Samherji vill fá afhentar upplýsingar úr skýrslu Lagastofnunar

Tekist er á um aðgengi að upp­lýs­ingum um rann­sóknir og aðgerðir gjald­eyr­is­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands gagn­vart Samherja.

Þorsteinn Már Baldursson, forstjóri Samherja.
Þor­steinn Már Bald­urs­son, for­stjóri Samherja. Mynd: Aðsend

Tekið er fyrir mál Samherja gegn Seðla­banka Íslands í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í dag, en fyr­ir­tækið krefst þess með áskorun fyrir dómi að fá afhentar upp­lýs­ingar úr skýrslu Laga­stofn­unar Háskóla Íslands um mál­efni sem snúa að rann­sóknum og aðgerðum Seðla­banka Íslands gagn­vart fyr­ir­tæk­inu.

Í sept­em­ber 2015 felldi emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara niður mál gegn Þor­steini Má Bald­vins­syni, for­stjóra Samherja, og þremur öðrum lyk­il­starfs­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins, sem Seðla­banki Íslands hafði vísað til emb­ætt­is­ins. Seðla­bank­inn vís­aði mál­inu til emb­ætt­is­ins á grund­velli þess að þeir hefðu brotið gegn lögum um gjald­eyr­is­mál.

Málið hófst með hús­leitum í starfs­stöð Samherja á Akureyri og í Reykja­vík, í mars 2012.

Eftir að mál­inu lauk, hefur Samherji sótt á Seðla­bank­ann og hefur Þor­steinn Már ítrekað sagt, að ein­hver verði að axla ábyrgð vegna þess­ara aðgerða gegn Samherja, þar sem fyr­ir­tækið hefði ekki brotið gegn lögum, eins og nú hefur verið stað­fest.

Þor­steinn Már hefur þegar kært tvo yfir­menn í Seðla­bank­anum vegna máls­ins til lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þau Arnór Sig­hvats­son aðstoð­ar­seðla­banka­stjóra og Ingi­björgu Guð­bjarts­dóttur, fram­kvæmda­stjóra gjald­eyr­is­eft­ir­lits bank­ans.

Byggir kæran meðal ann­ars á því að þau hafi ekki aðeins komið „rang­færsl­um, vill­andi mála­til­bún­aði og ófull­nægj­andi upp­lýs­ing­um“ til leiðar heldur einnig kom­ist undan því að koma „full­nægj­andi upp­lýs­ingum til emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara við rann­sókn í saka­máli emb­ætt­is­ins“.

Í svari Garðars Gísla­sonar, lög­manns Samherja, við fyr­ir­spurn vegna fyr­ir­tök­unnar sem er á dag­skrá dóm­stóla í dag, segir Garðar að hann hafi fundið sig knú­inn til að leita til dóm­stóla, til að nálg­ast fyrr­nefnd gögn, það er upp­lýs­ingar úr skýrslu Laga­stofn­unar Háskóla Íslands.

„Ég hef hins vegar ítrekað krafið Seðla­bank­ann um afrit af skýrsl­unni, án árang­urs. Fékk synjun um að fá hana í heild á þeim for­sendum að í henni væri að finna upp­lýs­ingar sem háðar væru þagn­ar­skyldu. Var á hinn bóg­inn ját­aður réttur til að fá aðgang að þeim hlutum skýrsl­unnar sem geymdu upp­lýs­ingar um umbjóð­anda minn (Samherja). Var mér kynnt að bank­inn myndi fara yfir skýrsl­una með það í huga – og lofað að ég skyldi fá þann útdrátt sendan. Ekkert hefur hins vegar borist – þótt liðnir séu mán­uðir. Því varð úr að ég lagði fram áskorun fyrir hér­aðs­dómi 9. febr­úar sl. á hendur Seðla­bank­anum um að leggja skýrsl­una fram í því máli sem nú er rekið fyrir dómi á hendur bank­anum til ógild­ingar á því litla sem eftir stendur af öllum þessum skelfi­lega mála­til­bún­aði Seðla­bank­ans. Það kemur í ljós á morgun [í dag] hvort og þá hvernig Seðla­bank­inn mun bregð­ast við þeirri áskorun,“ segir í Garðar í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Málið verður tekið fyrir klukkan 11:15 í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í dag. Lögmaður Seðla­banka Íslands er Steinar Þór Guð­geirs­son hrl. Þessi miss­erin er hann einnig að störfum fyrir íslenska ríkið þegar kemur að sölu á eignum Lind­ar­hvols ehf., sem tók við tug­millj­arða eignum frá slita­búum föllnu bank­anna sem þau lögðu rík­inu til eignar sem hluta af upp­gjöri þeirra. Þá greindi DV frá því í fyrra að Steinar hefði verið skip­aður eft­ir­lits­maður stjórn­valda í sölu­ferl­inu á Arion banka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár