Ritari djöfulsins

Ritari Göbbels lést á dög­unum. Skelfing nas­ism­ans fylgdi henni alla tíð. Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur kynnti sér lífs­hlaupið þar sem hörm­ungar voru aldrei langt undan.

Jos­eph Göbbels
Jos­eph Göbbels Mynd: bpk

Margir hafa velt því fyrir sér hvernig hel­förin gat átt sér stað. Hvernig sið­menntað og lýð­ræð­is­legt þjóð­fé­lag gat alið af sér nas­is­mann og fram­fylgt stefnu hans. Því ekki voru allir Þjóð­verjar hrein­rækt­aðir kyn­þátta­hat­arar og sadistar. Svarið felst senni­lega í sög­unni af Brun­hilde Pomsel, sein­asta eft­ir­lif­anda úr innsta kjarna nas­ista­stjórn­ar­innar. Hún starf­aði sem einka­rit­ari Joseph Göbbels, eins versta stríðs­glæpa­manns mann­kyns­sög­unnar.

Hlýðni og værukærð

Brun­hilde Pomsel fædd­ist í Berlín þann 11. jan­úar árið 1911 inn í dæmi­gerða prúss­neska fjöl­skyldu. Faðir hennar, sem barð­ist í fyrri heim­styrj­öld­inni, hik­aði ekki við að berja hana og bræður hennar þrjá með teppa­bankara til að halda uppi aga og það átti eftir að móta alla hennar fram­tíð. Skyldu­rækni og hlýðni voru gildin sem systk­inin fengu í vöggu­gjöf. Sem ung kona lærði hún hrað­ritun og þótti skara fram úr á því sviði.

Á þeim tíma var Nas­ista­flokk­ur­inn að ryðja sér til rúms og miklir ólgu­tímar í Þýska­landi en Pomsel fylgd­ist lítið með og hafði engan áhuga á stjórn­málum. Hún vann t.a.m. sam­tímis hjá gyð­ingi á lög­fræði­stofu og við að skrifa upp æviminn­ingar manns úr Nas­ista­flokknum. Þegar nas­ist­arnir komust til valda árið 1933 fékk hún vinnu hjá rík­is­út­varp­inu RRG en þá þurfti hún einnig að skrá sig í flokk­inn. Pomsel hugs­aði sig ekki tvisvar um jafn­vel þó að ein af hennar bestu vin­konum, Eva Löwenthal, væri gyð­ingur. Hún hafði ágæt laun, um 250 mörk á mán­uði, og vinnu­stað­ur­inn var þægi­legur.

En á þessum tíma voru margir Þjóð­verjar í kröggum vegna vand­ræða eft­ir­stríðs­ár­anna og heimskrepp­unnar miklu. Pomsel var ekki virk í flokk­starfi Nas­ista­flokks­ins en barst með eins og svo mörg þýsk ung­menni. Hún var t.d. við­stödd hátíð­ina við Brand­en­borg­ar­hliðið þann 30. jan­úar árið 1933 þegar Adolf Hitler var gerður að kansl­ara Þýska­lands. Upp­gangur nas­ist­anna hafði þó per­sónu­lega mjög slæm áhrif á Pomsel.

Kærasti hennar, lista­mað­ur­inn og gyð­ing­ur­inn Gott­fried Kirchbach, sem var nokkuð eldri en hún flúði til Amster­dam. Hún bar barn hans undir belti og fór nokkrum sinnum til að hitta hann þar. Eftir að yfir­völd komust að ferðum hennar sleit Kirchbach sam­band­inu öryggis hennar vegna og hún lét í kjöl­farið eyða fóstr­inu. Kirchbach dó hins vegar í Amster­dam árið 1942, 54 ára að aldri. Lífið varð einnig mun erf­ið­ara fyrir vin­konu hennar Evu Löwenthal. Þær héldu þó sam­bandi alveg þangað til Löwenthal var flutt í fanga­búðir. Pomsel vann í 9 ár hjá rík­is­út­varp­inu þar sem fluttur var stans­laus áróður og henni gekk mjög vel í starfi. Svo vel að einn dag var hún færð til í starfi, til áróð­urs­mála­ráðu­neytis Joseph Göbbels.

Fyrirmyndarfjölskylda þriðja ríkisins

Joseph Göbbels hafði verið áróð­urs­mála­ráð­herra síðan í vald­tök­unni árið 1933. Hann var eft­ir­læti Hitlers og einn af vold­ug­ustu mönnum þriðja rík­is­ins. Göbbels hafði yfir­um­sjón með öllum fjöl­miðlum lands­ins, þ.m.t. útvarpi, dag­blöðum, bóka­út­gáfu, kvik­myndum, tíma­ritum og fleiru. Eins og sönnum áróð­urs­manni sæmdi var hann hug­mynda­fræði­legur ofstæk­is­maður sem kom best fram í kröft­ugum ávörpum hans. Hann stóð jafn­fætis sjálfum Hitler í þeim efnum.

En Pomsel kynnt­ist hinni hlið hans, þ.e. hinum hvers­dags­lega, hæg­láta og afskipta­lausa Göbbels. Starfið í ráðu­neyt­inu var umtals­vert betur borgað, um 500 mörk á mán­uði, en mun leið­in­legri vinna og færri verk­efni. Sex rit­arar unnu á skrif­stof­unni en hún var per­sónu­legur rit­ari ráð­herr­ans. Störf hennar fólust aðal­lega í að svara sím­tölum, rita upp sam­töl og bréf fyrir ráð­herr­ann og að skipu­leggja fundi og ferða­lög.

Göbbels var oft­ast nær einn inni á skrif­stofu sinni. Hann var ávallt fínn í tauinu og vel snyrtur en hann var jafnan fámáll og skipti sér lítið af rit­ur­unum. Hann hafði verið haltur frá bernsku og Pomsel vor­kenndi honum vegna þess en það risti þó ekki djúpt þar sem hann var mjög hroka­fullur og leit stórt á sig. Aðstaðan í ráðu­neyt­inu var mjög góð með fal­legum hús­gögnum og afslöpp­uðu and­rúms­lofti. Göbbels stýrði því ekki með ótta eins og maður myndi halda. Bestu stund­irnar voru þegar eig­in­kona ráð­herr­ans, Magda Göbbels, kom með börnin þeirra á skrif­stof­una um helgar. Börnin sex, fimm stúlkur og einn drengur, voru mjög spennt að hitta pabba sinn og Pomsel leyfi þeim að leika sér með rit­vél­ina sína. Börnin voru vel þekkt í Þýska­landi vegna þess að Göbbels not­aði þau mikið í störfum sínum, t.a.m. í áróð­urs­mynd­böndum og ljós­myndum. Til eru ótal myndir af Adolf Hitler með börn­unum en hann var sjálfur barn­laus. Í eitt skipti var Pomsel boðið í höll Göbbels hjón­anna á Wilhelmplatz torg­inu. Þau borð­uðu gæs og Magda gaf henni föt. Ráð­herr­ann yrti hins vegar aldrei á hana allt kvöldið. Pomsel var ekki einu sinni viss hvort hann vissi hvað hún héti.

Brjálaði dvergurinn

Pomsel hóf störf í ráðu­neyt­inu árið 1942 eða um það leyti sem stríðið var að snú­ast til hins verra fyrir Þjóð­verja. En það var einnig sá tími þegar Göbbels fór að láta til sín taka á meðan Hitler varð minna sjá­an­legur. Í febr­úar árið 1943 hélt hann sína þekkt­ustu ræðu í Sport­pal­ast íþrótta­hús­inu í Berlín eftir hinn mikla ósigur Þjóð­verja í orr­ust­unni um Stalín­grad. Þar við­ur­kenndi hann að stríðs­rekst­ur­inn gengi ekki sem skyldi en kall­aði jafn­framt á “alls­herj­ar­stríð” allra þýskra þegna til að vernda heima­landið. Pomsel var við­stödd ræð­una og sat í næsta sæti við ráð­herra­frúnna. Henni var brugðið við að sjá umbreyt­ing­una á mann­inum.

„Enginn leik­ari hefði getað breytt sér á þennan hátt, úr sið­mennt­uðum og alvar­legum manni yfir í hávaða­saman ofstopa­mann….eins og brjál­aðan dverg.“

En þrátt fyrir til­raunir Göbbels til að þjappa saman þýsku þjóð­inni þá versn­aði stríðs­rekst­ur­inn með hverjum deg­inum. Í októ­ber árið 1944 kom hann á fót heima­varn­ar­liði (Volkst­urm) sem var að mestu leyti sam­an­sett af ung­lingum og eldri körlum. Allir ungir og hraustir menn lands­ins voru annað hvort dauðir eða í víg­lín­unni. Þar á meðal allir þrír bræður Brun­hilde Pomsel en tveir af þeim lét­ust í bardgögum.

Á þessum tíma jókst ábyrgð hennar til muna í ráðu­neyt­inu. Hún fékk það hlut­verk að skrifa til­kynn­ingar í fjöl­miðla um tölu lát­inna her­manna og ávallt reyndi hún að fegra þær nokkuð. Hún marg­fald­aði einnig tölur um dráp og nauðg­anir sov­éskra her­manna á þýskum konum þar sem Rauði her­inn sótti hratt í átt að Berlín. Göbbels reyndi að skapa hryll­ings­á­stand í augum Þjóð­verja vegna komu Rússanna til þess að knýja þá til varna. En æ fleiri skýrslur röt­uðu á borð Pomsel sem sýndu svo ekki varð um villst að stríðið væri tapað.

Endalokin

Í apr­íl­mán­uði árið 1945 höfðu Sov­ét­menn umkringt Berlín­ar­borg og aðeins átti eftir að veita náð­ar­höggið. Göbbels fór með fjöl­skyldu sinni í neð­an­jarð­ar­byrgi Hitlers (Führer­bunker) á meðan starfs­fólk áróð­urs­mála­ráðu­neyt­is­ins dvaldi dægrin löng í kjall­ara bygg­ing­ar­innar. Þar var drukkið mikið af áfengi til að deyfa ótt­ann og Pomsel sagði að eitt­hvað inni í sér hefði dáið þarna. Í byrjun maí kom Günther Schwägermann, aðstoð­ar­maður Göbbels, í kjall­ar­ann með þær fréttir að Hitler hefði framið sjálfs­víg þann 30. apríl og Göbbels sjálfur degi seinna. “En Magda og börnin?”

Þegar Hitler hafði tekið eigið líf ásamt konu sinni Evu Braun var Göbbels gerður að kansl­ara. Hans eina gjörð í starfi var að láta Sov­ét­menn vita af dauða Hitler og biðja þá um vopna­hlé sem var hafnað. Þann 1. maí var Helmut Kunz, tann­læknir úr SS-sveit­unum, feng­inn til að svæfa börnin með mor­fíni. Þau voru þá á aldr­inum fjög­urra til tólf ára. Þá komu Magda Göbbels og Ludwig Stump­fegger, einka­læknir Hitlers, inn og bruddu blá­sýru­töflur ofan í þau. Þegar það var gert tóku Göbbels hjónin sitt eigið líf. Sjálfs­víg Göbbels hjón­anna og morðið á börnum þeirra var ekki skyndi­á­kvörðun. Hjónin voru hel­tekin af hug­mynda­fræði nas­ism­ans og eigin ímynd. Mörgum vikum fyrr hafði Magda haft orð á því að þau myndu öll þurfa að deyja ef stríðið tap­að­ist því að hún gat ekki hugsað sér að börnin þyrftu að lifa í heimi þar sem faðir þeirra væri álit­inn glæpa­maður. Vissu­lega ótt­uð­ust þau ofbeldi og sví­virð­ingar frá sov­éskum her­mönnum en þau höfðu næg tæki­færi til að koma Mögdu og börn­unum úr landi, t.d. til Sviss eða Sví­þjóðar, áður en Berlín féll.

Pomsel og sam­starfs­menn hennar voru í losti við fregn­irnar. Hún sagði:

„Ég mun aldrei fyr­ir­gefa Göbbels það sem hann gerði heim­inum eða fyrir þá stað­reynd að hann myrti sín eigin sak­lausu börn.“

Þegar Rauði her­inn tók borg­ina gaf starfs­fólkið í ráðu­neyt­inu sig fram við her­menn­ina. Pomsel var dæmd í fimm ára þrælk­un­ar­vinnu í vinnu­búðum Sov­ét­manna í nágrenni Berlínar.

Harmur í hljóði

Pomsel fékk að fara til Vestur-Þýska­lands eftir afplánun sína árið 1950. Hún sagð­ist hafa fyrst þá heyrt af hel­för­inni og raun­veru­legum afleið­ingum stríðs­ins. Hún hafði heyrt af búðum á borð við Buchenwald og að gyð­ingar hefðu verið fluttir þangað frá Berlín. En hún taldi að gyð­ing­arnir hefðu síðan verið fluttir til Súd­eta­hérð­anna (í Tékk­landi) og að útrým­ing­ar­búð­irnar hefðu í raun verið betr­un­ar­búðir fyrir óeirð­ar­seggi.

„Enginn trúir okkur. Allir halda að við höfum vitað allt. Við vissum ekk­ert.“

Hún sá hins vegar eftir því að hafa starfað fyrir Göbbels og sagði það hafa verið heimsku­legt af sér. En hún neit­aði allri ábyrgð á ódæðum nas­ism­ans nema þeirri sam­á­byrgð allra Þjóð­verja að hafa hleypt þeim til valda.

Þegar hún kom til Vestur Þýska­lands fékk hún vinnu hjá Südwestfunk, nýstofn­aðri útvarps­stöð í Baden Baden í suð­vest­ur­hluta Þýska­lands. Seinna flutti hún til München og vann sem rit­ari hjá sjón­varps­stöð­inni ARD þar til hún sett­ist í helgan stein árið 1971, sex­tug að aldri. Á þessum tíma var sjaldan rætt opin­ber­lega um stríðið og nas­is­mann í Vestur Þýska­landi. Fólk bar þess í stað harm sinn og sök í hljóði. Pomsel var ógift og barn­laus og fáir gáfu henni nokkurn gaum. Þegar minn­is­varði um fórn­ar­lömb helfar­ar­innar var vígður í Berlín árið 2005 fór hún þangað og spurð­ist í fyrsta sinn fyrir um vin­konu sína, Evu Löwenthal. Löwenthal hafði verið flutt til Auschwitz í nóv­em­ber­mán­uði árið 1943 og skráð látin árið 1945.

Hvað myndir þú gera?

Traudl Junge, einka­rit­ari Hitlers, varð fræg þegar hún rit­aði æviminn­ingar sínar árið 2002 . Þær urðu að miklu leyti efni­við­ur­inn í kvik­mynd­ina Der Unter­gang (2004) sem segir frá enda­lok­unum í neð­an­jarð­ar­byrg­inu. Saga hennar er svipuð og Pomsel, þ.e. hún sagð­ist ekki hafa vitað af hel­för­inni og hefði borist með nas­ism­anum í ein­hvers konar móðu. Eftir að kvik­myndin kom út jókst áhugi fjöl­miðla á Pomsel enda var hún eina eft­ir­lif­andi mann­eskjan í innsta hring þriðja rík­is­ins. Fjölmörg við­töl voru tekin við hana og árið 2013 var ákveðið að ráð­ast í gerð heim­ild­ar­myndar. Myndin A German Life var frum­sýnd haustið 2016 og byggir að mestu leyti á við­tölum við hana. Leik­stjór­arnir Florian Weigensamer og Olaf Müller eru þó ekki sann­færðir um ábyrgð­ar­leysi hennar.

„Þið getið trúað henni en margir fela sig á bak­við falska eft­ir­sjá. Hún var svo sann­ar­lega ekki ákafur nas­isti en henni var sama og hún ákvað að horfa í hina átt­ina. Það er það sem gerir hana seka.“

Aðal mark­mið mynd­ar­innar var einmitt að rann­saka hvernig venju­legt fólk bregst við þegar hættu­legt fólk kemst til valda. Að fá áhorf­endur til að spyrja sig hvort þeir myndu fljóta með og jafn­vel aðstoða slíkt fólk til þess eins að hagn­ast á því per­sónu­lega. Pomsel var 105 ára þegar myndin var frum­sýnd en hún var ennþá ern og fylgd­ist grannt með þjóð­mál­unum. Hún hafði sjálf áhyggjur á ástand­inu og upp­gangi manna á borð við Donald Trump og Recep Erdogan. Þeir væru raun­veru­lega hættu­legir menn þó þeir hefðu verið kjörnir lýð­ræð­is­lega. Hitler hafði einnig lýð­ræð­is­legt umboð.

„Nú á dögum segir fólk að það hefði sjálft gert meira fyrir hina ofsóttu gyð­inga og ég held að það meini það í alvöru. En það hefði samt ekki gert það.

Brun­hilde Pomsel lést 27. jan­úar 2017 í München, rúmum tveimur vikum eftir 106 ára afmæl­is­dag sinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seinni heimstyrjöld

ErlentSeinni heimstyrjöld

Nú er ég Dauðinn, eyð­ing­ar­afl heims­ins

„Nú er ég Dauðinn, eyð­ing­ar­afl heims­ins,“ voru orðin sem flugu í gegnum huga J. Robert Opp­en­heimer þegar hann átt­aði sig á hvers konar vopn hann hafði smíðað. Hann kall­aði sig oft föður „atóm­sprengj­unnar“ enda hafði hann leitt vís­inda­lega fram­kvæmd Man­hattan-verk­efn­is­ins. Afurð Man­hattan-verk­efn­is­ins hefur mótað heims­sög­una, allar götur síðan, enda er hér um að ræða öfl­ug­asta vopn sem mann­kynið hefur kom­ist...
SkýringSeinni heimstyrjöld

Auschwitz-fangar frels­aðir fyrir 70 árum

Syðst í Póllandi er nú safn til minn­ingar um hel­för gyð­inga í Seinni heim­styrj­öld­inni. Stað­ur­inn þjón­aði til­gangi aðal púsls­ins í „loka­lausn­inni á gyð­inga­vanda­mál­inu“ allt stríðið og er talið að þar hafi 1,1 milljón manns verið aflífaðir á hrotta­feng­inn hátt í stein­steyptum gasklefum eða lát­ist úr nær­ing­ar­skorti og vos­búð. [caption id="" align="alignnone" width="800"] Lestar­tein­arnir sem leiddu fólk til slátr­unar í Auschwitz-Birkenau....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár