Kærir toppa í Seðlabankanum vegna gjaldeyrismálsins

Þorsteinn Már Baldvinsson telur yfirmenn í Seðlabankanum hafa brotið á sér.
Þor­steinn Már Bald­vins­son telur yfir­menn í Seðla­bank­anum hafa brotið á sér. Mynd: Aðsend

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, hefur kært tvo yfir­menn í Seðla­bank­anum fyrir að hafa leit­ast við að koma rang­færslum til leiðar sem yrðu til þess að Þor­steinn Már yrði sak­aður um eða dæmdur fyrir refsi­verðan verknað. Morg­un­blaðið greinir frá þessu í dag.

Lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur borist kæra frá lög­manni Þor­steins Más á hendur Arnórs Sig­hvats­sonar aðstoð­ar­seðla­banka­stjóra og Ingi­bjargar Guð­bjarts­dóttur, fram­kvæmda­stjóra gjald­eyr­is­eft­ir­lits bank­ans. Þau hafi ekki aðeins komið „rang­færslum, vill­andi mála­til­bún­aði og ófull­nægj­andi upp­lýs­ingum“ til leiðar heldur einnig kom­ist undan því að koma „full­nægj­andi upp­lýs­ingum til emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara við rann­sókn í saka­máli emb­ætt­is­ins“.

Um er að ræða kæru Seðla­bank­ans á hendur Þor­steins Más til sér­staks sak­sókn­ara 9. sept­em­ber 2009 þar sem honum var gefið að sök að hafa brotið gegn gjald­eyr­is­lögum með því að van­rækja skil á erlendum gjald­eyri sem Samherji eign­að­ist á tíma­bil­inu 28. nóv­em­ber 2008 til 27. mars 2012. Arnór og Ingi­björg und­ir­rit­uðu kæruna fyrir hönd Seðla­banka Íslands.

Málið á hendur Þor­steini Má og þremur öðrum starfs­mönnum Samherja var fellt niður í sept­em­ber í fyrra. Þá hafði Þor­steinn Már marg­ít­rekað sak­leysi sitt og Samherja í mál­inu og sagt gögnin sem hann hefði séð frá Seðla­bank­anum vera á mis­skiln­ingi og van­kunn­áttu byggð.

Þor­steinn sagði í fyrra í sam­tali við Vísi að mál­ið hefði haft gríð­ar­legt tjón í ­för með­ ­sér fyrir fyr­ir­tæk­ið en rann­sóknin stóð ­yf­ir­ í á fjórða ár, eða frá því mars 2012.

Málið hófst með hús­leitum sem starfs­menn Seðla­bank­ans fram­kvæmdu í höf­uð­stöðvum Sam­herja bæð­i á Ak­ur­eyri og í Reykja­vík. Hús­leit­irnir voru fram­kvæmdar á grund­velli grun­semda um brot á lögum um gjald­eyr­is­mál.

Í fram­haldi af rann­sókn kærði Seðla­bank­inn Sam­herja og tengd fyr­ir­tæki fyrir brot gegn gjald­eyr­is­lögum til sér­staks sak­sókn­ara, en svo kom í ljós að ekki var heim­ilt sam­kvæmt lag­anna bók­staf að kæra fyr­ir­tækin fyrir brot á lög­unum sem um ræddi.

Í fram­hald­inu kærði bank­inn ein­stak­linga innan fyr­ir­tæk­is­ins, það er Þor­stein Má Bald­vins­son for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins og ­þrjá aðra lyk­il­starfs­menn fyrir að brjóta gegn gjald­eyr­is­höft­un­um, að því er segir í frétt Vís­is.

Meint brot vörð­uðu sektum eða allt að t­veggja ára afang­elsi. Við tók rann­sókn á ­mál­inu sem sem lauk ekki fyrr en á vor­mán­uðum árs­ins 2015.

Morg­un­blaðið greinir frá því að í kærunni sé bent á að meint brot starfs­manna bank­ans varði allt að 10 ára fang­elsi og refsi­auka um að minnsta kosti 2 ár ef sannað er að þeir hafi ætlað vel­ferð­ar­missi fyrir þol­anda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár