Fimm íslensk glæpamál sem yrðu frábærar kvikmyndir

Í októ­ber 2014 var sagt frá því að íslenskir aðilar ynnu að gerð kvik­myndar sem byggir á Lík­fund­ar­mál­inu-svo­kall­aða. Myndin, sem Ari Alex­ander Ergis Magn­ús­son stendur að og á að heita „Undir Hala­stjörnu“, fékk vil­yrði fyrir 80 milljón króna styrk úr Kvik­mynda­sjóði Íslands og á að fara í tökur vet­ur­inn 2016.

Það telst til tíð­inda að gera myndir sem byggj­ast á raun­veru­legum íslenskum glæpum. Und­an­tekn­ingar eru þó frá þeirri reglu. Í kvik­mynd­inni Svartur á leik eru aðal­sögu­hetj­urnar til dæmis látnar fremja glæpi sem eru eft­ir­lík­ing af raun­veru­legum glæpum. Auk þess hafa sjón­varps­þætt­irnir Sönn íslensk saka­mál fjallað um nokkuð mörg glæpa­mál með stakri prýði. Kjarninn tók saman fimm íslensk glæpa­mál sem eiga það öllu sam­eig­in­legt að hand­rit að kvik­mynd um þau myndi skrifa sig sjálft.

5.Pólstjörnumálið: Vafasamasta Íslandsmetið

Í sept­em­ber 2007 sigldi löskuð seglskúta, Pól­stjarnan, inn í Fáskrúðs­fjarð­ar­höfn. Um borð voru tveir menn, Guð­bjarni Trausta­son og Alvar Ósk­ars­son. Skömmu eftir að skútan lagð­ist við höfn­ina byrj­uðu sírenur að blikka, fjöldi sér­sveit­ar­manna stökk fram og hand­tóku menn­ina tvo ásamt þriðja mann­inum sem hafði komið til móts við þá á bíla­leigu­bíl. Síðar kom í ljós að lög­reglan á Íslandi hafði, í samt­arfi við lög­reglu­emb­ætti í öðrum löndum, fylgst með ferðum mann­anna og sam­starfs­manna þeirra frá því í lok árs 2006. Í skút­unni voru alls 23,5 kíló af amfetamíni, tæp 14 kíló af MDMA dufti og 1.746 MDMA töflur um borð í henni. Þetta var stærsta fíkni­efna­smygl Íslands­sög­unnar.

Skútunni hafði verið siglt yfir Atl­ants­hafið af þeim Guð­bjarna og Alvari. Þeir voru þó ekki einir að verki. Auk þeirra voru Einar Jökull Ein­ars­son, sem var ákærður fyrir að skipu­leggja smyglið, Arnar Gúst­afs­son, Bjarni Hrafn­kels­son og Marínó Einar Árnason ákærðir fyrir að taka þátt í glæpnum. Auk þess var einn maður hand­tek­inn og dæmdur í Færeyjum fyrir sína aðkomu að mál­inu. Grunur lék á um að annar höf­uð­paur hefði skipu­lagt og fjár­magnað inn­flutn­ing­inn, en Einar Jökull neit­aði að upp­lýsa um hver það væri. Í rétt­ar­höld­unum spurði dóm­ari máls­ins Einar Jökul að því hvernig honum hefði dottið í hug að fá menn til þess að sigla lít­illi seglskútu út á opið haf í miðjum sept­em­ber? Einar Jökull sagði að það hefði ekki verið mikið mál. „Þetta þolir allan and­skot­ann“.

Menn­irnir voru dæmdir í 18 mán­aða til níu og hálfs árs fang­elsi. Einar Jökull fékk þyngsta dóm­inn.

4. Kio Briggs: ljóðrænt réttlæti

Í sept­em­ber 1998 dúkk­aði risa­vax­inn breskur maður að nafni Kio Alex­ander Ayobam­bele Briggs upp í Leifs­stöð. Hann var að koma frá Benidorm og reynd­ist vera með 2.031 e-töflur í far­angri sínum. Kio hélt því fram að íslenskur maður, Guð­mundur Ingi Þór­odds­son, hefði komið fíkni­efn­unum fyrir í tösk­unni án hans vit­neskju. Guð­mundur Ingi neit­aði því en við­ur­kenndi í vitna­stúku við aðal­með­ferð máls­ins að hafa hringt í lög­reglu­mann á Íslandi og greint honum frá upp­lýs­ingum um fíkni­efna­smyglið í þeirri von að fá ívilnun lög­regl­unnar í öðru máli sem að honum snéri. Þessi aðferð­ar­fræði Guð­mundar var reyndar sér­kenni­leg, þar sem þegar var fall­inn dómur í því máli.

Kio var dæmdur í sjö ára fang­elsi í mars 1999. Ann­markar voru hins­vegar á máls­með­ferð­inni og málið tekið upp aftur. Á meðan gekk Kio laus en sætti far­banni. Hann var mjög áber­andi á Íslandi á þeim tíma. Fór í við­töl, var virkur í skemmt­anna­lífs­sen­unni og tók þátt í krafta­keppnum. Kio var á end­anum sýkn­aður bæði af hér­aðs­dómi og hæsta­rétti og fagn­aði þeirri nið­ur­stöðu gríð­ar­lega. Í kjöl­farið fór hann í mál við íslenska ríkið og krafð­ist 27 millj­óna króna í skaða­bætur fyrir frels­is­svipt­inu. Áður en málið var dóm­tekið hafði Kio hins vegar verið hand­tek­inn á ný, nú í Danmörku, með um 800 e-töflur í fórum sínum. Hann tap­aði mál­inu gegn íslenska rík­inu, var dæmdur til danskrar fang­els­is­vistar og ekk­ert hefur spurst til hans síðan.

3. Grænmetismafían

Á tíunda ára­tugnum var íslenskt við­skipta­líf ekki orðið jafn gos­legt og það varð á þeim fyrsta eftir alda­mót. Íslenskir kaup­sýslu­menn voru ekki orðnir jafn stór­huga í þeim leiðum sem þeir völdu til að kom­ast yfir meiri pen­inga og völd. Helstu brotin sem framin voru á þessum tíma voru sam­ráðs­brot. Og það fyndn­asta var græn­met­is­sam­ráðið.
Árið 1995 náðu Sölu­fé­lag garð­yrkju­manna og tengd fyr­ir­tæki sam­komu­lagi við Ágæti og Mötu um víð­tækt ólög­mætt verð­sam­ráð og mark­aðs­skipt­ingu í við­skiptum sínum með græn­meti, kart­öflur og ávexti. Sam­keppn­is­yf­ir­völd komust síðar að þeirri nið­ur­stöðu að þessir aðilar hefðu myndað með sér nokk­urs konar ein­ok­un­ar­hring með það að mark­miði að draga úr sam­keppni sín á milli og hækka verð á þessum vörum.

Meðal ann­ars hitt­ust Pálmi Har­alds­son, þá fram­kvæmda­stjóri Sölu­fé­lags­ins, og Gunnar Gíslason, fram­kvæmda­stjóri Mötu, á fundi í Öskju­hlíð­inni til að ræða fyr­ir­huguð kaup á sam­keppn­is­að­il­anum Ágæti. Vegna þessa fundar, sem var hald­inn á þessum sér­kenni­lega stað, voru stjórn­endur græn­met­is­geirans kall­aðir „Græn­metis­maf­ían“ í fjöl­miðlum. Það er prýði­legt nafn á illa fjár­magn­aðri B-mynd sem myndi lík­ast til fara beint á spólu. Nokkuð ljóst er að Eric Roberts myndi leika Pálma Har­alds­son.

2. Byrgið: Jesús, ­peningar, kynferðisbrot og kúrekahattur

Guð­mundur Jónsson, síðar ávallt kall­aður Guð­mundur í Byrginu, stofn­aði ásamt öðrum kristi­lega með­ferð­ferð­ar­heim­ilið Byrgið fyrir heim­il­is­lausa vímu­efna­sjúk­linga, spilaíkla og fólk með ýmsar per­sónu­leik­arask­anir í des­em­ber 1996. Guðmundi gekk vel að ota Byrgis­tot­anum og fékk tölu­verða athygli, enda hafði hann sér­stakt útlit. Var með tagl og gekk iðu­lega um með kúreka­hatt.

Þessi elju­semi Guð­mundar leiddi til þess að Byrgið fékk aðstöðu undir starf­semi sína, meðal ann­ars í Rockville á Mið­nes­heiði og síðar á Efri-Brú í Gríms­nesi. Auk þess unnu margir sjálf­boða­liðar fyrir Byrgið og miklir fjár­munir streymdu til þess frá bæði ein­stak­lingum og fyrir­tækjum. Auk þess styrkti rík­is­sjóður Byrgið um að minnsta kosti 226 millj­ónir króna. Vistmenn greiddu þess utan fyrir vist­ina. Fáa grun­aði að pottur væri brot­inn í starf­sem­inni. Hún var meðal ann­ars til­nefnd til Sam­fé­lags­verð­launa Frétta­blaðs­ins árið 2006 og fangar voru vistaðir þar.

Í des­em­ber 2006 var sendur út frétta­skýr­inga­þátt­ur­inn Kompás um Byrgið og ásak­anir á hendur Guðmundi um stór­fellt fjár­mála­mis­ferli og kyn­ferð­is­legt sam­neyti við vist­menn lagðar fram. Guð­mundur harð­neit­aði sök en mán­uði síðar skil­aði Rík­is­end­ur­skoðun úttekt sem sýndi fram á að fjár­munir hefðu sann­ar­lega verið not­aði til einka­út­gjalda. Sama dag var Byrginu lokað. Þá höfðu nokkrar konur sem voru fyrr­ver­andi vist­menn í Byrginu kært Guðmund fyrir kyn­ferð­is­lega mis­beit­ingu og nauðgun. Hann neit­aði þeim ásök­unum einnig en um miðjan jan­úar 2007 lak á netið mynd­band sem sýndi Guðmund og eina kvenn­anna í kyn­lífs­leikjum. Viðbrögð Guð­mundar voru að hóta því að kæra kon­una fyrir nauðgun. Hann sagði hana hafa­byrlað sér smjör­sýru.

Guð­mundur var á end­anum dæmdur í þriggja ára fang­elsi fyrir kyn­ferð­is­brot í starfi. Hæsti­réttur mild­aði dóm­inn um hálft ár. Hann var einnig ákærður og dæmdur fyrir stór­felldan fjár­drátt og umboðs­svik.

1. Líkfundarmálið: Hin íslenska Fargo

Eitt mánu­dags­kvöld í febr­úar 2004 kom Vaidas Jucevicius til Íslands frá Litháen, með milli­lend­ingu í Kaup­manna­höfn. Inn­vortis var hann með 61 pakkn­ingu af metam­fetamíni, alls 223,67 grömm, sem hann hafði gleypt áður en hann lagði af stað. Í Leifs­stöð ætl­uðu þrír menn: Jónas Ingi Ragn­ars­son, Grétar Sig­urðs­son og Tomas Mala­kauskas, að taka á móti honum. Þeir höfðu skipu­lagt smygl fíkni­efn­anna ásamt eit­ur­lyfja­hring í Litháen í nokkur tíma. Jónas hélt á spjaldi með nafni Vaidasar í mót­töku­salnum, en samt fóru þeir á mis. Vaidas kom sér til Reykja­víkur og hitti þar menn­ina, sem óku með hann í rólegt íbúða­hverfi í Kópavogi. Skömmu síðar veikt­ist Vaidas herfi­lega vegna þess að fíkni­efna­pakkn­ing­arnar stifl­uðu mjó­girni hans og gengu ekki niður. Fjórum dögum eftir að hann lenti í Keflavík var Vaidas lát­inn vegna þessa.

Atburða­rásin þar á eftir er ævin­týra­leg. Einn mann­anna stakk upp á því að fjar­lægja efnin úr lík­inu en hinir tóku það ekki í mál. Menn­irnir settu þá lík Vaidasar í plast­poka, vöfðu það í teppi og þeir Jónas Ingi og Tomas óku síðan með það austur á Djúpavog í jeppa sem þeir höfðu leigt. Þar urðu þeir veð­ur­tepptir í tvo daga, með líkið í skott­inu. Ferðinni var heitið á Norð­fjörð, þaðan sem Grétar er. Hann flaug þangað sjálfur. Þegar komið var til Norð­fjarðar var jörð frosin og engin leið að grafa líkið. Menn­irnir ákváðu því að kasta því í sjó­inn, en fyrst stungu þeir það fimm sinnum í þeirri von að líkið myndi sökkva. Þremur dögum síðar var kaf­ari fyrir til­viljun við störf við bryggj­una þar sem Vaidas lá í votri gröf. Skip hafði rek­ist á bryggj­una ein­hverju áður og kaf­ar­inn var að kanna skemmdir á henni. Fyrir algjöra til­viljun fann hann líkið.

Níu dögum eftir að líkið fannst voru Jónas Ingi, Grétar og Tomas hand­teknir. Þeir voru síðar dæmdir í tveggja og hálfs árs fang­elsi hver fyrir inn­flutn­ing á fíkni­efnum, fyrir að koma Vaidasi ekki til aðstoðar í neyð og fyrir illa með­ferð á lík­inu. Jónas komst aftur í frétt­irnar árið 2010 þegar hann var dæmdur í tíu ára fang­elsi fyrir að setja upp í sam­starfi við aðra eina full­komn­ustu amfetamín­verk­smiðju sem fund­ist hefur hér­lendis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Glæpir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár