Hjördís fellst ekki á að skráningu dómaranefndar sé ábótavant

Nefnd um dóm­ara­störf vinnur að því að skrá erindi sem bár­ust fyrir árið 2010 og frá þeim tíma hafa öll erindi til nefnd­ar­innar verið skráð. Þetta segir Hjördís Hákon­ar­dóttir, for­maður nefndar um dóm­ara­störf, í frétta­til­kynn­ingu. Hún seg­ist senda frétta­til­kynn­ing­una til að leið­rétta þann mis­skiln­ing sem virð­ist ríkja.

„Frá árinu 2010 hafa öll erindi til nefnd­ar­innar, hvort sem um er að ræða kvart­anir frá þeim sem telja að dóm­ari hafi brotið á þeim í starfi sínu, erindi frá dóm­urum vegna til­kynn­inga um auka­störf og eign­ar­hluti í félögum og atvinnu­fyr­ir­tækjum, sem og bréf nefnd­ar­innar til dóm­ara þar sem kallað hefur verið eftir upp­lýs­ingum frá þeim verið skráð hjá nefnd­inni. Þar eru jafn­framt skráð svör nefnd­ar­innar við erindum og úrskurðir hennar í ein­stökum málum. Þá eru álit nefnd­ar­innar birt á vef dóm­stóla­ráðs dom­stolar.is.“

Þetta segir í til­kynn­ing­unni frá Hjördísi. Jafn­framt segir hún að nefndin hafi unnið að skrán­ingu eldri erinda sem bár­ust fyrir árið 2010 „og er þeirri skrán­ingu að mestu lokið. Það er því ekki unnt að fall­ast á það að skrán­ingu mála sé nú ábóta­vant hjá nefnd­inni.“

Þá bendir Hjördís á að með nýjum lögum um dóm­stóla, sem eigi að taka gildi í byrjun árs­ins 2018, muni nefndin hafa aðstöðu hjá dóm­stóla­sýsl­unni sem tekur við af dóm­stóla­ráði. „Er því haf­inn und­ir­bún­ingur að aðlögun mála­skrár nefnd­ar­innar að mála­skrá dóm­stóla­sýsl­unnar.“

Nefndin hefur verið gagn­rýnd eftir frétta­flutn­ing af því að dóm­arar við Hæsta­rétt hafi átt hluta­bréf í Glitni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár