Þorgerður Katrín: Það er deiluaðila að leysa málið

Ögur­stund er nú í kjara­deilu sjó­manna og útgerða.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Samn­inga­nefndir sjó­manna og útvegs­manna fóru á fund Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, í Sjáv­ar­út­vegs­hús­inu seint í gær­kvöldið eftir að hafa setið á samn­inga­fundum í Karp­hús­inu stóran hluta dags.

Í til­kynn­ingu frá sjó­mönnum segir að góður gangur hafi verið í við­ræðum und­an­farna daga. „Viðræður SFS og sjó­manna­sam­tak­anna hafa gengið vel liðna daga og sam­eig­in­legur skiln­ingur er með aðilum um helstu kröfur. Líkt og komið hefur fram í umræðu hafa sjó­menn talið að leið­rétt­ingar sé þörf á ójafn­ræði í skatta­legri með­ferð á dag­pen­ingum. Sjómenn telja mik­il­vægt að úr þessu verði bætt. Þar sem um rétt­læt­is­mál er að ræða hefur þetta veru­leg áhrif í þeim kjara­við­ræðum sem nú standa yfir. Ráðherra hefur lagt til að fram fari heild­stæð grein­ing og skoðun á fæðis- og dag­pen­ingum almennt á vinnu­mark­aði. Greining þessi er vafa­laust jákvæð. Enn stendur þó útaf að fá við­ur­kenn­ingu stjórn­valda á skatta­legri með­ferð á dag­pen­inga­greiðslum til sjó­manna,“ segir í til­kynn­ingu sjó­manna.

Þor­gerður Katrín sagði að fundi loknum í gær­kvöldi að fund­ar­menn hefðu farið yfir stöð­una og skipst á skoð­unum.

„Þeir voru ein­fald­lega að upp­lýsa mig nákvæm­lega um stöð­una. Svo voru skoð­ana­skipti um eitt og annað," sagði Þor­gerður Katrín við RÚV að fundi loknum. „Meðal ann­ars um fæðis- og dag­pen­inga. Ég lagði fram til­lögu meðal ann­ars um heild­stæða nálgun og grein­ingu, og myndum fara hratt í það að skoða fæðis- og dag­pen­inga á almennum vinnu­mark­aði með til­liti til skattaí­viln­ana. Við sjáum þá hvernig staðan er og hægt að bregð­ast við óskum sjó­manna. Það er það sem við erum til­búin til þess að gera,“ sagði ráð­herra.

Í við­talið við mbl.is sagði Þor­gerður Katrín að það væri sjó­manna og útgerðar að leysa deil­una með samn­ingum, en verk­fall sjó­manna og kjara­deil­unar hafa verið óleystar frá 14. des­em­ber

„Deilu­að­ilar eru bún­ir að deila í á tí­undu viku og þeir hljóta að ráða við það að semja í þess­ari mik­il­vægu at­vinnu­grein. Það er ein­föld krafa sem við hljót­um öll að gera til þeirra. Það er mjög sér­stakt og eig­in­lega eins­dæmi ef rík­is­valdið á eft­ir á, þegar menn eru nokk­urn veg­inn að koma sér sam­an, að koma síðan og upp­fylla kröfu sem gæti sent ekki réttu skila­boðin inn í kom­andi kjara­deil­ur,“ sagði Þor­gerður Katrín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Atvinnulíf

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár