Topp 10 – Framboð sem ögruðu fjórflokknum

Í dag er kjör­dagur og því til­efni til að fara yfir kosn­inga­sög­una. Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur skoð­aði sögu fram­boða sem hafa ögrað valda­jafn­væg­inu á hinu póli­tíska sviði.

Síðan á fjórða tug sein­ustu aldar hafa fjögur öfl verið ráð­andi í íslenskum stjórn­málum, hinn svo­kall­aði fjór­flokkur. Það eru hægri sinn­aður borg­ara­flokkur (Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn), miðju­sinn­aður bænda­flokkur (Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn), vinstri­s­inn­aður kra­ta­flokkur (Alþýðu­flokk­ur­inn, Sam­fylk­ingin) og vinstri/sós­íal­ískur flokkur (Komm­ún­ista­flokkur Íslands, Sós­í­alista­flokk­ur­inn, Alþýðu­banda­lagið, Vinstri Grænir).

Flokk­arnir hafa þó fengið sam­keppni frá klofn­ings­fram­boðum og sjálf­sprottnum flokkum í gegnum tíð­ina og þá sér­stak­lega oft á sein­ustu ára­tugum. Í sein­ustu þing­kosn­ingum fékk fjór­flokk­ur­inn aðeins 75% fylgi sem er það lægsta sem hann hefur fengið á lýð­veld­is­tím­anum. Nú lítur út fyrir að það met verið slegið ræki­lega. Lítum á þá 10 flokka sem hafa ögrað fjór­flokknum hvað mest í gegnum tíð­ina.

10. Bandalag jafnaðarmanna

Vil­mundur Gylfason kom eins og þrumufleygur inn í Alþýðu­flokk­inn á seinni hluta átt­unda ára­tug­ar­ins. Hann var rót­tækur og gagn­rýn­inn á allt stjórn­kerfið, þá sér­stak­lega stjórn­mála­flokk­ana og spill­ing­una í kringum þá. Hann und­an­skildi ekki sinn eigin flokk í þeim efnum. Hann gagn­rýndi einnig verka­lýðs­for­yst­una, t.d. í gegnum Alþýðu­blaðið sem hann rit­stýrði um stund. Þá lenti hann í hörðum deilum við Kjartan Jóhanns­son for­mann flokks­ins fyrir opnum tjöldum sem lyktaði með því að Vil­mundur sagði sig úr Alþýðu­flokknum og stofn­aði Bandalag jafn­að­ar­manna fyrir kosn­ing­arnar 1983. Banda­lagið beitti sér fyrir ýmsum málum sem þóttu óhefð­bundin á þessum tíma, t.d. rétt­indum sam­kyn­hneigðra og tölvu­væð­ingurétt­indum sam­kyn­hneigðra og tölvu­væð­ingu. Flokk­ur­inn fékk 7,3% og 4 þing­menn á meðan Alþýðu­flokk­ur­inn missti 4. Vil­mundur lést tæpum tveimur mán­uðum eftir kosn­ingar og tók aldrei sæti. Þing­flokk­ur­inn tvístrað­ist á kjör­tíma­bil­inu þar sem flestir fóru aftur inn í Alþýðu­flokk­inn.

9. Borgarahreyfingin – þjóðin á þing

Þing­kosn­ing­arnar 2009 voru þær fyrstu eftir banka­hrunið. Það bitn­aði þó ekki á fjór­flokknum sem bætti við sig hálfu pró­sentu­stigi frá 2007 (89,5% í 90%). Eina stjórn­mála­aflið sem náði inn utan fjór­flokks­ins var hin nýstofn­aða Borg­ara­hreyf­ing. Fram­bjóð­end­urnir komu nýjir inn í stjórn­málin og með nýjar áherslur. Meðal stefnu­mála voru ný stjórn­ar­skrá, per­sónu­kjör, afnám verð­trygg­ingar, virkara lýð­ræði og fleiri kerf­isum­bætur. Þá var skipu­lag Borg­ara­hreyf­ing­ar­innar flatt og eng­inn hafði stöðu for­manns. Flokknum gekk mun betur í kosn­ing­unum en búist var við, fengu 7,2% og 4 menn kjörna. En strax um haustið klofn­aði flokk­ur­inn eftir harð­vít­ugar og opin­skáar deilur. Þrír þing­menn mynd­uðu Hreyf­ing­una en einn sat utan flokka (og gekk svo í Vinstri Græna). Allir þing­menn­irnir fóru sína leið eftir kjör­tíma­bilið. Einn þing­mað­ur­inn, Margrét Tryggva­dóttir sagði síðar að flokk­ur­inn hefði verið dauða­dæmdur frá upp­hafi. Ekki hafi verið vandað til stofnun hans, tím­inn of naumur og allt reið­asta fólk lands­ins þar sam­an­komið.

8. Þjóðvaki

„Minn tími mun koma!“ er senni­lega þekktasta setn­ing úr íslenskum stjórn­málum fyrr og síðar. Þetta sagði Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir á flokks­þingi Alþýðu­flokks­ins árið 1994 eftir að hún hafði lotið í lægra haldi fyrir Jóni Baldvini Hanni­bals­syni í for­manns­slag. Jóhanna hafði setið á þingi fyrir Alþýðu­flokk­inn síðan 1978, verið vara­for­maður síðan 1984 og ráð­herra síðan 1987. Töluvert ósætti hafði ríkt milli hennar og Jóns Baldvins og end­aði það með klofn­ingi og stofnun Þjóðvaka árið 1994. Þjóðvaki var ekki rót­tækur flokkur og ekki mál­efna­lega óskyldur Alþýðu­flokknum. Takmark Jóhönnu var að gera Þjóðvaka að breið­fylk­ingu jafn­að­ar­manna og horfði hún til R-Listans í Reykja­vík í því sam­bandií því sam­bandi. Í Þjóðvaka var því fólk úr öllum vinstri flokk­unum og Fram­sókn­ar­flokknum. Þjóðvaki græddi líka á því að mikil illindi höfðu ríkt bæði innan Alþýðu­flokks­ins og Alþýðu­banda­lags­ins. Flokk­ur­inn flaug hátt í könn­unum en lenti harka­lega á kjör­dag árið 1995 og hlaut að lokum 7,2% og 4 þing­menn. Þremur árum seinna gekk Þjóðvaki inn í Sam­fylk­ing­una.

7. Þjóðvarnarflokkurinn

Her­stöðv­ar­málið og Atl­ants­hafs­banda­lagið voru heit­ustu deilu­mál eft­ir­stríðs­ár­anna. Þjóð­varn­ar­flokk­ur­inn var stofn­aður bein­línis vegna þessa, þ.e. helstu stefnu­málin voru Ísland úr NATO og her­inn burt! Þetta var þjóð­ern­is­sinnað og vinstri­s­innað afl. Þeir beittu sér t.a.m. fyrir íslenski þjóð­menn­ingu en gegn erlendum áhrifum s.s. Kana­sjón­varp­inu. Stór hluti flokks­ins kom úr Þjóð­varn­ar­fé­lag­inu (1946-1951) sem séra Sig­ur­björn Ein­ars­son, síðar biskup, var í for­svari fyrir. Flokk­ur­inn bauð fram árið 1953, fékk 6% fylgi og 2 þing­menn kjörna. Í þessum kosn­ingum missti allur fjór­flokk­ur­inn fylgi. Margir hafa litið á Þjóð­varn­ar­flokk­inn sem klofn­ing úr Sós­í­alista­flokknum en flokk­ur­inn átti þó marga stuðn­ings­menn úr röðum Alþýðu­flokks­manna og Fram­sókn­ar­manna. Þjóð­varn­ar­flokk­ur­inn bauð fram í þrennum þing­kosn­ingum til við­bótar en náði þá ekki inn manni. Þá höfðu Sós­í­alistar skerpt á and­stöð­unni gegn hernum. Báðir flokkar runnu svo inn í Alþýðu­banda­lagið á sjö­unda ára­tugnum.

6. Borgaraflokkurinn

Í þing­kosn­ing­unum árið 1987 galt fjór­flokk­ur­inn afhroð og fékk sam­an­lagt ein­ungis um 75% fylgi. Stærstan bita tók Borg­ara­flokk­ur­inn, eða tæp 11% og 7 þing­menn. Borg­ara­flokk­ur­inn var stofn­aður af Alberti Guð­munds­syni eftir að hann neydd­ist til að segja af sér ráð­herra­emb­ætti vegna Haf­skips­máls­ins. Flokks­menn tóku sér stöðu á hægri vængnum gegn Sjálf­stæð­is­flokknum og nýfrjáls­hyggj­unni. Borg­ara­flokk­ur­inn var íhalds­flokkur af gamla skól­anum þar sem reynt var að höfða sér­stak­lega til eldra fólks m.a. með áherslum á kristin gildi. Flokk­ur­inn setti sig t.a.m. upp á móti fóst­ur­eyð­ingum. Albert sjálfur sat ekki nema í tvö ár á þingi fyrir Borg­ara­flokk­inn, þá var hann gerður að sendi­herra. Þegar Júlíus Sólnes tók við for­yst­unni gekk flokk­ur­inn inn í rík­is­stjórn Stein­gríms Her­manns­sonar. Við það klofn­aði flokk­ur­inn og tveir þing­menn, þ.m.t. Ingi Björn sonur Alberts Guð­munds­sonar, gegnu til liðs við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Borg­ara­flokk­ur­inn bauð ekki fram aftur.

5.Píratar

Í kosn­ing­unum árið 2013 fékk fjór­flokk­ur­inn tæp­lega 75% atkvæða, svipað og í afhroð­inu árið 1987. En flokk­arnir fengu þó 5 fleiri þing­menn þar sem tæp­lega 12% atkvæða fóru til smá­flokka sem náðu ekki 5% mark­inu. Píratar voru við markið alla kosn­inga­nótt­ina og tryggðu sig ekki inn á þing fyrr en sein­ustu töl­urnar voru ljósar, um 8:30 um morg­un­inn. Flokk­ur­inn var stofn­aður árið 2012 að sænskri fyr­ir­mynd og er hluti af alþjóð­legri hreyf­ingu Píra­ta­flokka. Flokk­arnir líta hvorki á sig sem vinstri né hægri flokka og hafa flestir mjög afmörkuð bar­áttu­mál, þ.e. frjáls­lyndi, tján­ing­ar­frelsi, end­ur­skoðun höf­und­ar­réttar, beint lýð­ræði og gagn­sæi í stjórn­kef­inu. Hinir íslensku Píratar fengu 5,1% og 3 þing­menn kjörna sem er lang­besti árangur Píra­ta­flokks í heim­inum.

Enginn annar hefur náð 3%. Ári síðar náði flokk­ur­inn svo manni inn í stjórn Reykja­vík­ur­borgar og leiðin lá bara upp­á­við. Flokk­ur­inn fór með him­in­skautum í skoð­ana­könn­unum og mæld­ist m.a. með 43% fylgi í apríl 2016 eftir að Panama­skjölin komust í deigl­una.

4. Frjálslyndi flokkurinn

Sverrir Her­manns­son, stór­lax úr Sjálf­stæð­is­flokknum og fyrrum ráð­herra, stofn­aði Frjáls­lynda flokk­inn árið 1998. Honum fannst Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafa brugð­ist sér eftir að upp komst um hneyksl­is­mál vegna lax­veiði og ferða­hlunn­inda innan Lands­bank­ans þar sem hann starf­aði sem banka­stjóri. Helsta stefnu­mál flokks­ins var breyt­ing á kvóta­kerf­inu og aukin veiði­gjöld. Í kosn­ing­unum fékk flokk­ur­inn aðeins 4,2% fylgi sem hefði ekki dugað þeim inn á þing. En vin­sæld­irnar á Vest­fjörðum (17,7%) fleyttu Guðjóni Arnari Krist­jáns­syni skip­stjóra og Sverri inn á þing. Sverrir hætti eftir kjör­tíma­bilið og Guðjón leiddi flokk­inn til mik­ils kosn­inga­sig­urs árið 2003, fengu 7,4% og 4 menn kjörna. Fyrir kosn­ing­arnar 2007 voru inn­flytj­enda­mál komin á dag­skrá hjá flokknum. Þeir birtu umdeilda heil­síðu­aug­lýs­ingu þess efnis og fengu mikla gagn­rýni fyrir að ala á ras­isma. Engu að síður unnu þeir mik­inn varn­ar­sigur og héldu sínum 4 mönnum. Á því kjör­tíma­bili tvístrað­ist þing­flokk­ur­inn og í kosn­ing­unum 2009 þurrk­að­ist flokk­ur­inn út af þingi.

3. Björt framtíð

Þegar Besti flokk­ur­inn vann stór­sigur í Reykja­vík í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum árið 2010 vildu margir yfir­færa það á lands­málin. Þar fóru fremst í flokki Heiða Kristín Helga­dóttir vara­for­maður Besta flokks­ins og Guð­mundur Stein­gríms­son, áður úr Sam­fylk­ingu og Fram­sókn­ar­flokki. Árið 2012 var Björt fram­tíð stofnuð með blessun Jóns Gnarr borg­ar­stjóra. Snemma var ljóst að flokk­ur­inn hefði mun mild­ari ásjónu heldur hinn pönk­aði Besti flokkur. Talsmenn Bjartrar fram­tíðar beittu sér fyrir átaka­minni stjórn­málum og að sætta ólík sjón­ar­mið. Flokk­ur­inn var skil­greindur sem miðju­flokkur, frjáls­lyndur og alþjóða­sinn­aður og líkt og hjá Besta flokknum var sér­stök áhersla lögð á mann­rétt­indi. Í þing­kosn­ing­unum árið 2013 fékk Björt fram­tíð 8,2% og 6 þing­menn kjörna. Ári seinna komst flokk­ur­inn í sveit­ar­stjórnir þriggja stærstu sveit­ar­fé­lag­anna (Reykja­víkur, Kópavogs og Hafn­ar­fjarðar) þar sem hann vann bæði til hægri og vinstri. Þegar á leið leit út fyrir að átaka­leysið myndi þurrka þau út af þingi. En sam­kvæmt skoð­ana­könn­unum nú á flokk­ur­inn ágæta mögu­leika að halda velli.

2. Samtök Frjálslyndra og vinstri manna

Þegar breyta átti Alþýðu­banda­lag­inu úr kosn­inga­banda­lagi í form­legan flokk árið 1968 sagði Hannibal Valdi­mars­son, for­seti Alþýðu­sam­bands­ins, sig frá sam­starf­inu. Ári seinna mynd­aði hann sinn eigin flokk, Samtökin, sem voru í dag­legu talið kölluð Hanni­balistar. Í flokknum var mikið af ungu og rót­tæku fólki og þjóð­ern­issinn­uðum her­stöðvaand­stæð­ingum. Samtökin voru sig­ur­veg­arar þing­kosn­ing­anna árið 1971, hlutu tæp 9% fylgi og 5 menn kjörna. Við­reisn­ar­stjórnin féll eftir 12 ára setu og Samtökin mynd­uðu rík­is­stjórn með Fram­sókn­ar­flokki og Alþýðu­banda­lagi. Flokk­ur­inn byrj­aði að lið­ast í sundur á kjör­tíma­bil­inu og skiptu þar mestu deilur um fjár­mögnun Við­laga­sjóðs vegna Vest­mann­eyja­goss­ins. Stjórnin féll og boðað var til kosn­inga 1974. Þá gekk Möðru­valla­hreyf­ingin, rót­tækir ungir Fram­sókn­ar­menn með Ólaf Ragnar Grímsson í broddi fylk­ingar, til liðs við Samtökin en þau töp­uðu samt helm­ing fylg­is­ins.Flokk­ur­inn þurrk­að­ist svo út af þingi í þriðju kosn­ing­unum, árið 1978.

1. Kvennalistinn

Hugmynd um kvenna­fram­boð til alþing­is­kosn­inga kom fram eftir tvö vel heppnuð kvenna­fram­boð til sveit­ar­stjórna Reykja­víkur og Akur­eyrar árið 1982. Árið 1983 bauð Kvenna­list­inn því fram í þremur kjör­dæmum og fékk 5,5% fylgi og 3 menn kjörna. Mark­miðið var að gera við­horf og reynslu kvenna að stefnu­mót­andi afli í sam­fé­lag­inu vegna þess að konur sjái málin frá öðru sjón­ar­horni en karlar. Flokks­starfið var óhefð­bundið og flatt, með engan for­mann, og gras­rótin kom að ákvarð­ana­töku flokks­ins. Flokk­ur­inn vann mik­inn sigur árið 1987 (10,1 % fylgi og 6 þing­menn) en lenti síðan í vörn í kosn­ing­unum 1991 og 1995. Árið 1995 mátti minnstu muna að flokk­ur­inn þurrk­að­ist út. Mestu skipti að aðrir flokkar voru farnir taka við sér í jafn­rétt­is­mál­unum og fjöldi þing­kvenna jókst hratt. Fyrir kosn­ing­arnar 1983 voru 3 konur á þingi en þegar Kvenna­list­inn logn­að­ist út af árið 1999 voru þær orðnar 22. Takmark Kvenna­list­ans var aldrei að kom­ast í rík­is­stjórn heldur að vera aðhald fyrir hina og það tókst þeim sann­ar­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...
Fréttirkosningar2016

Katrín stað­festir við­ræður við Framsókn og Sam­fylk­ingu

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, stað­festir að flokkur hennar hafi átt í óform­legum við­ræðum við Fram­sókn­ar­flokk og Sam­fylk­ingu um félags­legar áherslur sem flokk­arnir þrír geti sam­ein­ast um hvort sem er við stjórn­ar­myndun eða í stjórn­ar­and­stöðu. Hún segir ótíma­bært og ekki við hæfi að svara spurn­ingum um hvort þessir flokkar stefndu á stjórn­ar­mynd­ar­við­ræður við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Frá þessu er greint á mbl.is....
Fréttirkosningar2016

Segir að mis­tök við einka­væð­ingu hafi breytt bönkum í spila­víti

Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, segir að í síð­ustu einka­væð­ingu banka­kerf­is­ins upp úr alda­mót­unum hafi íslenskum bönkum verið breytt í spila­víti, í þeim spilað djarft og Ísland var lagt að veði. Síðasta spilið tap­að­ist og þjóðin sat eftir í rúst­unum. Sú saga megi ekki end­ur­taka sig nú þegar ríkið hugar á ný að sölu á eign­ar­hlutum sínum í bönkum. Þetta kemur...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár