Auschwitz-fangar frelsaðir fyrir 70 árum

Syðst í Póllandi er nú safn til minn­ingar um hel­för gyð­inga í Seinni heim­styrj­öld­inni. Stað­ur­inn þjón­aði til­gangi aðal púsls­ins í „loka­lausn­inni á gyð­inga­vanda­mál­inu“ allt stríðið og er talið að þar hafi 1,1 milljón manns verið aflífaðir á hrotta­feng­inn hátt í stein­steyptum gasklefum eða lát­ist úr nær­ing­ar­skorti og vos­búð.

[caption id="" align="alignnone" width="800"] Lestar­tein­arnir sem leiddu fólk til slátr­unar í Auschwitz-Birkenau. Beggja vegna lestar­tein­anna stóðu svefn­skálar fang­anna þar sem þeir lágu, margir til dauða­dags.[/caption]

Í þessum stærstu útrým­ing­ar­búðum nas­ista var fólki trillað inn um hliðið undir varð­turn­inum í smekk­fullum lest­ar­vögnum sem komu hvaðanæfa að úr Evrópu. Fólkið um borð hafði verið skilið frá fjöl­skyldum sínum og vinum, til þess að vera tekið af lifi á afskektum stað. Allt vegna þess að ráð­andi öflum fannst það ekki stand­ast til­búnar hug­myndir um mann­kynið.

Í dag eru 70 ár liðin síðan Sov­ét­menn frelsuðu eft­ir­lif­andi fanga úr Auschwitz-útrým­ing­ar­búð­unum sem hér er lýst að ofan. Við þau tíma­mót er rétt að minn­ast hat­urs­ins sem leiddi til þess að um það bil sex millj­ónir gyð­inga létu lífið. Sumir sagn­fræð­ingar hafa gengið lengra og sagt fimm milljón manns til við­bótar hafa orðið fórn­ar­lömb helfar­ar­innar, án þess að hafa verið af semískum upp­runa.

Niðurlæging og hörmungar


Mik­il­vægur þáttur helfar­ar­innar var sú nið­ur­læg­ing sem gyð­ingar þurftu að upp­lifa. Strax og Þjóð­verjar réð­ust inn í Pólland 1939 var gyð­ingum skipað að flytja í gettó, sem síðar voru girt af frá öðrum hverfum borg­anna. Þýskir gyð­ingar voru fluttir til Póllands þar sem Þjóð­verjar réðu.

Þegar Þjóð­verjar hófu stríð við Sov­ét­ríkin 1941 hófu nas­istar að úrýma gyð­ingum. Gyðingum í sov­éska hernum sem Þjóð­verjar tóku til fanga var skipað að grafa djúpa skurði sem áttu eftir að verða fjölda­grafir þeirra og fleiri gyð­inga.

Stormsveitum Heinrich Himmlers var síðar sama ár skipað að útbúa áætlun sem síðar fékk nafnið „Loka­lausnin á gyð­inga­vanda­mál­inu“. Þar lék Auschwitz lyk­il­hlut­verk. Flestir sem fluttir voru til Auschwitz voru teknir af lífi strax en fáeinir voru teknir til fanga og látnir svelta og vinna til dauða á skipu­lagðan hátt í fanga­búð­unum Auschwitz I.

[caption id="" align="alignnone" width="800"] Hliðið inn i Auschwitz-vinnu­búð­irnar er fyrir löngu orðið frægt. Þar stendur á þýsku: „Arbeit macht frei“, sem íslenskast sem „Vinnan frelsar“.[/caption]

Til minningar um grimmd mannsins


Í Auschwitz er nú safn um hel­för­ina til minn­ingar um fólkið sem þar lést vegna ann­ar­legra hug­mynda og hrotta­skaps nas­ista. Í vis­ar­verum fang­anna í Auschwitz I er búið að end­ur­inn­rétta til að hýsa ýmsa muni.

Safn­gestir eru leiddir þar um til að sjá hol­urnar í aftöku­veggnum eftir byssu­skotin sem geig­uðu, hár sem rakað var af föng­unum liggur í gler­búri og töskum fólks­ins sem svipt hafði verið rétt­inum til lífs hefur verið verið staflað.

Það er átak­an­legt að ganga um safnið og upp­lifa óum­flýj­an­legar til­finn­ingar. Tösk­urnar, sem dæmi, eru flestar merktar með krít. Eigendur þeirra hafa teiknað Dav­íðs­stjörnu á tösk­urnar og nöfnin sín sem gerir hryll­ing­inn enn per­sónu­legri. Þar áttar maður sig á hryll­ingnum fyrir alvöru. Grun­laust fólkið von­aði að eigur þeirra röt­uðu aftur í hendur þeirra, ein­hvern­tíma þegar stríð­inu og ofsókn­unum lyki.

Nasistar ráku margar útrým­ing­ar­búðir eins og í Auschwitz-Birkenau. Auschwitz var þó lang afkasta­mest, ef svo má að orði kom­ast, því þar lét­ust fimmt­ungur allra þeirra sem myrtir voru í hel­för­inni. Víða hefur þessum stöðum verið breytt í söfn, til minn­ingar um þá sem lét­ust og til að fyr­ir­byggja að slíkt geti nokk­ur­staðar gerst aftur.

Hér að neðan má líta myndir frá Auschwitz-búð­unum.

[caption id="" align="alignnone" width="700"] Loftmynd sem breski flug­her­inn tók af Auschwitz-Birkenau sum­arið 1944. Neð­ar­lega á mynd­inni má sjá braut­ar­tein­ana sem fluttu fólk hvaðanæfa að úr Evrópu til aftöku. Varð­turn­inn er hægramegin við svæðið en við enda tein­anna eru gasklefar beggja vegna braut­ar­innar. Vinstra­megin á mynd­inni má svo sjá hvar þéttur hvítur reykur stígur úr reyk­háfum lík­brennsl­unnar.[/caption]

[caption id="" align="alignnone" width="800"] Horft yfir svæðið eins og það lítur út í dag. Búið að rífa nær alla skálana á svæð­inu en tveir skálar standa enn næst inn­gang­inum á svæðið. Það er kló­sett­skáli og svefn­skáli. Allar lest­irnar, fermdar fólki, runnu inn á svæðið undir varð­turn­inn fyrir miðri mynd. Við enda tein­anna voru gasklef­arnir en þá er búið að leggja í rúst, til virð­ingar við hina látnu.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seinni heimstyrjöld

ErlentSeinni heimstyrjöld

Nú er ég Dauðinn, eyð­ing­ar­afl heims­ins

„Nú er ég Dauðinn, eyð­ing­ar­afl heims­ins,“ voru orðin sem flugu í gegnum huga J. Robert Opp­en­heimer þegar hann átt­aði sig á hvers konar vopn hann hafði smíðað. Hann kall­aði sig oft föður „atóm­sprengj­unnar“ enda hafði hann leitt vís­inda­lega fram­kvæmd Man­hattan-verk­efn­is­ins. Afurð Man­hattan-verk­efn­is­ins hefur mótað heims­sög­una, allar götur síðan, enda er hér um að ræða öfl­ug­asta vopn sem mann­kynið hefur kom­ist...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár