Segir fjárframlög frá útgerðum til loðnuleitar hafa skipt sköpum

Sig­ur­geir Bryngeir Krist­jáns­son, oft nefndur Binni í Vinnslu­stöð­inni, segir í aðsendri grein í Frétta­blað­inu í dag, að ell­efu útgerð­ar­fyr­ir­tæki á Íslandi sem hafa afla­heim­ildir í loðnu, hafi tryggt það að loðnan fannst og kvót­inn var sext­án­fald­aður upp í 196 þús­und tonn.

Hann segir ríki og sveit­ar­fé­lög hagn­ast lang­sam­lega mest, síðan starfs­fólk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja, og svo skipti útgerð­ar­fyr­ir­tæki og bankar afgang­inum á milli sín. „Haf­rann­sókna­stofnun bar við blank­heitum og hafði ekki efni á því að leita að loðnu í fisk­veiði­lög­sög­unni okkar. Sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra velti fyrir sér að rík­is­stjórnin veitti heilar 3-5 millj­ónir króna sér­stak­lega til loðnu­leitar. Til þeirrar fjár­veit­ingar spurð­ist ei meir.“

„Ellefu útgerð­ar­fyr­ir­tæki, sem hafa fengið úthlutað afla­heim­ildum í loðnu, ákváðu að greiða kostnað við leið­angur til loðnu­leitar og borg­uðu í jan­úar og febr­úar alls 41,5 millj­ónir króna til Haf­rann­sókna­stofn­unar og úthalds græn­lenska skips­ins Polar Amaroq sem tók þátt í verk­efn­inu.“

„Fiski­fræð­ingar full­yrtu áður að engin loðna væri í sjónum en árang­ur­inn af eft­ir­grennsl­an­inni varð sá að ráð­herra jók loðnu­kvót­ann í 196.000 tonn um miðjan febr­úar – sext­án­fald­aði kvót­ann með öðrum orðum. Flotinn var þá enn í höfn vegna sjó­manna­verk­falls.“

„Ráðu­neyti sjáv­ar­út­vegs­mála áætl­aði að verð­mæti loðnu­afl­ans, sem í hlut Íslend­inga kæmi, væri um 17 millj­arðar króna. Þegar verk­fallið loks­ins leyst­ist og flot­inn streymdi á miðin var hægt að hefj­ast handa við að inn­leysa verð­mætin sem bless­un­ar­lega voru enn innan seil­ingar og mátti ekki seinna vera.“

„Ríkið og sveit­ar­fé­lög fá lang­mest í sína hít af því sem loðnan skilar, starfs­menn sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna næst­mest og bankar og útgerð­ar­fyr­ir­tækin skipta með sér rest. Þannig er nú í hnot­skurn ævin­týrið um sautján millj­arð­ana sem „fund­ust“ í sjónum í verk­fall­inu,“ segir Sig­ur­geir Bryngeir í grein­inni.

Hann segir að miðað við skatta­spor Vinnslu­stöðv­ar­innar, sam­kvæmt útreikn­ingum KPMG, þá renni um 1,7 millj­arðar af 17 millj­arða heild­ar­verð­mætum til sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna sjálfra. „Ég gerði það að gamni mínu að „spegla“ nið­ur­stöðu útreikn­inga KPMG á skatta­spori Vinnslu­stöðv­ar­innar á 17 millj­arða verð­mæti loðnu­kvót­ans og fékk eft­ir­far­andi svör í grófum dráttum við spurn­ingu um hvar hver sneið kök­unnar lendir. Rekstr­ar­kostn­aður og þjón­usta af ýmsu tagi nemur 7 millj­örðum króna. Veru­legur hluti þeirra fjár­muna rennur í rík­is­sjóð sem t.d. skattar á launa­greiðslur þjón­ustu­fyr­ir­tækj­anna, hagnað þeirra og arð­greiðslur.“

„Í vasa launa­fólks renna 3,3 millj­arðar króna og í líf­eyr­is­sjóði renna 500 millj­ónir króna (ríkið á þá eftir að fá sinn hlut af líf­eyr­is­greiðsl­unum!).“

„Skatt­tekjur ríkis og sveit­ar­fé­laga nema tæp­lega 3,5 millj­örðum króna, þar af er hlutur sveit­ar­fé­laga um 850 millj­ónir króna.“

„Rekstr­ar­af­gangur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna er 1,7 millj­arðar króna og fer í að borga af lánum, nýfjár­fest­ingar og greiða hlut­höfum arð.“

„Gleymum svo ekki bönk­unum. Þeirra hlutur er tæp­lega einn millj­arður króna,“ segir Sig­ur­geir Bryngeir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Atvinnulíf

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár