Morðtíðni eykst hratt í borgum Bandaríkjanna

Morð­tíðni hefur auk­ist hratt í borgum Banda­ríkj­anna að und­an­förnu og er varla nein borg í land­inu þar und­an­skilin. Mesta aukn­ingin er í Milwaukee þar sem 104 morð hafa verið framin á þessu ári en á sama tíma í fyrra voru 59 morð framin. Það er 76 pró­sent aukn­ing milli ára, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá banda­rískum stjórn­völdum sem kynntar voru í morgun.

Aukning mælist mikil í flestu stóru borgum Banda­ríkj­anna. Í Dallas hafa 83 verið myrtir á þessu ári en á sama tíma í fyrra var 71 myrtur. Í Chicago, þar sem flest morð eru framin, hafa 294 ein­stak­lingar verið myrtir á þessu ári en þeir voru 244 á sama tíma í fyrra. Það eru aukn­ing um 20 pró­sent.

Í New York, sem um ára­bil var mesta glæpa­borg Banda­ríkj­anna, eins og Kjarninn fjall­aði ítar­lega um frétta­skýr­ingu 5. ágúst síð­ast­lið­inn, hefur aukn­ingin einnig verið þó nokkur, eða um níu pró­sent á milli ára. Samtals hafa 208 ein­stak­lingar verið myrtir í New York á þessu ári en á sama tíma í fyrra voru þeir 190.

En mik­ill munur er á tíðn­inni þegar kemur að því bera saman stærð borg­anna. Í Milwaukee eru íbúar um 600 þús­und, en í New York 8,4 millj­ónir, svo dæmi sé tekið.

[caption id="attachment_37979" align="alignnone" width="609"] Eins og sést á þess­ari mynd, sem New York Times birti í morgun, hefur mikil aukn­ing verið í flestum stærstu borgum Banda­ríkj­anna. Mynd: New York Times.[/caption]

Félagsleg vandamál vegna versnandi efnahags


Skýr­ing­arnar á aukn­ing­unni eru ekki aug­ljósar, að sögn lög­reglu­yf­ir­valda. En þó telja þau sig greina sam­hengi á milli versn­andi efna­hags íbúa í til­teknum hverfum og auk­inna glæpa og morða. Það er gömul saga og ný, hér í Banda­ríkj­unum, að skýrt sam­hengi sé á milli glæpa og slæmra félags­legra aðstæðna. Eftir langt tíma­bil þar sem morð­tíðni hefur minnkað mikið þá virð­ist sem þró­unin sé að snú­ast við. Og það veldur skilj­an­lega áhyggjum. Garry McCarthy, lög­reglu­stjóri í Chicago, seg­ist ekki vera í neinum vafa um að mikil útbreiðsla á skot­vopnum sé í það minnsta hluti skýr­ing­ar­innar. Eins og Kjarninn fjall­aði um á dög­unum, þá hefur sala á skot­vopnum í Banda­ríkj­unum auk­ist umtals­vert milli ára, og þá einkum á ódýrum byssum, bæði skamm­byssum og stærri vopnum. Hann seg­ist enn­fremur sjá mynstur þar sem illa virð­ist ganga að fylgj­ast með síbrota­fólki. „Þeir sem eru að fremja morðin er ekki fólk sem hefur aldrei áður tengst glæpum. Þetta er sama fólkið og lög­reglu­yf­ir­völd eru að berj­ast við alla daga. Það er umhugs­un­ar­efni fyrir okkur, því við þurfum að finna leiðir til þess að fylgj­ast betur með þeim sem eru oft að brjóta af sér, því ann­ars endar það illa,“ segir McCarthy.

Innanmein sem erfitt er að verjast


Aukin tíðni morða er ekki rakin til gengja bar­daga eða skipu­lagðrar glæp­a­starf­semi að þessu sinni, eins og raunin var vítt og breitt um Banda­ríkin í kringum 1990. Þá blómstr­aði „gengja­menn­ing“ þar sem mis­kunn­ar­lausu ofbeldi var beitt til þess að vernda yfir­ráða­svæði. Hún er ekki eins áber­andi nú og hún var, en almennt er álitið að skipu­lögð starf­semi sé kerf­is­bundn­ari nú en áður og um margt ill­við­ráð­an­legri.

Michael S. Harrison, lög­reglu­stjóri í New Orleans, seg­ist sjá aukn­ingu í glæpum inn á heim­ilum fólks og á þessu ári sú flest morð í hans umdæmi rakin til deilna innan fjöl­skyldna eða vina­hópa. Því miður sé erfitt að verj­ast glæpum sem þessum með betri lög­gæslu, segir hann, en teng­ingin milli ein­angr­unar og versn­andi lífs­af­komu í vissum borg­ar­hlutum í Banda­ríkj­unum virð­ist aug­ljós. „Það þarf mikið átak til þess að snúa svona þróun við,“ segir Harrison í við­tali við New York Times, vitnar til þess að lang­tíma­at­vinnu­leysi hafi auk­ist á vissum svæðum, og því fylgi oft aukin tíðni glæpa og erf­ið­leika. Undir þetta tekur Tom Barrett, borg­ar­stjór­inn í Milwaukee. „Ég, og við stjórn­mála­menn, þurfum að sann­færa unga fólkið um að það hafi hlut­verk í okkar sam­fé­lögum. Það má ekki upp­lifa sig utan­gátta eins og það hafi ekki neitt hlut­verk,“ sagði Barrett.


#Chicago's murder rate is up 20% from last year & is one of many cities nationwide seeing an increase in homicides. http://t.co/zMgsLkFaRb


— The Chicago Reporter (@ChicagoReporter) Sept­em­ber 1, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Glæpir

FólkGlæpir

Fimm íslensk glæpa­mál sem yrðu frá­bærar kvik­myndir

Í októ­ber 2014 var sagt frá því að íslenskir aðilar ynnu að gerð kvik­myndar sem byggir á Lík­fund­ar­mál­inu-svo­kall­aða. Myndin, sem Ari Alex­ander Ergis Magn­ús­son stendur að og á að heita „Undir Hala­stjörnu“, fékk vil­yrði fyrir 80 milljón króna styrk úr Kvik­mynda­sjóði Íslands og á að fara í tökur vet­ur­inn 2016. Það telst til tíð­inda að gera myndir sem byggj­ast á...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár