Stjórnsýsla Seðlabankans var „ógagnsæ og óaðgengileg“

Úttekt Laga­stofn­unar segir að frá setn­ingu gjald­eyr­is­hafta og fram til sept­em­ber 2014 hafi stjórn­sýsla Seðla­bank­ans í und­an­þágu­málum verið ógagnsæ og óað­gengi­leg. Úr þessu hafi verið bætt síðar. Ekki gerðar athuga­semdir við máls­með­ferð í máli Samherja.

Már Guðmundsson er seðlabankastjóri.
Már Guð­munds­son er seðla­banka­stjóri. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Lagaum­gjörð um gjald­eyr­is­höft var óskýr og óná­kvæm í upp­hafi. Þrátt fyrir að reglur og leið­bein­ing­ar­reglur hafi orðið skýr­ari með tím­anum á ákveðnum sviðum var „fram­kvæmd Seðla­bank­ans ógagnsæ og verk­lags­reglur, for­dæmi og breytt fram­kvæmd ekki birt.“ Frá nóv­em­ber 2008 til sept­em­ber 2014, var stjórn­sýsla Seðla­bank­ans í und­an­þágu­málum ógagnsæ og óað­gengi­leg og því nán­ast úti­lokað fyrir ein­stak­linga og lög­að­ila að átta sig á því hvaða und­an­þágur voru gefnar og á hvaða for­sendum. Úr þessu var bætt með betri upp­lýs­ingum á heima­síðu Seðla­bank­ans árið 2014 og upp­færslu í febr­úar 2015.

[links]Þetta kemur fram í stjórn­sýslu­út­tekt Laga­stofn­unar Háskóla Íslands á stjórn­sýslu Seðla­bank­ans við fram­kvæmd gjald­eyr­is­eft­ir­lits, und­an­þágu­beiðna og gjald­eyr­is­rann­sókna. Þar kemur enn fremur fram að Laga­stofnun geri ekki athuga­semdir að svo stöddu um álita­efni sem upp hafa komið varð­andi með­ferð Seðla­banka Íslands á máli Samherja, þar sem hún hafi byggt „á skýrri afstöðu bank­ans og stjórn­valda á túlkun þess­ara heim­ilda.“

Úttektin var unnin í kjöl­far þess að umboðs­maður Alþingis sendi bréf til banka­ráðs Seðla­bank­ans 2. októ­ber 2015 og var skilað 26. októ­ber 2016. Bankaráð Seðla­bank­ans ákvað á fundi sínum 16. mars síð­ast­lið­inn að birta úttekt­ina með nauð­syn­legum útstrik­unum.

Til þess að öðl­ast inn­sýn í fram­kvæmd­ina skoð­aði Laga­stofnun mál sem voru til með­ferðar hjá und­an­þágu­deild og rann­sókn­ar­deild gjald­eyr­is­eft­ir­lits og voru þau valin með slembi­úr­taki. Einnig var skoðað lítið úrtak stað­fest­ing­ar­mála og mála vegna nýfjár­fest­inga sem voru til með­ferðar hjá eft­ir­lits­deild. Úttektin mið­aði fyrst og fremst að því að skoða með­ferð þess­ara mála, en í úrtak­inu voru alls 94 und­an­þágu­mál og 48 rann­sókna­mál.

[adspot]

Takmörkuð við fá mál

Í úttekt­inni kemur fram að hún sé tak­mörkuð við 94 mál af rúm­lega 6000 málum sem komu til kasta gjald­eyr­is­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands á meðan að gjald­eyr­is­höft voru við lýði. Því er úrtakið nokkuð lítið.

Í skýrslu Laga­stofn­unar segir að af úrtaks­málum megi ráða að máls­með­ferð gjald­eyr­is­eft­ir­lits sé í heild­ina vönduð og að brugð­ist hafi verið við ábend­ingum í skýrslu innri end­ur­skoð­anda um verk­lag og frá­gang gagna. „Nokkur frá­vik koma fram varð­andi máls­hraða miðað við þá tíma­fresti sem Seðla­bank­inn hefur sjálfur sett sér þar sem langur máls­með­ferð­ar­tími, allt að rúm þrjú ár er óút­skýrður, en í miklum meiri­hluta úrtaks­mála eru skýr­ingar á lengri afgreiðslu­tíma. [...]Ekki koma fram frá­vik að því er varðar jafn­ræði og sam­ræmi í úrlausnum.“

Gera ekki athugasemdir við meðferð Seðlabankans á máli Samherja

Í nið­ur­stöðu­hluta skýrslu Laga­stofn­unar segir að hún hafi skoðað gögn sem teng­ist máli útgerð­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Samherja. Strikað hefur verið yfir nafn þess en aug­ljóst er á sam­hengi text­ans að um Samherja er að ræða. Þar kemur m.a. fram að mál­inu hafi verið lokið með stjórn­valds­sekt í sept­em­ber 2016, en þá var Samherja gert að greiða 15 millj­ónir króna fyrir brot á gjald­eyr­is­lögum.

Nið­ur­staða Laga­stofn­unar er sú að svo lengi sem dóm­stólar hafa ekki skorið úr um álita­efni sem komið hafa upp við máls­með­ferð­ina „verði ekki gerðar athuga­semdir við með­ferð Seðla­bank­ans á mál­inu, sem byggð­ist á skýrri afstöðu bank­ans og stjórn­valda á túlkun þess­ara heim­ilda.“

Þá taldi Laga­stofnun það ekki falla undir verk­lýs­ingu úttekt­ar­innar að láta í ljós álit á ábyrgð banka­ráðs Seðla­bank­ans í mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár