt sem áður ákærður í mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hrun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár