Í þá tíð… Unternehmen Weserübung – Innrásir Þjóðverja í Danmörku og Noreg

Þjóð­verjar réð­ust inn í Danmörku og Noreg.

Þýskir hermenn marsera í Bergen.
Þýskir her­menn mar­sera í Bergen.

Á þessum degi fyrir réttum 77 árum, hinn 9. apríl árið 1940, hófu her­sveitir Þriðja rík­is­ins inn­rásir í Noreg og Danmörku. Aðgerðin var sam­þætt og sner­ist ann­ars vegar um að tryggja yfir­ráð yfir norsku strand­lengj­unni þaðan sem mátti flytja sænskt járn­grýti til hern­að­ar­fram­leiðslu Þjóð­verja og herja á skipa­sigl­ingar banda­manna í Norður Atl­ants­hafi, og hins vegar að taka danska flug­velli til að ná betri stöðu á Norð­ur­sjó og sigl­inga­leiðum inn í Eystra­salt.

Hráefnisflutningar í brennidepli

Þegar þarna var komið við sögu í Seinni heims­styrj­öld­inni höfðu Þjóð­verjar og Sov­ét­menn gert með sér griða­sátt­mála og skipt með sér Póllandi, átök geisuðu um gjör­vallt Norður-Atl­ants­haf og Sov­ét­ríkin höfðu ráð­ist inn í Finnland.

Fram­leiðsla stríðs­gagna í Þýska­landi reiddi sig á inn­flutt járn­grýti frá Norður-Svíþjóð. Að vetri til var land­leiðin suður ófær og því þurfti að flytja hrá­efnið sjó­leiðis frá hafn­ar­borg­inni Narvik í Norður-Noregi.

Þetta vissu Banda­menn jafn vel og Þjóð­verjar þannig að áætl­anir beggja gerðu ráð fyrir mik­il­vægi hafn­ar­innar. Bretar höfðu meðal ann­ars fyr­ir­hugað að setja her­lið í land í Noregi og fara yfir Svíþjóð til að koma Finnum til hjálpar í Vetr­ar­stríð­inu gegn Sov­ét­mönnum. Það breytt­ist svo þegar Finnar sömdu um frið við Sov­ét­menn í mars 1940. Þess í stað var ákveðið að leggja tund­ur­dufl undan Nor­egs­ströndum.

Noregur, Svíþjóð og Danmörk voru hins vegar hlut­laus ríki og það flækti málin þegar kom að því að rétt­læta það að beita her­valdi gegn þeim. Þarna var aðeins beðið eftir átyllu.

Árás í skjóli nætur

Átyllan sem Hitler beið eftir kom svo í febr­úar þetta ár þegar breskur tund­ur­spillir réð­ist um borð í þýskt flutn­inga­skip í norskri land­helgi. Í Berlín var þetta túlkað sem svo að Bretar væru til­búnir að virða hlut­leysi Noregs að vettugi og því var und­ir­bún­ingur inn­rás­ar­innar, sem kall­að­ist Unter­neh­men Weserübung, kennd við ána Weser sem rennur í Norð­ur­sjó við Brem­en­haven, sett á fullt. Norski jað­ar­póli­tíkus­inn Vidkun Quisling, sem lengi hafði dáðst að afrekum Hitlers og and­stöðu hans við komm­ún­isma, hafði nokkru áður hitt Hitler sjálfan, en í byrjun apríl hitti Quisling útsend­ara Þjóð­verja í Kaup­manna­höfn og lét þeim í té þær upp­lýs­ingar sem hann hafði um varnir Noregs.

Fyrstu þýsku skipin létu úr höfn 3. apríl, tveimur dögum áður en Bretar hófu að dreifa tund­ur­dufl­unum.

Hinn 9. apríl var svo látið til skarar skríða. Skip sigldu inn að Osló, og öðrum helstu borgum og bæjum; Bergen, Stavan­ger, Þránd­heimi og svo vit­an­lega Narvik.

Á sama tíma geyst­ust þýskar her­sveitir yfir landa­mærin inn í Danmörku. Í báðum aðgerð­unum not­uð­ust Þjóð­verjar við fall­hlífa­her­sveitir til að taka yfir flug­velli, en það var í fyrsta sinn í sög­unni sem slíkum sveitum var beitt í hern­aði.

Búið fyrir hádegismat

Eins og gefur að skilja voru nokkuð hæg­ari heim­an­tökin að ráð­ast á Danmörku en Noreg þar sem ein landa­mæri skildu Danmörku frá Þýska­landi og land­svæðið er umtals­vert minna og auð­veld­ara yfir­ferðar.

Enda tóku aðgerðir í Danmörku skjótt af. Nokkrum klukku­stundum eftir að inn­rásin hófst höfðu dönsk stjórn­völd gef­ist upp, enda hót­uðu Þjóð­verjar að senda Luftwaffe, flug­her Þriðja rík­is­ins, af stað og láta sprengjum rigna yfir Kaup­manna­höfn. Mót­spyrna var gagns­laus og Danir sömdu um að gef­ast upp gegn því að fá að halda stjórn yfir inn­an­rík­is­málum.

Sam­komu­lagið hélst nokkuð gott milli almenn­ings, stjórn­valda og her­liðs Þjóð­verja framan af stríði, en þegar komið var fram á árið 1943 hafði kergja meðal almenn­ings auk­ist stórum og farið var að bera á skemmd­ar­verkum gegn þýska hernum. Það var ekki liðið og í sum­ar­lok var Danmörk form­lega sett undir beina þýska stjórn og í hönd fóru róst­ur­tímar þar sem and­spyrna jókst, sem og ofbeldi og harka her­námsliðs­ins, sem hélst allt til stríðsloka. Þegar þarna var komið höfðu þó flestallir gyð­ingar flúið landið. Af rúm­lega átta þús­und dönskum gyð­ingum féllu 477 í hendur Þjóð­verja og 70 voru drepnir.

Hörð mótspyrna með aðstoð Bandamanna

Norðmenn voru í allt ann­ari aðstöðu, enda var landið hluti af áætl­unum Banda­manna sem voru með fjöl­mörg skip undan ströndum Noregs.

Víðast mættu Þjóð­verjar þó tak­mark­aðri mót­spyrnu, enda við ofurefli að etja fyrir norska her­liðið. Ein­kenni­leg til­viljun var þó að verki þegar her­skip sigldu inn að Osló. Krupp vopna­smiðjan þýska hafði lengi selt Norð­mönnum vopn og hafði látið stjórn­völdum í té upp­lýs­ingar um hvaða bún­aði Noregur hefði yfir að ráða. Þeim láð­ist þó að geta eld­gam­allar fall­byssu sem stað­sett var í virk­inu Oscarsborg í Osló­ar­firði.

Skot þaðan sökktu for­ystu­skipi Þjóð­verja, en með því fór­ust fleiri hund­ruð skip­verjar, og keypti kon­ungs­fjöl­skyld­unni og rík­is­stjórn­inni tíma til að kom­ast undan með gull­forða rík­is­ins. Þrátt fyrir að Þjóð­verjar næðu síðar stjórn yfir öllu land­inu gafst norska stjórnin aldrei form­lega upp og var, að nafn­inu til, enn við völd.

Quisling beið ekki boð­anna þegar ljóst var að Osló var fallin í hendur Þjóð­verja og lýsti því yfir í útvarps­ávarpi að hann hafi myndað rík­is­stjórn og tekið yfir stjórn lands­ins.

Á meðan var barist víða um land þar sem her­lið Banda­manna freist­aði þess að stöðva norð­ur­för Þjóð­verja. Þjóð­verjar lögðu undir sig Narvik strax á fyrsta degi, en öllum skipum þeirra þar fyrir utan var sökkt af breskum her­skipum. Bæði lið lögðu mikla áherslu á að taka Narvik, en þróun mála á öðrum víg­stöðvum setti þá strik í reikn­ing­inn.

Þannig bar við að Þjóð­verjar hófu, hinn 10. maí, mikla leift­ur­sókn, blitzkrieg, inn í Frakk­land, Belgíu, Holland og Lúx­emburg. Það gekk svo vel og hratt að Bretar máttu hafa sig alla að við að forða her­liði sínu frá frönsku hafn­ar­borg­inni Dunkerque á dauð­ans flótta.

[box]Það gjör­breytti stöðu Breta sem vildu treysta sína eigin stöðu og drógu Banda­menn 25.000 manna lið sitt til baka frá Noregi. Síðustu her­menn Banda­manna yfir­gáfu Narvik hinn 8. júní og degi síðar lagði síð­asta norska her­deildin niður vopn.

Þjóð­verjar höfðu tekið stjórn­ina í Noregi, en ekki fyrr en eftir tveggja mán­aða bar­áttu, sem var það lengsta sem nokkur þjóð náði að halda út gegn Þjóð­verjum fyrir fall.

Hernámið og Quisling-stjórnin

Eins og fyrr sagði lýsti Quisling því fljótt yfir að hann myndi stýra nýrri rík­is­stjórn, en honum varð ekki kápan úr því klæð­inu þar sem eng­inn virt­ist taka mark á honum. Hvorki rík­is­stjórnin sem var enn við völd og færði sig norðar eftir því sem Þjóð­verjar hertu tökin, né Hákon kon­ungur, sem sömu­leiðis var á flótta en aftók með öllu að skipa Quisling for­sæt­is­ráð­herra. Quisling hafði enda ekk­ert til­kall til valda þar sem hann var átti ekki einu sinni sæti á þingi og flokkur hans, Nasjonal Samling, var varla annað en félags­skapur í kringum for­mann sinn.

Þess í stað var skipuð ráð­gjafa­stjórn undir stjórn þýsks Reichskommisars, en þar voru að vísu aðeins með­limir Nasjonal Samling. Quisling fékk svo ákveðna upp­hefð árið 1942 þegar hann var gerður að yfir­manni nýrrar rík­is­stjórnar, flutti inn í kon­ungs­höll­ina og kvaðst hand­hafi þeirra valda sem í stjórn­ar­skrá var falið kon­ungi og þing­inu. Í raun var stjórn Quislings þó aðeins lepp­stjórn fyrir Þjóð­verja, en eitt af fyrstu verkum stjórn­ar­innar var að end­ur­vekja lög sem bönn­uðu gyð­ingum inn­göngu í landið. Þau höfðu áður verið numin úr gildi árið 1851.

Hörð andspyrna

Norðmenn sættu sig aldrei við yfir­ráð Nasista, og varn­ar­bar­áttan sner­ist fljót­lega upp í and­spyrnu. And­spyrnu­hreyf­ingin Milorg var stofnuð utan um starf­semi fjöl­margra hópa árið 1941 og unnu í sam­starfi við norsku útlaga­stjórn­ina í Bret­landi og breska her­inn. Þeir stund­uðu skemmd­ar­verk gegn þýska her­námslið­inu og hreyf­ingin dafn­aði eftir því sem á leið stríðið.

Þegar yfir lauk hafði Milorg á að skipa um 40.000 her­mönnum.

Frelsun Danmerkur og Noregs

Ekki þarf að fjöl­yrða um lok styrj­ald­ar­innar. Þýska­land lenti á vegg í inn­rásinni í Sov­ét­ríkin árið 1943 og Banda­menn réð­ust til atlögu í Vestur-Evrópu ári síðar. Eftir það var útséð með að draumur Hitlers um Þúsund ára ríki myndi ræt­ast og þegar Berlín var við það að falla í apríl 1945 svipti hann sig lífi.

Nokkrum dögum síðar gaf Dönitz aðmíráll yfir­mönnum þýska hers­ins í Noregi og Danmörku fyr­ir­skip­anir um að leggja niður vopn og her­nám­inu lauk form­lega.

Í báðum löndum hefur mikið verið rætt um þátt­töku og ábyrgð stjórn­mála­fólks og almenn­ings á meðan her­námi stóð. Sér­stak­lega í Danmörku þar sem mörgum þótti sem and­spyrnan hefði getað verið harð­ari fyrstu árin.

Í báðum löndum fóru fram rétt­ar­höld í stríðs­lok. Í Noregi voru 37 dæmdir til dauða fyrir land­ráð, þar á meðal Vidkun Quisling, hvers nafn er í dag orðið sam­nefn­ari fyrir föð­ur­lands­svik, og í Danmörku voru 46 teknir af lífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seinni heimstyrjöld

ErlentSeinni heimstyrjöld

Nú er ég Dauðinn, eyð­ing­ar­afl heims­ins

„Nú er ég Dauðinn, eyð­ing­ar­afl heims­ins,“ voru orðin sem flugu í gegnum huga J. Robert Opp­en­heimer þegar hann átt­aði sig á hvers konar vopn hann hafði smíðað. Hann kall­aði sig oft föður „atóm­sprengj­unnar“ enda hafði hann leitt vís­inda­lega fram­kvæmd Man­hattan-verk­efn­is­ins. Afurð Man­hattan-verk­efn­is­ins hefur mótað heims­sög­una, allar götur síðan, enda er hér um að ræða öfl­ug­asta vopn sem mann­kynið hefur kom­ist...
SkýringSeinni heimstyrjöld

Auschwitz-fangar frels­aðir fyrir 70 árum

Syðst í Póllandi er nú safn til minn­ingar um hel­för gyð­inga í Seinni heim­styrj­öld­inni. Stað­ur­inn þjón­aði til­gangi aðal púsls­ins í „loka­lausn­inni á gyð­inga­vanda­mál­inu“ allt stríðið og er talið að þar hafi 1,1 milljón manns verið aflífaðir á hrotta­feng­inn hátt í stein­steyptum gasklefum eða lát­ist úr nær­ing­ar­skorti og vos­búð. [caption id="" align="alignnone" width="800"] Lestar­tein­arnir sem leiddu fólk til slátr­unar í Auschwitz-Birkenau....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár