Óttalausa stúlkan verður áfram á Wall Street

Áhrifa­mikið lista­verk sem minnir á það að langt er í að jafn­rétti sé náð á fjár­mála­mark­aði.

Borg­ar­stjór­inn í New York, Bill De Blasio, til­kynnti um það í gær, að lista­verkið Ótta­lausa stúlkan fengi að standa í það minnsta fram í febr­úar á næsta ári, beint gegn hinu fræga nauti (Chargin Bull) á Wall Street, eftir Arturo Di Mocia.

Í til­kynn­ingu sagði De Blasio að verkið stæði gegn yfir­vald­inu og hefði skapað líf­legar og mik­il­vægar umræður um hlut­verk kynj­anna á vinnu­mark­aði í Banda­ríkj­unum, og ekki síst á fjár­mála­mark­aði.

[adspot]

Verkið er eftir Kirsten Visbal og var það unnið fyrir eigna­stýr­ing­ar­fé­lagið SSGA, sem vildi með verk­inu minna á að konur gætu tekið að sér fleiri ábyrgð­ar­störf á fjár­mála­mark­aði, ekki síst stjórn­ar­störf. Um fjórð­ungur af þrjú þús­und fyr­ir­tækjum á fjár­mála­mark­aði í Banda­ríkj­unum hefur enga konu í stjórn og í lang­flestum til­vikum eru konur í miklum minni­hluta.

Nautinu var upp­haf­lega komið fyrir 1989 og átti það að tákn styrk fólks­ins í Banda­ríkj­unum, eftir mikið fall á mörk­uðum árið 1987 með til­heyr­andi nið­ur­sveiflu í efna­hags­líf­inu. Í seinni tíð hefur það hins vegar orðið tákn­mynd ótemjunnar á Wall Street, þar sem fjár­mála­fyr­ir­tækin ráð ríkjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár