Hækkun virðisaukaskatts á ferðaþjónustu sögð „reiðarslag“

Fundur á vegum Samtaka ferða­þjón­ust­unnar ályktaði harð­lega gegn fyr­ir­hug­aðri hækkun á virð­is­auka­skatti ferða­þjón­ust­unnar.

Virðisaukaskattur á ferðaþjónustu verður færður í hærra þrep, í samræmi við stefnu stjórnvalda um að fækka undanþágum í kerfinu, segir ráðherra ferðamála.
Virð­is­auka­skattur á ferða­þjón­ustu verður færður í hærra þrep, í sam­ræmi við stefnu stjórn­valda um að fækka und­an­þágum í kerf­inu, segir ráð­herra ferða­mála. Mynd: Birgir Þór Harðarson

„Verði virð­is­auka­skattur á ferða­þjón­ustu tvö­fald­aður eins og for­ystu­menn rík­is­stjórn­ar­innar hafa boðað mun það hafa í för með sér grafal­var­legar afleið­ingar fyrir fyr­ir­tæki og starfs­fólk í ferða­þjón­ustu um land allt.“

Þannig hefst ályktun fund­ars Samtaka ferða­þjón­ust­unnar frá því í gær­kvöldi, þar sem rætt var um fyr­ir­hug­aða hækkun á virð­is­auka­skatti á ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki.

Ákvörðun rík­is­stjórn­ar­innar um að færa ferða­þjón­ust­una í hærra virðis­auka­skatt­þrep er í fullu sam­ræmi við stefnu stjórn­valda um að fækka und­anþágum í virðis­auka­skatt­kerf­inu, seg­ir Þór­dís Kol­brún R. Gylfa­dótt­ir, ráð­herra ferða­mála, í við­tali við Morg­un­blaðið.

Bene­dikt Jó­hann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, mun í dag kynna fjár­mála­áætl­un rík­is­ins sem fel­ur m.a. í sér breyt­ing­ar á virðis­auka­skatt­kerf­inu.

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra greindi fyrst­ur frá áformun­um á árs­fundi Sam­taka at­vinnu­lífs­ins í gær en skömmu áður voru for­ystu­menn ferða­þjón­ust­unn­ar boð­aðir á fund Þór­dís­ar Kol­brún­ar og Bene­dikts og þeim gert grein fyr­ir fyr­ir­hugðum breyt­ing­um.

Fer ferða­þjón­ust­an úr 11 pró­senta virðis­auka­skatt­þrepi upp í það hærra, sem nú er 24 pró­sent en stend­ur til að lækka sam­hliða breyt­ing­unni niður í 22,5 pró­sent.

Vöxt­ur­inn í ferða­þjón­ustu hefur verið ævin­týri lík­astur á und­an­förnum árum, en gert er ráð fyrir að 2,3 millj­ónir manna heim­sæki landið á þessu ári en í fyrra sóttu 1,8 millj­ónir ferða­manna landið heim.

Óhætt er að segja að þessum áformum stjórn­valda hafi verið kröft­ug­lega mót­mælt á fundi í gær­kvöldi, og sam­ráðs­leysi gagn­rýnt. Segir í ályktun fund­ar­ins að alvar­leg­astar verði afleið­ing­arnar á lands­byggð­inni. „Mikil geng­is­styrk­ing og kostn­að­ar­hækk­anir stefna nú þegar afkomu fyr­ir­tækja í grein­inni í mikla hættu. Með boð­uðum skatta­hækk­unum rík­is­stjórn­ar­innar versnar sam­keppn­is­hæfni Íslands til mik­illa muna.

Ferða­þjón­ustan er grunn­stoð í íslensku atvinnu­lífi og með óyf­ir­veg­uðum aðgerðum rík­is­stjórn­ar­innar er vegið að fram­tíð­ar­mögu­leikum grein­ar­innar og íslensku efna­hags­lífi.

Ferða­þjón­usta er í eðli sínu alþjóð­leg atvinnu­grein. Íslensk ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki starfa því á alþjóð­legum mark­aði og í sam­keppni við erlenda áfanga­staði þar sem ferða­þjón­ustan er almennt í lægri þrepum virð­is­auka­skatts­kerf­is­ins. Það hefur sýnt sig að þau lönd sem eru t.a.m. með gisti­staði í efri skatt­þrepum hafa lotið í lægra haldi í sam­keppni við aðra áfanga­staði. Tillögur um hækkun á virð­is­auka­skatti vega þannig alvar­lega að sam­keppn­is­hæfni Íslands.

Þá lýsa Samtök ferða­þjón­ust­unnar yfir miklum von­brigðum með sam­ráðs­leysi stjórn­valda þegar kemur að eins umfangs­miklum breyt­ingum og fyr­ir­hug­aðar hækk­anir eru.

Fjöl­mennur félags­fundur Samtaka ferða­þjón­ust­unnar skorar á rík­is­stjórn­ina að láta af áformum um hækkun virð­is­auka­skatts á íslenska ferða­þjón­ustu,“ segir orð­rétt í ályktun fund­ar­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Atvinnulíf

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár