Úrskurður kjararáðs hefur sett kjaraviðræður í uppnám

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins. Mynd: Birgir Þór Harðarson

For­sendur kjara­samn­inga Samtaka atvinnu­lífs­ins og ASÍ eru í hættu og verða for­sendur metnar í vik­unni. Svo gæti farið að samn­ingar opn­ist um mán­aða­mótin, segir í Frétta­blað­inu í dag, en það er ekki síst ákvörðun kjara­ráðs frá kjör­degi 29. októ­ber sem situr í for­ystu­fólki verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar og atvinnu­rek­enda. „Eins og staðan er í dag er for­sendu­brest­ur­inn aug­ljós,“ segir Gylfi Arn­björns­son, for­seti ASÍ, í við­tali við Frétta­blaðið. 

Með ákvörðun kjara­ráðs voru laun for­seta Íslands, þing­manna og ráð­herra hækkuð um 30 til 40 pró­sent, en Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, ákvað að þiggja ekki hækk­un­ina og hefur fært mis­mun­inn í góð­gerð­ar­starf.

Að mati Gylfa hafa laun ann­arra hópa, eins og alþing­is­manna og ráð­herra, hækkað umfram það sem menn ætl­uðu og þannig grafið undan vinnu­lag­inu sem hafði verið horft til. Þá hafi ekki verið staðið við aðgerðir í hús­næð­is­málum, en mikil þörf er á því að auka fram­boð hús­næðis til að ná jafn­vægi á hús­næð­is­mark­aði. Hús­næð­is­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækk­aði um 15 pró­sent í fyrra og er því spáð að hækk­unin verði jafn­vel enn meiri á þessu ári. Meg­in­á­stæðan er of lítið fram­boð hús­næðis.

For­sendu­nefnd ASÍ og SA hitt­ist í vik­unni og fer yfir stöð­una og for­sendur samn­ing­ana, að því er fram kemur í Frétta­blað­inu. „Við þurfum síðan að skila nið­ur­stöðu innan átta daga um hvort for­send­urnar halda eða ekki. Verði nið­ur­staðan að for­sendur séu brostnar fer málið til samn­inga­nefndar ASÍ og næstu skref verða ákveðin,“ segir Gylfi við Frétta­blaðið.

Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri SA, segir stöð­una óljósa en að málin skýrist í þess­ari viku. „Við bíðum nið­ur­stöðu for­sendu­nefnd­ar­innar en á meðan er samn­ingur í gildi. Úrskurður kjara­ráðs frá því í októ­ber er sann­ar­lega ekki að hjálpa til enda álykt­uðum við hjá SA harð- lega gegn þeirri ákvörðun,“ segir Halldór Benjamín í við­tali við Frétta­blaðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Atvinnulíf

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár