Seðlabankinn sendi engar tilkynningar vegna gruns um peningaþvætti

Samkvæmt lögum á að til­kynna grun um pen­inga­þvætti til sér­stakrar skrif­stofu. Seðla­banki Íslands sendi ekki neinar til­kynn­ingar vegna gruns um pen­inga­þvætti vegna aðila sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið hans á meðan hún var opin á árunum 2012-2015.

Már Guðmundsson er seðlabankastjóri.
Már Guð­munds­son er seðla­banka­stjóri. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Seðla­banki Íslands sendi ekki neinar til­kynn­ingar vegna gruns um pen­inga­þvætti vegna aðila sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið hans á meðan hún var opin á árunum 2012-2015. Alls komu 206 millj­arðar króna til lands­ins í gegnum leið­ina og virð­is­aukn­ing þeirra sem hana nýttu var tæp­lega 50 millj­arðar króna. Seðla­bank­inn seg­ist enn fremur ekki haft neinar laga­heim­ildir til að velja eða hafna þátt­tak­endum sem tóku þátt í fjár­fest­ing­ar­leið­inni á grund­velli þess frá hvaða land­svæði þeir komu, hvort sem það var aflands­svæði eða ekki. Bankinn neitar að veita upp­lýs­ingar um nöfn þeirra sem tóku þátt í fjár­fest­ing­ar­leið hans, um upp­runa fjár þeirra eða umfang við­skipta hvers og eins.

Þetta kemur fram í svari bank­ans við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið. Í skýrslu starfs­hóps um eignir Íslend­inga á aflands­svæðum, sem birt var fyrir viku síðan, er fjallað um fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands og því meðal ann­ars velt upp hvort hún hafi orðið til þess að hluti af fjár­magn­inu frá aflands­svæðum, sem orðið hafi til með ólög­mætum hætti, hafi skilað sér Íslands með geng­is­af­slætti í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið­ina. Orðrétt segir í skýrsl­unni: „Miðlun upp­lýs­inga um fjár­magns­flæði inn og út úr land­inu, t.d. aflandskrónur sem fluttar hafa verið til lands­ins og eins þátt­taka í fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­bank­ans er ekki til staðar. Sér í lagi hefur skatt­yf­ir­völdum ekki verið gert við­vart af hálfu Seðla­bank­ans þegar um grun­sam­legar fjár­magnstil­færslur er að ræða. Æskilegt má telja að sam­starf væri um miðlun upp­lýs­inga á milli þess­ara stofn­ana.“

Afhenti umbeðnar upplýsingar en tilkynnti ekki sjálfur

Samkvæmt lögum um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka á að til­kynna grun um pen­inga­þvætti til Pen­inga­þvætt­is­skrif­stofu (Financial Interlligence Unit) sem lengi vel var vistuð hjá rík­is­sak­sókn­ara en heyrir nú undir hér­aðs­sak­sókn­ara.

Í svari Seðla­banka Íslands við fyr­ir­spurn Kjarnans um hvort hann hafi sent slíkar til­kynn­ingar segir að skatt­yf­ir­völd hafi fengið „umbeðnar upp­lýs­ingar um þátt­tak­endur í gjald­eyr­is­út­boðum Seðla­banka Íslands með nokkrum send­ingum á árunum 2012 til 2015.“ Það liggur því fyrir að Seðla­bank­inn hefur afhent skatt­yf­ir­völdum þær upp­lýs­ingar sem þau hafa beðið um, en ekk­ert kemur fram í svar­inu um að Seðla­bank­inn hafi sýnt frum­kvæði að því að gera skatt­yf­ir­völdum við­vart þegar um grun­sam­lega fjár­magns­flutn­inga væri að ræða.

Síðan segir í svari Seðla­bank­ans: „Í skýrsl­unni koma fram upp­lýs­ingar um þátt­töku fjár­festa í útboðum fjár­fest­ing­ar­leiðar með fjár­muni frá svæðum sem skil­greind eru sem lág­skatta­svæði, en þau eru 29 sam­kvæmt lista fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins. Frá þeim svæðum tóku sjö lög­að­ilar í meiri­hluta­eigu íslenskra aðila þátt í ein­hverju af 21 útboði fjár­fest­ing­ar­leiðar á árunum 2012 til 2015 fyrir alls 13 millj­ónir evra. Þessa fjár­hæð má tvö­falda þar sem fjár­fest­arnir þurftu að skipta jafn­hárri fjár­hæð hjá fjár­mála­fyr­ir­tæki hér á landi á svo­nefndu álands­gengi til að upp­fylla skil­yrði útboð­anna. Þannig nam fjár­fest­ing þeirra u.þ.b. 26 millj­ónum evra, sem sam­svarar tæp­lega fimm millj­örðum króna. Fjár­fest­ing þess­ara aðila nam því um 2,4% af heild­ar­fjár­fest­ingu vegna þátt­töku í útboðum fjár­fest­ing­ar­leiðar. Frá Lúx­em­borg, Kýpur og Möltu, sem ekki eru á lista yfir svæði sem skil­greind eru sem lág­skatta­svæði, tóku 12 lög­að­ilar í meiri­hluta­eigu íslenskra aðila þátt í fjár­fest­ing­ar­leið­inni með 82 millj­ónir evra.“

Segir að bankar hefðu átt að tilkynna um mögulegt peningaþvætti

Að sögn Seðla­bank­ans þurftu þátt­tak­endur í útboðum fjár­fest­ing­ar­leið­ar­innar að upp­fylla fjöl­mörg skil­yrði skil­mála sem gilitu um gjald­eyr­is­við­skipti. „Fjár­mála­fyr­ir­tæki höfðu milli­göngu um að að miðla til Seðla­bank­ans umsóknum fjár­festa um þátt­töku í útboðum fjár­fest­ing­ar­leiðar og m.a. að ganga úr skugga um að fyr­ir­huguð fjár­fest­ing upp­fyllti form­kröfur Seðla­bank­ans sam­kvæmt skil­málum fjár­fest­ing­ar­leiðar. Formlega var þátt­taka í útboð­unum í nafni inn­lends fjár­mála­fyr­ir­tækis sem var þá gagn­að­ili Seðla­bank­ans í við­skipt­unum. Fjár­mála­fyr­ir­tæki báru einnig þá skyldu að kanna fjár­festa, þ.e. við­skipta­menn sína, með til­liti til laga[...]um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka og stað­festa áreið­an­leika þeirra gagn­vart Seðla­bank­anum. Eftirlit með því að fjár­mála­fyr­ir­tæki sinni skyldum sínum varð­andi pen­inga­þvætt­is­at­hug­anir er í höndum Fjár­mála­eft­ir­lits­ins.“ Það er því skoðun Seðla­banka Íslands að þau fjár­mála­fyr­ir­tæki sem voru milli­liðir þeirra sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina hefðu átt að kanna hvort um mögu­legt pen­inga­þvætti væri að ræða. Seðla­bank­inn sjálfur hefði engum skyldum að genga í því til­liti. Heim­ildir Kjarnans herma að engar pen­inga­þvætt­is­til­kynn­ingar hafi borist frá fjár­mála­fyr­ir­tækjum sem voru milli­liðir fyrir þá sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina.

Taka skal fram að engar tak­mark­anir voru á þátt­töku í fjár­fest­ing­ar­leið­inni fyrir aðila sem voru til rann­sóknar eða jafn­vel í ákæru­ferli hjá öðrum emb­ættum en gjald­eyr­is­eft­ir­liti Seðla­bank­ans.

Hægt er að lesa tíu stað­reyndir um fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár