Skiptastjóri kærir meint brot til Héraðssaksóknara

Sveinn Andri Sveins­son hrl. skipta­stjóri EK 1923 ehf., sem áður hét Eggert Krist­jáns­son Hf. heildverzlun, hefur kært Skúla Gunnar Sig­fús­son, oft kenndan við Subway, og Guðmund Hjalta­son, til emb­ættis Hér­aðs­sak­sókn­ara vegna meintra brota þeirra í tengslum við gjörn­inga EK og félags­ins Sjö­st­arnan. Eru þeir kærðir fyrir auðg­un­ar­brot, skjala­brot og ranga skýrslu­gjöf, að því er segir í kærunni sem er frá 9. jan­úar síð­ast­liðnum.

Skúli var eig­andi í báðum félögum en Guð­mundur var fram­kvæmda­stjóri Sjö­stjörn­unnar, sam­kvæmt kæru, þegar meint brot áttu sér stað.

Í kærunni, sem Kjarninn hefur undir höndum, er þeim lýst þannig, að þeir hafi með „ólög­mætum hætti til­einkað sér fyrir hönd Sjö­stjörn­unnar ehf. 21,3 millj­ónir króna með því að láta starfs­mann Íslands­banka milli­færa þann 15. Mars 2016 milli­færa þá fjár­hæð af bund­inni banka­bók í eigu EK inn á reikn­ing Sjö­stjörn­unnar,“ eins og orð­rétt segir í kærunni. Með þessum hætti eru þeir sak­aðir um að hafa haldið eftir fjár­munum með ótil­hlýði­legum hætti frá öðrum kröfu­höfum þrátt fyrir að gjald­þrot félags­ins væri yfir­vof­andi.

Vísað er meðal ann­ars til laga­á­kvæða um fjár­svik og skjala­fals, en tekið fram að það sé ákæru­valds­ins að meta heim­færslu meintra brota.

Kæran er birt hér í heild sinni, en í lok hennar er gerð krafa um refs­ingu og að hugs­an­lega geti komið til einka­rétt­ar­legrar kröfu á hendur þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

rannsóknir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár