Skýrslu um gjaldeyriseftirlit Seðlabankans var skilað fyrir áramót

Seðla­banki Íslands hefur ekki viljað veita aðgang að skýrslu um stjórn­sýslu­út­tekt sem Laga­stofnun Háskóla Íslands vann á gjald­eyr­is­eft­ir­liti bank­ans fyrir banka­ráð hans. Líklegt þykir að nið­ur­staðan kalli á frek­ari rann­sókn á eft­ir­lit­inu.

Már Guðmundsson seðlabankastjóri.
Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Bankaráð Seðla­banka Íslands lét Laga­stofnun Háskóla Íslands vinna stjórn­sýslu­út­tekt á gjald­eyr­is­eft­ir­liti Seðla­bank­ans. Skýrsl­unni var skilað skömmu fyrir síð­ustu ára­mót, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Við gerð skýrsl­unnar voru skoðuð nokkur dæmi um aðila sem höfðu verið til með­ferðar hjá eft­ir­lit­inu, en alls skipta þeir sem þurftu á und­an­þágum þess að halda á hafta­ár­unum frá hruni þús­undum. Á meðal þeirra dæma sem voru skoðuð voru mál Samherja, útgerð­ar­fyr­ir­tækis sem var ítar­lega rann­sakað af gjald­eyr­is­eft­ir­lit­inu vegna gruns um brot á lögum um gjald­eyr­is­mál.

Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans benda nið­ur­stöður úttekt­ar­innar til þess að skoða þurfi fram­kvæmd gjald­eyr­is­eft­ir­lits­ins betur og hefur það verið rætt innan banka­ráðs Seðla­banka Íslands. Nýtt banka­ráð hefur hins vegar ekki verið skipað eftir síð­ustu þing­kosn­ingar og því er talið lík­legra en ella að ákvörðun um næstu skref bíði nýs banka­ráðs. Í því skrefi felst að leggja mat á nið­ur­stöður úttekt­ar­innar og ákveða hvað eigi að gera næst.

Kjarninn greindi frá því í síð­ustu viku að Samherji hefði kraf­ist þess með áskorun fyrir dómi að fá afhentar upp­lýs­ingar um mál­efni sem snúa að rann­sóknum og aðgerðum Seðla­banka Íslands gagn­vart fyr­ir­tæk­inu, sem er að finna í úttekt Laga­stofn­unar. Lögmaður Samherja hafði þá krafið Seðla­bank­ann um afrit af úttekt­inni, en án árang­urs.

Margra ára rannsókn á Samherja

Í sept­em­ber 2015 felldi emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara niður mál gegn Þor­steini Má Bald­vins­syni, for­stjóra Sam­herja, og þremur öðrum lyk­il­starfs­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins, sem Seðla­banki Íslands hafði vísað til emb­ætt­is­ins. Seðla­bank­inn vís­aði mál­inu til emb­ætt­is­ins á grund­velli þess að þeir hefðu brotið gegn lögum um gjald­eyr­is­mál.

Málið hófst með hús­leitum í starfs­stöð Sam­herja á Akur­eyri og í Reykja­vík, í mars 2012.

Eftir að mál­inu lauk, hefur Sam­herji sótt á Seðla­bank­ann og hefur Þor­steinn Már ítrekað sagt að ein­hver verði að axla ábyrgð vegna þess­ara aðgerða gegn Sam­herja, þar sem fyr­ir­tækið hefði ekki brotið gegn lög­um, eins og nú hefur verið stað­fest.

Þor­steinn Már hefur þegar kært tvo yfir­menn í Seðla­bank­anum vegna máls­ins til lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þau Arnór Sig­hvats­son aðstoð­ar­seðla­banka­stjóra og Ingi­björgu Guð­bjarts­dótt­ur, fram­kvæmda­stjóra gjald­eyr­is­eft­ir­lits bank­ans.

Byggir kæran meðal ann­ars á því að þau hafi ekki aðeins komið „rang­­færsl­um, vill­andi mála­til­­bún­­aði og ófull­nægj­andi upp­­lýs­ing­um“ til leiðar heldur einnig kom­ist undan því að koma „full­nægj­andi upp­­lýs­ingum til emb­ættis sér­­staks sak­­sókn­­ara við rann­­sókn í saka­­máli emb­ætt­is­ins“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár