Nú er ég Dauðinn, eyðingarafl heimsins

„Nú er ég Dauðinn, eyð­ing­ar­afl heims­ins,“ voru orðin sem flugu í gegnum huga J. Robert Opp­en­heimer þegar hann átt­aði sig á hvers konar vopn hann hafði smíðað. Hann kall­aði sig oft föður „atóm­sprengj­unnar“ enda hafði hann leitt vís­inda­lega fram­kvæmd Man­hattan-verk­efn­is­ins.

Afurð Man­hattan-verk­efn­is­ins hefur mótað heims­sög­una, allar götur síðan, enda er hér um að ræða öfl­ug­asta vopn sem mann­kynið hefur kom­ist í tæri við. En þrátt fyrir að hafa svo mikil áhrif á þróun heims­ins, stjórn­mál­anna og, oftar en ekki, haldið mann­kyn­inu í helj­ar­g­reypum hefur kjarn­orku­sprengjan aðeins verið notuð tvisvar í hern­aði.

Um þessar mundir eru rétt 70 ár liðin síðan Banda­ríkja­menn opn­uðu vít­is­gáttir kjarn­orku­sprengj­unnar yfir Hiros­hima og Nagasagi í Japan með þeim afleið­ingum að um það bil 240.000 manns féllu. Enginn veit fyrir víst hversu margir fór­ust því fólk hrein­lega leyst­ist upp í loft­kennt ástand; gufaði upp.

Í öll þessi 70 ár hafa íbúar Hiros­hima komið saman dag­inn sem sprengjan féll og minnst allra þeirra sem dóu hrylli­legum dauð­daga. Um leið árétta þau til heims­ins að svona lagað má aldrei ger­ast á ný.

Hér er saga sprengj­unnar og afleið­inga hennar í stuttu máli.

[caption id="attachment_35958" align="alignnone" width="690"] Þessi bygg­ing stendur enn í óbreyttri mynd í Hiros­hima til minn­ingar um þá sem fór­ust og hryll­ingin sem fylgdi kjarn­orku­sprengj­unni.[/caption]

Til Roosevelt, frá Einstein

Í des­em­ber árið 1938 uppgvöt­uðu tveir þýskir vís­inda­menn kjarna­sam­runa. Frétt­irnar af þessu bár­ust fljótt til New York í Banda­ríkj­unum og til eyrna þriggja ung­verskra eðl­is­fræð­inga sem átt­uðu sig á mögu­leik­unum sem slík uppgvötun gæfi. Hræddir um að Þjóð­verjar yrðu fyrri til að rann­saka kjarna­sam­runa og keðju­verk­andi áhrif splundr­andi atóma

rit­uðu þeir Szilárd, Teller og Wigner bréf

til Frank­lins D. Roosevelt, Banda­ríkja­for­seta.

Til þess að bréfið skil­aði sér örugg­lega til for­set­ans leit­uðu þeir uppi Albert Einstein sem þá þegar var orð­inn frægur maður fyrir uppgvöt­anir sínar í eðl­is­fræði. Einstein setti nafn sitt undir skila­boðin sem útskýrðu áhyggjur þeirra og ósk­uðu eftir fjár­magni til rann­sókna á þessu svo Banda­ríkin yrðu fyrri til.

Kald­hæðni örlag­anna réð því að þegar Adolf Hitler komst til valda í Þýska­landi ofsótti hann gyð­inga og um leið margt af skarpasta fólki ver­aldar svo þeir flúðu undan honum. Margir komust til Banda­ríkj­anna og tóku þátt í að smíða sprengj­una, sem upp­haf­lega átti að nota gegn nas­istum í Þýska­landi.

Manhattan-verkefnið

Eftir að hafa tryggt fé til rann­sóknar á kjarna­sam­runa og hvernig hægt væri að nota hann varð rann­sóknin að

Man­hattan-verk­efn­inu

. Verk­efnið varð hern­að­ar­legt og mark­miðið að smíða sprengju úr úran­íum.

[quote font="0" align="right"]„Við vissum að heim­ur­inn yrði aldrei samur. Sumir hlóu, aðrir grétu. Flestir voru hljóðir.“[/quote]

Fyrsta kjarn­orku­sprengjan var sprengd í Nýju Mexíkó 16. júlí 1945. Stríðinu í Evrópu var þá lokið og ljóst að ef til­raunin gengi upp yrði vopnið notað gegn Japönum gæfust þeir ekki upp.

Trinity-til­raunin gekk vel og los­aði ígildi 20 kílótonna af TNT. 16 milli­sek­úndum eftir kveikj­una hafði hálf­hvel sprengj­unnar náð 200 metra hæð. Hitinn var svo mik­ill að sand­ur­inn í eyði­mörk­inni bráðn­aði og varð að gleri. Sveppa­kýjið náði 12,1 kíló­metra hæð.

„Við vissum að heim­ur­inn yrði aldrei samur. Sumir hlóu, aðrir grétu. Flestir voru hljóðir. Nokkrar línur úr ritn­ingu hindúa, Bhagavad Gita, fóru í gegnum huga mér um það þegar Vishnu reynir að sann­færa prins­inn um að sinna skildum sínum, og tekur á sig form marg­handa búdda­guðs og segir: Nú er ég Dauðinn, eyð­ing­ar­afl heims­ins. Ég held að allir hafi hugsað það, hver á sinn hátt,“ sagði Opp­en­heimer síðar í við­tali sem sjá má hér að neðan.

Truman tekur ákvörðun

Harry S. Truman var orð­inn for­seti eftir að Roosevelt lést í emb­ætti 12. apríl 1945. Truman var staddur á Potsdam-ráð­stefn­unni þegar honum bár­ust fréttir af til­raun­inni í eyði­mörk­inni og til­kynnti Jósef Stalín og Winston Churchill að nú réði hann yfir öfl­ug­asta vopni heims.

Eftir að hafa gefið Japönum úrslita­kosti um að þeir gæfust upp en þeir neitað, var ákvörð­unin tekin. Kjarn­orku­sprengju yrði varpað á borg í Japan til þess að enda stríðið. Ákvörð­un­ina rétt­lættu banda­rísk stjórn­völd með því að benda á að með því að fella marga af óvinum sínum með þessu öfl­uga vopni, væri verið að bjarga lífi fjöl­margra Banda­ríkja­manna sem ann­ars þyrftu að ráð­ast gegn sjálfs­vígs­her Japana.

Banda­ríkin höfðu þá um nokkra mán­aða skeið kastað sprengjum yfir jap­anskar borgir, ekki síst eldsprengjum sem ollu ótrú­legu tjóni, bæði á mann­eskjum og innviðum lands­ins.

Little Boy og Fat Man

[caption id="attachment_35953" align="alignnone" width="964"]

Leið­ang­urs­menn stilltu sér upp fyrir framan sprengju­vél­ina sem kastaði Little Boy yfir Hiros­hima. Leið­ang­ur­inn og aðdrag­andi hans var allur vel skjal­festur.[/caption]

Fyrstu sprengj­unni, sem hlaut nafnið Little Boy, var varpað yfir Hiros­hima að morgni dags 6. ágúst. Veðrið var mjög gott og áhöfn sprengju­vél­ar­innar Enola Gay hæfði skot­mark sitt í mið­borg­inni vel. Borginni hafði verið hlýft fyrir öðrum sprengju­árásum banda­manna svo hægt var að áætla eyði­legg­ing­ar­mátt kjarn­orku­sprengj­unnar betur.

Hiros­hima var valin sem fyrsta skot­markið því hún var bæði mik­il­væg fyrir iðnað í Japan og þar voru her­búðir fjöl­margra jap­anskra her­manna. Sprengjan féll á þeim tíma þegar flestir voru á leið til vinnu og undir berum himni. Erfitt er að átta sig á hversu margir lét­ust strax af völdum sprengj­unnar því hit­inn var svo mik­ill að fólk gufaði hrein­lega upp.

[caption id="attachment_35954" align="align­right" width="300"] Kjarn­orku­sprengjan varp­aði skuggum á jörð­ina vegna þeirrar gríð­ar­legu geisl­unar sem hún skap­aði.[/caption]

Enn í dag má sjá skugg­ann af mann­inum sem gufaði upp (e. The Vaporized Man) á stein­tröppum í Hiros­hima. Vegna þeirrar gríð­ar­legu geisl­unar sem varð í sprengin­unni upp­lit­að­ist allt í margra kíló­metra rad­íus. Maðurinn hefur að öllum lík­indum setið í mak­indum á tröpp­unum, orðið fyrir geisl­un­inni og skilið eftir sig skugga, áður en hann gufaði hrein­lega upp.

Vegna veð­urs var Nagasaki seinna skot­markið en ekki Kokura. Seinni sprengjan, Fat Man, féll þar 9. ágúst en hæfði skot­mark sitt ekki eins vel og lenti í dal. Eyði­legg­ing­ar­máttur sprengj­unnar var hins vegar meiri eða 21 kílótonn miðað við 12-15 kílótonn í Hiros­hima.

Upptökurnar frá Hiroshima

Til að skrá­setja þessar fyrstu kjarn­orku­sprengjur fyldi sér­stök flug­vél búin töku­vélum leið­angrinum yfir Hiros­hima og Nagasaki eftir. Vélin var kölluð „Necessary evil“.

Sigur bandamanna í Seinni heimstyrjöldinni

Í kjöl­far spreng­ing­anna ríkti alger ömurð í borg­unum sem höfðu orðið fyrir sprengj­unum. Fáir læknar sinntu fár­sjúku fólki og engin aðstaða var til að hjálpa þeim sem verst urðu úti.

Nokkrum klukku­stundum eftir að sprengjan sprakk féllu svartir regn­dropar á borg­ina. Fólkið reyndi að drekka geisla­virkt vatnið en átt­aði sig ekki á hætt­unni. Geisla­virknin drap hvítu blóð­kornin í blóð­inu svo lík­amar þess gátu ekki barist gegn sjúk­dómum sem hófu að breið­ast út. Fólk rotn­aði hrein­lega að innan.

Japanir gáfust upp 15. ágúst 1945. Í sjö ár var landið hernumið Banda­ríkja­mönnum en árið 1952 fengu Japanir aftur sjálf­stæði. Í stjórn­ar­skrá lands­ins er ákvæði um að Japönum sé bannað að hefja stríð gegn ann­ari þjóð. Seinni heim­styrj­öldin er því síð­asta stríðið sem Japan háði.

Eftirlifendur rifja upp eftirmála Little Boy

Kjarnorkuöld

Little Boy og Fatman eru einu kjarn­orku­sprengj­urnar sem not­aðar hafa verið í hern­aði og gegn örðu fólki. Lyktir stríðs­ins höfðu skapað nýtt valda­jafn­vægi í heim­inum. Heims­veldi Breta var að hruni komið en Banda­ríkin orðin eitt áhrifa­mesta ríki heims ásámt Sov­ét­ríkj­unum.

Í hönd fór vopna­kapp­laup þess­ara öfl­ug­ustu ríkja heims og víg­bún­að­ur­inn fólst ekki síst í að smíða svo margar kjarn­orku­sprengjur að hægt væri að tor­tíma jörð­inni og öllu lífi á henni mörgum sinnum. Nokkrum sinnum lá við kjarn­orku­styrj­öld en alltaf var henni afstýrt.

Þrátt fyrir sam­komu­lag milli öfl­ug­ustu her­velda heims um fækkun kjarn­orku­vopna í heim­inum er afl herja enn mælt eftir kjarn­orku­vopna­búri þeirra. Ríki á svæðum þar sem ójafn­vægi ríkir vilja til dæmis eign­ast kjarna­vopn til að hafa betur í hug­mynda­fræði­legum hern­aði gegn nágrönum sínum og óvinum.

Í heim­inum eru talin vera um 4.000 til­búin kjarna­vopn og um það bil 10.000 í heild­ina. Banda­ríkin eiga lang stærsta kjarn­orku­vopna­búrið, eða 2.104 til­búin vopn. Rússar eru næst stærstir með 1.600 til­búin vopn. Önnur ríki eiga mun minna af kjarna­vopnum.

Bretar, Frakkar og Kín­verjar eiga til dæmis aðeins um 250 hvert. Indland og Pakistan eiga einnig rúm­lega 100 kjarn­orku­sprengjur hvert og Norður-Kórea á ekki meira en 10 flaugar. Þá er talið að Ísrael eigi fjöl­mörg kjarn­orku­vopn en enn þann dag í dag eru það aðeins ágisk­anir.

Því ríkir enn kjarn­orku­öld þrátt fyrir allt sem á undan hefur gengið á síð­ast­liðin 70 ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seinni heimstyrjöld

SkýringSeinni heimstyrjöld

Auschwitz-fangar frels­aðir fyrir 70 árum

Syðst í Póllandi er nú safn til minn­ingar um hel­för gyð­inga í Seinni heim­styrj­öld­inni. Stað­ur­inn þjón­aði til­gangi aðal púsls­ins í „loka­lausn­inni á gyð­inga­vanda­mál­inu“ allt stríðið og er talið að þar hafi 1,1 milljón manns verið aflífaðir á hrotta­feng­inn hátt í stein­steyptum gasklefum eða lát­ist úr nær­ing­ar­skorti og vos­búð. [caption id="" align="alignnone" width="800"] Lestar­tein­arnir sem leiddu fólk til slátr­unar í Auschwitz-Birkenau....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár