Topp 10 – Hættulegustu glæpasamtökin

Skipu­lögð glæpa­sam­tök víða um heim eru rekin eins og stór­fyr­ir­tæki, að við­bættu mis­kunn­ar­lausu ofbeldi og glæpum. Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur kynnti sér helstu glæpa­sam­tök heims­ins.

Skipu­lögð glæp­a­starf­semi er fylgi­fiskur þétt­býl­is­mynd­unar og á því rætur sínar að rekja allt til iðn­bylt­ing­ar­innar. Glæpa­sam­tök eru um margt ólík, bæði milli landa og menn­ing­ar­heima, en öll eiga þau það sam­eig­in­legt að inni­halda með­limi sem kjósa að lifa í bræðra­lagi utan við lög og rétt. Sum sam­tökin hafa mátt muna sinn fífil feg­urri s.s. kól­umbísku eit­ur­lyfja­hringirnir og ítalsk-amer­íska maf­ían á meðan önnur blómstra nú sem aldrei fyrr, t.d. mexíkósku eit­ur­lyfja­hringirnir og rúss­neska maf­ían. Hér eru 10 af vold­ug­ustu og hættu­leg­ustu glæpa­sam­tökum heims í dag.

10. Sun Yee On

Kínversk glæpa­gengi eru kall­aðar þrenn­ingar (tri­ads) þó eng­inn viti nákvæm­lega af hverju. Sun Yee On er ein af fjórum stærstu þrenn­ing­unum, með höf­uð­stöðvar í Hong Kong. Samtökin voru stofnuð í borg­inni árið 1919 en um tíma á sjötta ára­tugnum gerðu þeir út frá Tævan eftir að leið­togi þeirra var rek­inn úr landi. Þó að þrenn­ingar hafi höf­uð­paura og visst stig­veldi þá eru þær mun laustengd­ari sam­tök heldur en t.d. japönsku yakuza sam­tökin. Þrenn­ing­arnar stunda ólög­lega starf­semi af ýmsum toga, s.s. eit­ur­lyfja­sölu og veð­lána­starf­semi en á síð­ari árum hafa þær verið þekktar fyrir að smygla fólki inn til Banda­ríkj­anna. Starf­semi Sun Yee On breytt­ist eftir afhend­ingu Hong Kong til Kína árið 1997. Komm­ún­ista­flokk­ur­inn tók hart á þrenn­ing­unum og margir leið­togar þeirra færðu starf­sem­ina að stórum hluta út fyrir land­stein­ana. Mörg sam­tök fóru að stunda lög­lega starf­semi og ofbeldið minnk­aði. Sun Yee On eru þó langt því frá hættir glæp­a­starf­semi og í dag eru með­lim­irnir um 55 þús­und tals­ins með starf­semi víða um heim.

9. Númeragengið

Pollsmoor fang­elsið í Höfða­borg er alræmdasta fang­elsi Suður Afríku, þekk­ast fyrir að hýsa Nelson Mandela á níunda ára­tugnum. Pollsmoor eru líka höf­uð­stöðvar Núm­era­geng­is­ins svo­kall­aða sem hefur starfað í meira en heila öld. Í raun eru þetta þrjú gengi, þ.e. 26, 27 og 28, en sam­spil þeirra er mikið og það síð­ast­nefnda er nokk­urs konar aðall innan veggja fang­els­ins. Meðlimir starfa einnig utan veggj­anna og í öllum öðrum fang­elsum lands­ins. Fram á níunda ára­tug­inn var starf­semin ein­ungis bundin við fang­elsin. Þá mynd­uðu þeir sam­bönd við stórar eit­ur­lyfjaklíkur utan veggja svo sem Amer­ík­an­ana. Í dag eru flestir með­limir tengdir tveimur klíkum, einni utan veggja og einni innan. Eitt helsta tækið sem Núm­era­gengið beitir til að halda völdum og valda ótta er kyn­ferð­is­of­beldi. Með­lim­irnir beita nauðg­unum á mjög fast­mót­aðan og kerf­is­bundin hátt gegn öðrum föngum. Ef það dugar ekki til að halda þeim und­ir­gefnum er gripið til morða.

8. Albanska mafían

Ein þétt­ustu og þögl­ustu glæpa­sam­tök sem til eru er albanska maf­ían. Mafían ein­kenn­ist af sterkum fjöl­skyldu og ætt­ar­böndum sem kölluð eru klön. Klönin eru mis­stór og mis­valda­mikil, allt frá litlum götu­gengjum upp í alþjóð­lega eit­ur­lyfja­hringi. Þau hafa verið starf­andi síðan á sjötta ára­tugnum og hafa breiðst út um allan heim. Flest þeirra lúta glæpafor­ingja að nafni Daut Kadriovski. Til­tölu­lega lítið er vitað um hans per­sónu­legu hagi annað en það að hann er Makedón­íu­maður af albönskum upp­runa og hefur leitt mafí­una síðan á níunda ára­tugnum. Heróín er ær og kýr albönsku mafí­unnar. Það er keypt frá Afghanistan og nær­liggj­andi löndum og selt í hinum vest­ræna heimi. Talið er að Kadriovski sé stærsti heróín­sali bæði Evrópu og Ameríku. Kadriovski bíttar einnig við suður amer­íska eit­ur­lyfja­hringi á heróíni og kóka­íni. Heróín er þó ekki eina starfs­semi albönsku mafí­unnar. Á sein­ustu árum hefur man­sal færst í auk­ana þar sem ungum stúlkum er rænt og þær neyddar í vændi.

7. Hells Angels

Vít­isengl­arnir skil­greina sig opin­ber­lega sem vél­hjóla­klúbb en fáum dylst hvers konar starf­semi er stunduð innan sam­tak­anna. Eit­ur­lyfja­sala-og smygl, vopna­smygl, fjár­kúg­anir, þjófn­aðir og vænd­is­sala er meðal þess sem er á afreka­skránni hjá þeim. Klúbb­ur­inn var stofn­aður í Kali­forníu árið 1948 af fyrr­ver­andi her­mönnum sem margir hverjir komu úr öðrum vél­hjóla­gengjum. Nafnið Hells Angels er fengið að láni frá banda­rískum flug­her­sveitum. Á sjötta ára­tugnum fengu þeir mikla athygli, sér­stak­lega eftir að kvik­myndin The Wild One kom út árið 1953 með Marlon Brando í aðal­hlut­verki. Þessir útlagar sem keyrðu um í hjörðum þóttu spenn­andi og svalir. Gyll­ingin fór hins vegar af þeim eftir tón­leika­há­tíð­ina Altamont Free árið 1969. Samtökin áttu að sjá um örygg­is­gæslu á svæð­inu en gerðu það ekki betur en svo að nokkur dauðs­föll áttu sér stað. Hells Angels hafa breiðst út um flest vest­ræn ríki og eru þekkt­ustu vél­hjóla­sam­tök heims í . Þeir hafa lengi átt í blóð­ugum deilum við helstu keppi­nauta sína, Banditos og Outlaws.

6. Camorra

Flestir tengja ítölsku mafí­una helst við eyj­una Sikiley en sterk­ustu sam­tökin koma frá hér­að­inu Campania og höf­uð­stað þess Napolí, nefni­lega Camorra. Camorra er eitt af elstu glæpa­sam­tökum heims og byrj­aði sem þjófa­gengi fyrir u.þ.b. 200 árum síðan. Síðan hafa þau dafnað og vaxið þétt og örugg­lega. Camorra er í raun ekki ein heild­stæð sam­tök líkt og flestar aðrar mafíur á Ítal­íu­skaga, heldur laustengt net minni gengja sem eru bundin við ákveðin svæði og fjöl­skyldur. Iðulega koma upp fæð­ar­deilur milli þeirra sem enda oft með blóð­baði. Camorra er ekki orð sem með­lim­irnir nota, frekar O Sistema (kerfið). Tengsl Camorra við stjórn­málin eru sterk. Þau eiga í sam­starfi við marga spillta stjórn­mála­menn og hafa fengið úthlutað ýmsum verk­efnum, t.d. bygg­inga­fram­kvæmdum og sorp­hirðu. Árið 2013 mynd­að­ist upp­lausn­ar­á­stand í Napolí vegna fram­kvæmd sam­tak­anna á sorp­hirðu og úrgangslosun. Camorra er ein arð­bærasta mafía heims með um 500 millj­arða króna í árs­tekjur en starf­semin er þó að mestu bundin við Ítal­íu­skaga.

5. D-Company

Einungis tví­tugur stofn­aði Dawood Ibrahim glæpa­sam­tökin D-Company árið 1976 í Mumbai (þá Bombay) á Indlandi. Samtökin færðu út kví­arnar til Arab­íu­skaga og víðar á níunda ára­tugnum og Ibrahim varð einn vold­ug­asti glæpafor­ingi Asíu. Upp­haf­lega fólst starf­semin aðal­lega í eit­ur­lyfja­sölu og smygli en á tíunda ára­tugnum mynd­uð­ust tengsl við ýmis hryðju­verka­sam­tök, þar á meðal Al-Qaeda. D-Company eru taldir eiga hlut að máli ýmsum hryðju­verkum og til­ræðum í Indlandi og víðar og það náði athygli Banda­ríkja­stjórnar. Ibrahim, sem bjó lengi í Dubai, þurfti að flýja þaðan til Pakistan árið 2003. Þar hefur hann búið síðan undir vernd­ar­væng stjórn­valda sem vilja þó ekki gefa upp stað­setn­ingu hans. Um tíma var hann einn eft­ir­sótt­asti glæpafor­ingi heims en veldi hans rýrn­aði þó ekk­ert. D-Company stunda ekki ein­ungis ólög­lega star­semi og t.d. hafa sam­tökin fram­leitt nokkrar Bollywood kvik­myndir. Í dag hafa sam­tökin starf­semi í Asíu, Afríku og Evrópu.

4. MS-13

Mara Salvatrucha, betur þekkt sem MS-13, byrj­aði sem götu­gengi í Los Angeles seint á níunda ára­tugnum. Upp­runa­lega komu með­lim­irnir frá El Salvador, litlu Mið-Amer­íku­ríki sem telur ein­ungis um 6 millj­ónir íbúa. Þá störf­uðu þeir í skugga stærri gengja á svæð­inu s.s. M-18 sem var aðal­lega sam­sett af Mexíkóum. En þegar stríð milli gengj­anna braust út snemma á tíunda ára­tugnum náðu MS-13 yfir­hönd­inni, aðal­lega vegna þess óbeisl­aða ofbeldis sem með­lim­irnir beittu. Margir þeirra höfðu barist í borg­ara­styrj­öld í heima­land­inu sem geis­aði í meira en ára­tug. Í kjöl­farið stækk­uðu sam­tökin hratt og breidd­ust út um nán­ast öll Banda­ríkin, tug­þús­undir ung­menna frá Mið-Amer­íku­ríkjum á borð við Guatemala, Hondúras og Ník­aragúa bætt­ust við. Sumir voru sendir aftur til heima­land­anna og þar settu þeir upp bæki­stöðvar fyrir MS-13. Alls staðar fyldi þeim geig­væn­legt ofbeldi og morð. Í dag er MS-13 ein allra hættu­leg­ustu glæpa­sam­tök Banda­ríkj­anna.

3. Yamaguchi Gumi

Rætur jap­anskra glæpa­sam­taka sem kall­ast yakuza ná langt aftur í aldir og mörg þeirra tengja sig við forna sam­úræja og útlaga. Vold­ug­asta yakuza heims, Yamaguchi Gumi, byrj­aði hins vegar með hópi hafn­ar­verka­manna í borg­inni Kobe árið 1915. Yamaguchi Gumi var lítið gengi í upp­hafi og hvarf næstum því á stríðs­ár­unum en á ára­tug­unum eftir stríð uxu þau hratt. Hluti af vel­gengni þeirra var stig­veldið innan sam­tak­anna sem virk­aði í raun eins og her. Enginn ágrein­ingur var um stöðu hvers aðila innan þeirra. Síðan þá hafa sprottið upp deilur af og til, t.a.m. stór klofn­ingur árið 2015. [http://wonderfulrife.blogspot.is/2015/08/a-brief-history-of-yamaguchi-gumi-yakuza.html] Þetta hefur valdið Yamaguchi Gumi tölu­verðum vand­ræðum en sam­tökin eru þó enn lang stærsta yakuza lands­ins með nokkra tugi þús­unda með­lima. Talið er að nærri helm­ingur allra yakuza með­lima séu tengdir Yamaguchi Gumi sem hefur starf­semi um allt Japan. Yakuza sam­tökin eru þekkt­ust fyrir veð­lána­starf­semi og fjár­kúgun en í raun kemur mest fjár­magn inn með eit­ur­lyfja­sölu og smygli.

2. Sinaloa hringurinn

Á níunda ára­tugnum urðu mexíkóskir eit­ur­lyfja­hringir milli­liðir fyrir hina mun stærri kollega sína frá Kólumbíu. Þegar veldi Kól­umbíu­mann­ana hrundi um miðjan tíunda ára­tug­inn tóku þeir mexíkósku við sem leið­andi fram­leið­endur og smygl­arar eit­ur­lyfja inn til Banda­ríkj­anna. Sinaloa hring­ur­inn varð til árið 1989 þegar stærsti hringur Mexíkó, Guadala­jara-hring­ur­inn í vest­ur­hluta lands­ins, tvístrað­ist. Leiðtogi hans var Joaquin Guzman, kall­aður El Chapo, sem gerði hring­inn að þeim öfl­ug­asta í land­inu. Lengi vel áttu Sinaloa-menn í stríði við nágranna sína í Tijuana en upp úr 2010 náðu Sinaloa yfir­hönd­inni og nú vinna Tijuana-menn fyrir þá. Sinaloa hring­ur­inn stjórnar stærstum hluta landamæra­svæð­is­ins við Banda­ríkin en þeir smygla mestu norður til Chicago, meira en 2000 km leið. Chicago er þriðja stærsta borg Banda­ríkj­anna og mjög mið­svæðis þannig að faðmur hrings­ins nær yfir gjörvalla Norður Ameríku. El Chapo hefur þrisvar verðið hand­tek­inn og situr nú í fang­elsi í Mexíkó.

1. Solntsevskaya Bratva

Rúss­neska maf­ían fædd­ist í gúlag­inu, afskekktum fanga­búðum í Síberíu og víðar, á fyrstu ára­tugum 20. ald­ar­innar. Starf­semi glæpa­gengj­anna færð­ist fljót­lega út fyrir víra gúlags­ins og eig­in­legt kerfi mynd­að­ist. Kerfið var fast­mótað og ein­kennd­ist af “heiðri meðal þjófa”, þ.e. virð­ingu fyrir hvorum öðrum. Sergei Mik­hailov og Boris Arshavin (Mikhas og Arshas) hristu upp í þessu með stofnun Solnt­sevskaya Bratva í Moskvu um miðjan níunda ára­tug­inn. Þeir litu frekar til vest­rænna glæpa­sam­taka og báru litla virð­ingu fyrir keppni­nautum sínum. Eftir stríð við mafíu Tjétjén­íu­manna í upp­hafi tíunda ára­tug­ar­ins inn­lim­uðu þeir nokkrar aðrar klíkur og urðu ráð­andi á mark­að­inum. Stærsti hluti starf­sem­innar felst í sölu heróíns en veð­lána­starf­semi, man­sal, bíla­þjófn­aðir o.fl. er einnig mjög áber­andi. Eftir fall Sov­ét­ríkj­anna færðu þeir út kví­arnar til Austur-Evrópu, Bret­lands, Banda­ríkj­anna og Ísrael þar sem mik­ill inn­flutn­ingur rúss­neskra gyð­inga átti sér stað. Í dag eru Solnt­setskaya Bratva rík­ustu glæpa­sam­tök heims með nærri 1000 millj­arða króna í árs­tekjur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Glæpir

FólkGlæpir

Fimm íslensk glæpa­mál sem yrðu frá­bærar kvik­myndir

Í októ­ber 2014 var sagt frá því að íslenskir aðilar ynnu að gerð kvik­myndar sem byggir á Lík­fund­ar­mál­inu-svo­kall­aða. Myndin, sem Ari Alex­ander Ergis Magn­ús­son stendur að og á að heita „Undir Hala­stjörnu“, fékk vil­yrði fyrir 80 milljón króna styrk úr Kvik­mynda­sjóði Íslands og á að fara í tökur vet­ur­inn 2016. Það telst til tíð­inda að gera myndir sem byggj­ast á...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár