Kirkjuheimsóknir og jólaskemmtanir eru ekki bannaðar í skólum

Stað­reynda­vakt Kjarnans skoðar full­yrð­ingu Ásmundar Frið­riks­sonar um jóla­trés­skemmt­anir og kirkju­heim­sóknir barna í Reykja­vík.

„Í Reykja­vík er skólum bannað að fara með börnin í kirkjur eða halda jóla­trés­skemmt­anir eins og ein­hver skað­ist af því.“ Þetta skrifar Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, á Facebook-síðu sína í síð­ustu viku.

Ásmundur er ekki einn um að halda þessu fram, enda hafa umræður um þessi mál verið árviss við­burður fyrir jólin und­an­farin ár. Stað­reynda­vakt Kjarnans ákvað að kanna málið.

Reglur settar um heimsóknir í kirkjur

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra gaf út meg­in­við­mið um sam­skipti skóla og trú­fé­laga þann 29. apríl 2013. Það var gert eftir að starfs­hópur ráð­herr­ans hafði skilað til­lögum til ráð­herra um þessi mál, en full­trúar frá Bisk­ups­stofu, Heimili og skóla, Kenn­ara­sam­bandi Íslands, Sambandi íslenskra sveit­ar­fé­laga, Siðmennt og full­trúa mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins sátu í hópnum. Það var þó áréttað að leik- og grunn­skólar séu á for­ræði sveit­ar­fé­laga og þau beri ábyrgð á sam­starfi skóla við aðila utan hans. Þá var mælst til þess að sveit­ar­fé­lög settu sér reglur um sam­skipti trú­fé­laga og skóla.

Í regl­unum sem mennta­mála­ráðu­neytið setti fram kemur fram að leggja eigi áherslu á mik­il­vægi vand­aðrar trú­ar­bragða­fræðslu í fjöl­menn­ing­ar­sam­fé­lagi og vett­vangs­heim­sóknir til trú­fé­laga geti verið hluti af slíkri fræðslu. „Mik­il­vægt er að fræðsla þessi og heim­sóknir sé gerð á vegum skól­ans og í þeim til­gangi að fræða nem­endur um til­tekin trú­ar­brögð, inn­tak þeirra, helgi­dóma og siði en feli ekki sér inn­ræt­ingu til­tek­inna trú­ar­skoð­ana eða til­beiðslu. Vett­vangs­heim­sóknir til trú­fé­laga og heim­sóknir full­trúa þeirra í skóla skulu taka mið af ofan­greindu og vera innan ramma aðal­námskrár leik-, grunn- og fram­halds­skóla,“ segir í fyrsta kafla regln­anna.

„Heim­sóknir í kirkjur í tengslum við stór­há­tíðir kristn­innar telst hluti af fræðslu um trú­ar­há­tíðir og menn­ing­ar­lega arf­leið þjóð­ar­innar,“ segir svo í öðrum kafla. Þá segir í þriðja kafla að „eftir fremsta megni skal forð­ast að nem­endur og for­eldrar séu settir í þá aðstöðu að þurfa að gera grein fyrir lífs­skoð­unum sínum.“

Fjölmörg sveit­ar­fé­lög hafa í kjöl­far brýn­ingar ráðu­neyt­is­ins sett sér reglur um sam­skipti trú­fé­laga og skóla. Í reglum Reykja­vík­ur­borgar kemur fram að „heim­sóknir á helgi- og sam­komu­staði trúar- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga á skóla­tíma grunn­skóla skulu eiga sér stað undir hand­leiðslu kenn­ara sem liður í fræðslu um trú og lífs­skoð­anir, sam­kvæmt gild­andi lögum og aðal­námskrá.“

Ekki bannað að fara í kirkju

Skólum í Reykja­vík er því almennt ekki bannað að fara í kirkju, þótt um slíkar heim­sóknir gildi strang­ari reglur en sums staðar ann­ars staðar. Engu að síður er farið með börn í kirkju í mörgum grunn­skólum Reykja­vík­ur­borgar, líkt og sjá má hér að neðan, en upp­lýs­ing­arnar byggja á því sem sagt er frá á vef­síðum skól­anna. Upp­taln­ingin er ekki tæm­andi, auk þess sem sums staðar var litlar upp­lýs­ingar að sjá.

Í Aust­ur­bæj­ar­skóla verður jóla­skemmtun, og í Árbæj­ar­skóla eru jóla­skemmt­anir auk þess sem haldin verða litlu jól. Í Öldusels­skóla fara börn bæði í heim­sókn í Selja­kirkju, halda litlu jól og fara á jóla­skemmt­anir. Sömu sögu er að segja af Selja­skóla. Í Vætta­skóla verður haldin jóla­skemmtun og nem­endur hafa haldið sam­veru­stundir á aðventu þar sem kveikt er meðal ann­ars á aðventu­kransi og sungin jóla­lög. Í Voga­skóla eru bæði litlu jólin og jóla­skemmtun haldin. Jóla­skemmtun verður haldin í Vest­ur­bæj­ar­skóla og þar er líka hald­inn svo­kall­aður rauður dagur, líkt og búið er að gera í Sæmund­ar­skóla. Í Sæmund­ar­skóla er líka árlegur helgi­leikur leik­inn, og haldin jóla­skemmtun við lok skóla­starfs­ins.

Í Sel­ás­skóla eru haldin litlu jól, og í Rima­skóla verður farið í heim­sókn í Graf­ar­vogs­kirkju, auk þess sem búið er að halda jóla­skemmtun fyrir fyrsta bekk og jóla­skemmtun. Í Norð­linga­skóla er búið að halda jóla­sveina­húfu­dag og haldin verður jóla­skemmtun. Í Mela­skóla er bæði jóla- og aðventu­sam­söngur, og jóla­skemmtun. Í Laug­ar­nes­skóla er haldið jóla­kaffi, jóla­lög eru sungin og jóla­skreytt. Í Lauga­lækj­ar­skóla eru haldnir jóla­leikar, jóla­ball og stofu­jól. Í Ing­unn­arskóla er jóla­peysu­dagur, jóla­ball og litlu jól og í Húsa­skóla er jóla­skemmtun.

Í Hóla­brekku­skóla er farin heim­sókn í Fella- og Hóla­kirkju, auk þess sem haldnar eru jóla­skemmt­anir, jóla­get­raun og jóla­húfu­dagur. Í Fella­skóla er haldið jóla­fjör og jóla­ball. Í Hlíða­skóla eru jóla­böll auk þess sem búið er að halda aðventu­há­tíð. Í Granda­skóla eru jóla­há­tíðir í tvo daga, í Foss­vogs­skóla er búið að halda jóla­ball og í Folda­skóla er jóla­fata­dagur á föstu­dag og bæði farið í kirkju, á jóla­ball og haldin litlu jól síðar í mán­uð­inum.

Niðurstaða Staðreyndavaktarinnar

Það er því nið­ur­staða Stað­reynda­vakt­ar­innar að Ásmundur fari með fleipur. Þrátt fyrir að það séu strangar reglur um kirkju­sókn grunn­skóla­barna í Reykja­vík fara margir skólar í heim­sóknir þangað, og svo virð­ist sem nán­ast allir ef ekki allir grunn­skólar borg­ar­innar haldi jóla­skemmt­anir fyrir jóla­frí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár