Ísland er ekki með hæstu vexti í heimi

Stað­reynda­vakt Kjarnans skoðar full­yrð­ingu Össurar Skarp­héð­ins­sonar um að á Íslandi séu hæstu vextir í heimi.

„Við teljum að krónan hafi gengið sér til húðar. Hér eru hæstu vextir í heimi,“ sagði Össur Skarp­héð­ins­son, þing­maður og odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík suður, í umræðu­þætti á RÚV um Ísland og umheim­inn á þriðju­dags­kvöld. Össur end­ur­tók þessa full­yrð­ingu í stöðu­upp­færslu á Facebook og aftur í grein sem hann skrif­aði á Kjarnann í gær. Þar sagði: „Á Íslandi eru hæstu vextir í heimi.“

Stað­reynda­vakt Kjarnans ákvað að kanna þessa full­yrð­ingu.

Stýrivextir og húsnæðisvextir

Á Íslandi eru stýri­vextir Seðla­banka Íslands 5,25 pró­sent um þessar mundir. Þetta eru vextir á sjö daga bundnum inn­lánum lána­stofn­ana í Seðla­bank­anum. Þetta eru vissu­lega mun hærri stýri­vextir en víð­ast hvar í Evrópu, til að mynda eru stýri­vextir á evru­svæð­inu 0,00 pró­sent. Í fimm ríkjum í Evrópu eru þeir þó hærri en á Íslandi. Í Hvíta-Rúss­landi eru vext­irnir 18 pró­sent, í Moldóvu 9,5 pró­sent, 10 pró­sent í Rúss­landi, 7,5 pró­sent í Tyrk­landi og 15 pró­sent í Úkraínu. Næst íslensku vöxt­unum eru vextir í Bosníu og Her­segovínu, þar sem þeir eru 5,01%. Víða utan Evrópu eru stýri­vextir enn hærri.

Ef horft er á vexti á íbúða­lánum þá eru óverð­tryggðir vextir á hús­næð­is­lánum hér­lendis 5,9-10,4 pró­sent. Langal­geng­ast er að óverð­tryggðir, bæði fastir og breyti­legir, séu undir sjö pró­sentum.

Verð­tryggðu vext­irnir hér­lendis eru frá 3,15 til 4,5 pró­sent. Við þá bæt­ast vit­an­lega verð­bætur en þær hafa verið lágar á Íslandi um nokkuð langt skeið, enda hefur verð­bólga hér­lendis verið undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miði Seðla­banka Íslands frá því í febr­úar 2014. Tólf mán­aða verð­bólga í dag mælist 1,8 pró­sent.

Vextir hér­lendis eru því afskap­lega háir og mun hærri en í flestum löndum sem við miðum okkur við. Enginn vafi er á því að það er mjög dýrt að taka hús­næð­is­lán hér­lendis og end­ur­greiðsla á því er marg­föld miðað við það sem ger­ist í nágranna­löndum okkar.

Í Þýska­landi (þar sem gjald­mið­ill­inn er evra) eru hús­næð­is­lána­vextir til að mynda 0,89 pró­sent hjá Deutche Bank, stærsta banka lands­ins. Í Noregi (þar sem gjald­mið­ill­inn er norsk króna) eru þeir 1,95 pró­sent hjá Danske Bank. Í Band­arikj­unum er með­al­tal vaxta á hús­næð­is­lánum ýmissa fjár­mála­stofn­anna 2,125 pró­sent. Allir þessir vextir eru óverð­tryggðir, enda verð­tryggð hús­næð­is­lán sér­ís­lenskt fyr­ir­bæri.

Vextir á hús­næð­is­lánum eru þó samt sem áður mun hærri í mörgum löndum en þeir eru á Íslandi. Ef miðað er við algenga óverð­tryggða vexti á Íslandi, sem eru 6,5-7 pró­sent, þá eru hærri vextir í að minnsta kosti 23 löndum. Vextir á hús­næð­is­lánum í Makedóníu eru til að mynda 7,5 pró­sent, á Indlandi eru þeir 9,45 pró­sent, Í Kosovo eru 9,5 pró­sent, Rúss­landi 11,5 pró­sent, Georgíu 14 pró­sent, Tyrk­landi 16,08 pró­sent, Nigeríu 17,9 pró­sent, Pakistan 20 pró­sent og í Úkraínu 22,3 pró­sent.

Niðurstaða Staðreyndavaktarinnar

Það er því nið­ur­staðan að full­yrð­ing Össurar Skarp­héð­ins­sonar um að hér séu hæstu vextir í heimi sé hauga­lygi.

Ertu með ábend­ingu fyrir Stað­­­reynda­vakt Kjarn­ans? Sendu hana á sta­d­­reynda­vakt­in@kjarn­inn.­­­is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...
Fréttirkosningar2016

Katrín stað­festir við­ræður við Framsókn og Sam­fylk­ingu

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, stað­festir að flokkur hennar hafi átt í óform­legum við­ræðum við Fram­sókn­ar­flokk og Sam­fylk­ingu um félags­legar áherslur sem flokk­arnir þrír geti sam­ein­ast um hvort sem er við stjórn­ar­myndun eða í stjórn­ar­and­stöðu. Hún segir ótíma­bært og ekki við hæfi að svara spurn­ingum um hvort þessir flokkar stefndu á stjórn­ar­mynd­ar­við­ræður við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Frá þessu er greint á mbl.is....
Fréttirkosningar2016

Segir að mis­tök við einka­væð­ingu hafi breytt bönkum í spila­víti

Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, segir að í síð­ustu einka­væð­ingu banka­kerf­is­ins upp úr alda­mót­unum hafi íslenskum bönkum verið breytt í spila­víti, í þeim spilað djarft og Ísland var lagt að veði. Síðasta spilið tap­að­ist og þjóðin sat eftir í rúst­unum. Sú saga megi ekki end­ur­taka sig nú þegar ríkið hugar á ný að sölu á eign­ar­hlutum sínum í bönkum. Þetta kemur...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár