Virði landbúnaðarins eykst milli ára og var 66 milljarðar

Land­bún­aður í land­inu hefur átt í vök að verj­ast á síð­ustu árum. Heild­ar­fram­leiðslu­viði hans jókst milli ára.

Áætlað heild­ar­fram­leiðslu­virði land­bún­að­ar­ins fyrir árið 2016 var 65,9 millj­arðar á grunn­verði það er að með­töldum vöru­styrkjum en frá­töldum vöru­sköttum og jókst um 2,2 pró­sent á árinu.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Virði afurða búfjár­ræktar er talið vera 44,3 millj­arðar króna og þar af vöru­tengdir styrkir og skattar um 10,8 millj­arðar króna. Virði afurða nytja­plöntu­ræktar eru tæpir 17,8 millj­arðar og þ.a. vöru­tengdir styrkir og skattar 316 millj­ónir króna. Aðfanga­notkun land­bún­að­ar­ins í heild er áætluð 44,3 millj­arðar árið 2016 og jókst um 6,9 pró­sent frá fyrra ári.

Aukningu í fram­leiðslu­virði árið 2016 má rekja til magn­breyt­inga. En breyt­ingu á notkun aðfanga má rekja til 5,9 pró­sent magnaukn­ingar og eitt pró­sent hækk­unar á verði. „Fram­leiðslu­verð­mæti land­bún­að­ar­ins árið 2015 er metið 64,6 millj­arða á grunn­verði miðað við upp­færðar tölur og er það heild­ar­lækkun um 2,4% frá fyrra árinu, 2014. Þessa lækkun má rekja til 0,1% magnaukn­ingar og 2,6% lækk­unar á verði,“ segir í umfjöllun um málið á vef Hag­stof­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Atvinnulíf

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár