Walmart tekur morðvopn úr sölu - Byssusala eykst í Bandaríkjunum

Smá­söluris­inn Walmart hefur lengi stært sig af því að selja svo til allt. „Ef það fæst ekki í Walmart þá er það ekki til“ er frasi sem fyr­ir­tækið not­aði um ára­bil til að leggja áherslu á að Walmart væri stað­ur­inn fyrir alla, þar væri hægt að gera svo til öll inn­kaup heim­il­is­ins.

Það er ekki hægt að segja annað en að þessi ímynd hafi skilað sér til neyt­enda. Walmart er risa­vaxið fyr­ir­tæki og stærsti vinnu­veit­andi Norður-Ameríku, það er Banda­ríkj­anna og Kanada, með 2,2 millj­ónir starfs­manna, þar af 1,4 millj­ónir í Banda­ríkj­unum. Heild­ar­tekjur fyr­ir­tæk­is­ins árið 2014 og fram yfir lok jan­ú­ar­mán­aðar á þessu ári námu 482 millj­örðum Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 62 þús­und millj­örðum króna. Til sam­an­burðar nemur árleg lands­fram­leiðsla Íslands um tvö þús­und millj­örðum, og því eru árlegar tekjur Walmart á við ríf­lega þrjá­tíu­falda árlega lands­fram­leiðslu Íslands.

Fyr­ir­tækið heldur úti meira en ell­efu þús­und versl­unum og hefur stór­eflt versl­un­ar­þjón­ustu á inter­net­inu að und­an­förnu og nær hún til 28 landa.

Rétturinn til að selja...allt


Þetta rót­gróna fyr­ir­tæki, sem Sam Walton stofn­aði árið 1962, hefur lengi verið umdeilt hér í Banda­ríkj­unum. Ekki aðeins vegna starfs­manna­stefnu, sem hefur falist í því að borga eins lág laun og hægt er að kom­ast upp með, heldur ekki síður fyrir að berj­ast af hörku gegn öllum tak­mörk­unum sem settar eru á versl­un­ar­þjón­ustu fyr­ir­tæk­is­ins. Þetta á ekki síst við um sölu fyr­ir­tæk­is­ins á byssum, sem nú er komin í hámæli, enn einu sinni. Ástæðan er sú að fyr­ir­tækið ákvað, nokkuð óvænt, að taka úr sölu AR 15 riffla (Assault rifles). Walmart, líkt og Samtök skot­vopna­eig­enda í Banda­ríkj­unum (NRA), hefur til þessa ekki skil­greint AR 15 sem árásariffla heldur flokkað þá sem riffla til afþrey­ingar eða íþrótta­iðk­unar (Sporting rifles) og þá á þeirri for­sendu, að byssur af þess­ari teg­und telj­ist ekki með sjálf­virki hleðslu þó þær séu hálf­sjálf­virkar (Semiautomatic). Þar sé línan dregin þegar komið að skil­grein­ingu á árás­ar­vopnum.

Wal-Mart to stop sell­ing AR-15, other semi-automatic rifles http://t.co/O1v8gkw1xb via @Reuters


— Debby Williams (@dwilliams1210) August 26, 2015

Samtök sem berj­ast gegn aðgengi almenn­ings að hættu­legum skot­vopnum hafa hins vegar lagt áherslu að aðskilja ekki AR 15 riffla, og aðrar byssur sem ekki eru með sjálf­virkri hleðslu, frá árásarifflum. Í raun sé ekki hægt að taka út vopn, sem allir geti verið sam­mála um að sé stór­hættu­legt, og skila­greina það sem vopn sem nota eigi í afþrey­ing­ar­til­gangi. Það sé of mikil ein­földun á stóra sam­heng­inu.

Ekki af ástæðulausu

En það er ekki úr lausu lofti gripið að Walmart er að taka AR 15 riffl­ana úr sölu, jafn­vel þó opin­bera skýr­ingin sé sú að salan hafi ekki staðið undir vænt­ingum. Vopninu hefur verið beitt ítrekað í skotárásum, meðal ann­ars í hrika­legri skotárás á skóla í Newton í Connecticut, þegar hinn tví­tugi Adam Lanza skaut tutt­ugu börn til bana, 14. des­em­ber 2012. Þá not­aði James Holmes vopnið í árás á bíó­gesti í Colorado, 20. júlí 2012. Þá voru tólf gestir á mið­nætu­sýn­ingu um Leð­ur­blöku­mann­inn, Batman: The Dark Knight, myrtir og gerði Holmes til­raun til þess að drepa sjö­tíu til við­bótar, áður en hann gafst upp. Í gær var Holmes form­lega dæmdur til tólf­faldrar ævin­langrar fang­els­is­vistar og sagði dóm­ar­inn, Carlos A. Samour, lög­reglu­stjór­anum sem fylgdi Holmes inn í dóm­sal, að fara fljótt með hann þaðan þungur á brún, eftir að dóm­ur­inn hafði verið kveð­inn upp.

James Holmes gets 12 life sentences in Aurora shootings http://t.co/If7em9NouD pic.twitter.com/Ulun2vEjRP — The New York Times (@nytimes) August 26, 2015

Fleiri byssur í umferð en áður


Byssu­glæpir í Banda­ríkj­unum eru ótrú­lega margir og á fjöld­inn sér engin for­dæmi meðal þró­aðra ríkja. Fyrir hverja milljón íbúa eru 29,7 morð framin á hverju ári. Til sam­an­burðar þykir mjög hátt í öðrum ríkjum ef hlut­fallið fer fyrir tvö morð, en í Þýska­landi er með­al­talið 1,9 morð. Í Svíþjóð og Finn­landi hafa miklar áhyggjur vaknað hjá yfir­völdum á und­an­förnum árum, en þar fór hlut­fallið upp í 4,4 morð árið 2012 í Finn­landi og 4,1 morð í Svíþjóð á sama tíma. Vissu­lega alltof mikið, en samt óra­fjarri því ógn­væn­lega háa hlut­falli sem er í Banda­ríkj­unum.

[caption id="attachment_37648" align="alignnone" width="377"] Þessi mynd birt­ist með umfjöllun fjöl­miðl­is­ins Vox, þegar byssumorð í Banda­ríkj­unum voru til umfjöll­unar. Myndin sýnir fjölda morða á hverja eina milljón íbúa, hjá þró­uðum ríkjum. Mynd: Vox.[/caption]

Byssu­sala hefur auk­ist nokkuð í Banda­ríkj­unum að und­an­förnu og eru upp­lýs­ingar um bak­grunns­eft­ir­lit Alrík­is­lög­regl­unnar (FBI) til marks um það. Í júlí á þessu ári var bak­grunnur kaup­end­anda skoð­aður í 1,6 millj­ónir skipta en á sama tíma í fyrra gerð­ist það í 1,4 milljón skipti.

Tölur um almenna útbreiðslu skot­vopna í Banda­ríkj­unum þykja um margt óáreið­an­legar, þar sem svarti mark­að­ur­inn með skot­vopn er einnig ógn­ar­stór. En sé horft til skráðra skot­vopna þá eru Banda­ríkin alveg sér á báti, nán­ast í sama hlut­falli og með byssu­glæp­ina. Af ríf­lega 640 millj­ónum skráðra skot­vopna í heim­inum, sem eru í eigu almennra borg­ara, þá er um 42 pró­sent af þeim í eigu ein­stak­linga í Banda­ríkj­unum. Í mörgum ríkjum, einkum í mið­ríkj­unum og einnig í suð­ur­hluta Banda­ríkj­anna, þá er venja að fleira en eitt skot­vopn sé á hverju heim­ili.

Smásalarnir geta haft mikil áhrif


Ákvörðun Walmart um að taka úr sölu AR 15 riffl­ana er kannski ekki stórt skref í bar­átt­unni gegn byssu­glæpum, en hún þykir tákn­ræn fyrir þá breyt­ingu sem orðið hefur á við­horfum fólks til byssu­eignar almenn­ings. Það sýna kann­anir, og orð Barack Obama Banda­ríkja­for­seta frá því í sumar, um að „eitt­hvað væri að“ í Banda­ríkj­unum þegar kæmi að með­ferð og útbreiðslu skot­vopna, sýna líka að þetta er að ná eyrum æðstu ráða­manna lands­ins. Nú síð­ast í dag sagði Obama í við­tali við ABC, vegna skotárásar á fjöl­miðla­fólkið Alison Parker og Adam Ward í gær sem leiddi til dauða þeirra beggja, að þetta væri eitt­hvað sem hitti hann í hjarta­stað í hvert sinni sem sagt væri frá atvikum sem þessum. „Það sem töl­urnar segja okkur er að það eru marg­falt fleiri sem deyja í byssu­tengdum glæpum í land­inu heldur vegna hryðju­verka á hverju ári,“ sagði Obama, og tal­aði fyrir því að umræða um byssu­tengda glæpi og byssu­eign almenn­ings fengi jafn mikið vægi og hún ætti skilið á opin­berum vett­vangi. Þetta væri eitt­hvað sem mætti ekki líta fram­hjá að væri inn­an­mein í Banda­ríkj­unum.

Smásalar geta haft mikil áhrif á það hversu mikil útbreiðsla á byssum í Banda­ríkj­unum er. Ýmsir hafa gagn­rýnt að fyr­ir­tæki eins og Walmart, sem hefur svo til allt til sölu, skuli einnig selja margar teg­undir skot­vopna. Við­skipta­legir hags­munir séu ekki svo miklir í stóra sam­hengi hlut­anna og að betur færi á því að tak­marka söl­una við sér­hæfð­ari versl­anir sem almenn­ingur á ekki oft erindi í.

En þetta risa­vaxna fyr­ir­tæki sem jafn­fram er stærsti vinnu­veit­andi Banda­ríkj­anna hefur barist fyrir því með kjafti og klóm að lögin tak­marki ekki rétt fyr­ir­tæk­is­ins þegar kemur að sölu á skot­vopnum. Það sé svo fyr­ir­tæk­is­ins að ákveða hvað sé til sölu á hverju tíma. Kory Lundberg, tals­maður Walmart, árétt­aði þennan skiln­ing í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu í gær og bætti síðan við í sam­tali við Quartz að þessi ákvörðun, um að taka AR 15 riffl­ana úr sölu, byggði ein­ungis á við­skipta­hags­munum Walmart, en vekti lík­lega meiri athygli vegna þess að varan væri tengd umræðu um með­ferð skot­vopna.

https://www.youtube.com/watch?v=YWRpvWAIV0c

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár