Stríðið gegn glæpum - Vaxandi áhyggjur í New York

Stríð gegn glæpum hefur verið stjórn­mála­mönnum í Banda­ríkj­unum ofar­lega í huga í meira en 70 ár og reglu­lega fer af stað ný her­ferð sem miðar að því að draga úr glæpa­tíðni og fjölda afbrota. Óhætt er að segja að þetta stríð, sem er fyrst og síð­ast póli­tískur frasi, hafi lengi haft óljósa merk­ingu og mark­mið. Nema að sýna með tölum reglu­lega að allt sé á réttri leið.

Örvæntið ekki


Í vik­unni stóð borg­ar­stjór­inn í New York, Bill de Blasio, frammi fyrir hópi fjöl­miðla­fólks sem spurði í sífellu hvort borg­ar­yf­ir­völd væru aftur að missa tökin á glæpum í borg­inni. Tölurnar sýna að morðum fjölg­aði um 10,9 pró­sent milli ára frá 2013 til 2014, úr 174 í 193. Blasio svar­aði því til að það væri engin ástæða til þess að örvænta, morðum hefði vissu­lega fjölgað en von­andi tæk­ist að fækka þeim aftur og gera borg­ina örugg­ari. Tölurnar fyrir fyrstu tvo mán­uði árs­ins sýndu áfram­hald í fjölgun morða, einkum vegna skotárása. Í jan­úar og febr­úar á þessu ári voru fram 54 morð sam­an­borið við 45 morð í sömu mán­uðum í fyrra. Það er hækkun um 20 pró­sent sem hefur hald­ist áfram á árinu, eins og sést á viku­lega upp­færðum opin­berum skýrslum lög­regl­unnar. Við það til­efni lét Bill Bratton, einn af lög­reglu­stjórum borg­ar­innar, hafa eftir sér að engin ástæða væri til þess að tala um að gömlu dag­arnir væru að koma aftur, en ára­tugum saman var New York mesta glæpa­borg Banda­ríkj­anna.

Breyting eftir 1990


Fyrir 25 árum, árið 1990, var glæpa­tíðni marg­falt meiri í New York en hún er nú. Í raun er hún aðeins brot af því sem hún var, sé litið til tölu­legra upp­lýs­inga og skráðra glæpa. Árið 1991 var sett met, en þá voru framin 2.245 morð í borg­inni og yfir 100 þús­und rán. Nú, tæp­lega 25 árum síðar, eru morðin innan við tíu pró­sent af því sem þau voru og ránin um þrjú pró­sent af því sem áður var.

Rudy Guiliani og baráttan við fjölskyldurnar fimm


Saga glæpa í New York er ekki síst saga bar­áttu við skipu­lagða glæp­a­starf­semi. Fáir hafa barist af meiri krafti gegn henni en borg­ar­stjór­inn, sak­sókn­ar­inn og lög­fræð­ing­ur­inn fyrr­ver­andi, Rudy Guiliani. Við­spyrnan hvað glæp­ina varðar er oft tengt við mál­sókn­ina gegn fjöl­skyld­unum fimm svo­nefndu, sem var stýrt af ítalsk-banda­rískum glæpa­mönnum, þar sem átta hátt­settir mafíu­for­ingjar voru dæmdir í fang­elsi fyrir skipu­lagða glæp­a­starf­semi, morð, man­sal og rekstur leigu­morð­ingja­þjón­ustu fyrir aðra þar á meðal. Mála­rekst­ur­inn stóð yfir frá því í febr­úar 1985 til nóv­em­ber 1986, þegar honum lauk með sekt­ar­dómum. Guiliani var sak­sókn­ari á þessum tíma og ávann sér virð­ingu fólks úr lög­regl­unni og hjá almenn­ingi með fram­göngu sinni og skel­eggum mál­flutn­ingi í dóm­sal.

Árangur sést


Í kosn­inga­bar­áttu hans fyrir því að verða borg­ar­stjóri í New York, árið 1993, var þessi reynsla hans eitt af helstu áherslu­málum, þar sem hann hét því að gera borg­ina örugg­ari og skera upp risa­vaxið svart hag­kerfi borg­ar­innar. Stefna hans, þar sem ein­blínt var á skipu­lagða glæp­a­starf­semi og efl­ingu fræðslu í skólum, skil­aði miklum árangri og árið 1995 var glæpa­tíðni búin að minnka um nærri 60 pró­sent. Frá þeim tíma hefur glæpa­tíðnin haldið áfram að minnka, en nú er hún ekki síst rakin til meiri vel­meg­unar í borg­inni að með­al­tali, blönd­unar milli stétta í hverfum og skólum, og minnk­andi umsvifa skipu­lagðra glæpa­sam­taka, þar sem allt snýst að end­ingu um pen­inga.

Hin hliðin á teningnum


En góðar tölur um minnk­andi glæpi segja ekki alla sög­una. Mikil harka hefur ein­kennt refs­ingar fyrir ýmsa glæpi sem tengj­ast fíknefnum, og hefur föngum fjölgað gríð­ar­lega á und­an­förnum ára­tugum. Ekki aðeins í fang­elsum sem þjón­usta New York borg heldur um öll Banda­ríkin. Barack Obama, for­seti Banda­ríkj­anna, hefur að und­an­förnu vakið athygli á mik­il­vægi þess að ráð­ist verið í end­ur­skipu­lagn­ingu á fang­els­is­starfi í land­inu og rétt­ar­vörslu­kerf­inu sömu­leiðis. Í ræðu sem hann hélt 15. júlí síð­ast­lið­inn sagði hann það slá­andi að einn af hverjum 35 svörtum karl­mönnum í Banda­ríkj­unum væri á hverjum tíma í fang­elsi. Hlut­fallið væri svo einn af hverjum 88 karl­mönnum sem kæmi frá Suður-Ameríku.

Þá væri fjölgun fanga í land­inu á 35 árum vís­bend­ing um að ekki væri verið að fara eftir bestu þekk­ingu á hverjum tíma. Árið 1980 voru 500 þús­und fangar í Banda­ríkj­unum en nú eru þeir 2,2 millj­ónir, og stór hluti þeirra situr inni fyrir fíkni­efna­mis­ferli. Skilaboð Obama voru skýr; rétt­ar­kerfið er ekki eins gott að það ætti að vera.


In 1980, there were 500,000 people in American jails. Today, there are 2.2 million. Many belong. But too many are non­vi­olent off­end­ers.


— Pres­ident Obama (@POTUS) July 14, 2015


Verður næsta stríð stríðið við réttlætið?


Stríðið gegn glæpum er enda­laust og þó áhyggj­urnar í New York, sem lengi vel var tákn­mynd glæpa og ofbeldis langt út fyrir Banda­ríkin, fari vax­andi þá er raun­veru­leik­inn allt annar og betri en hann var á árum áður. En næsta póli­tíska stríð gæti orðið við rétt­lætið, hvorki meira né minna. Þar sem spjótin munu bein­ast að dæmdum glæpa­mönnum og því risa­vaxna sam­fé­lagi fanga sem hefur marg­fald­ast að stærð á skömmum tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Glæpir

FólkGlæpir

Fimm íslensk glæpa­mál sem yrðu frá­bærar kvik­myndir

Í októ­ber 2014 var sagt frá því að íslenskir aðilar ynnu að gerð kvik­myndar sem byggir á Lík­fund­ar­mál­inu-svo­kall­aða. Myndin, sem Ari Alex­ander Ergis Magn­ús­son stendur að og á að heita „Undir Hala­stjörnu“, fékk vil­yrði fyrir 80 milljón króna styrk úr Kvik­mynda­sjóði Íslands og á að fara í tökur vet­ur­inn 2016. Það telst til tíð­inda að gera myndir sem byggj­ast á...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár