Verðandi mæður fresta komu barna til að fá hærra fæðingarorlof

Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra.
Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Dæmi eru um að verð­andi mæður sem áttu að fara í gang­setn­ingu til að koma fæð­ingu af stað hafi frestað fæð­ing­unum fram yfir 15. októ­ber. Ástæðan er sú að þá tekur ný reglu­ferð um fæð­ing­ar­or­lofs­greiðslur gildi sem hækkar hámarks­greiðslu í orlof­inu úr 370 þús­und krónum í 500 þús­und krónur á mán­uði. Mikil ólga er í verð­andi for­eldrum vegna stöð­unnar. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Þar er rætt við tvær verð­andi mæður sem eru langt gengnar. Önnur þeirra, Hildur Guð­munds­dóttir, er gengin 38 vikur og seg­ist vona inni­lega að hún fari ekki af stað fyrir 15. októ­ber, sem er á laug­ar­dag. Það geti skipt hana hund­ruðum þús­unda króna hvort hún eign­ist barn sitt fyrir þann tíma sem reglu­gerðin tekur gildi eða eftir. Í blað­inu er einnig rætt við Evu Rós Ólafs­dóttur sem átti að fara í gang­setn­ingu á morgun, 14. októ­ber. Hún hefur nú frestað henni fram yfir helgi í sam­ráði við lækni af fjár­hags­legum ástæðum. Bæði hafi það mikil fjár­hags­leg áhrif á fjöl­skyldu hennar að fá hærri fæð­ing­ar­or­lofs­greiðslur og haft áhrif á hvort faðir barns­ins geti tekið fullt fæð­ing­ar­or­lof.

Tilkynnt um hækkun fyrir viku síðan

Tilkynnt var um það síð­ast­lið­inn föstu­dag að fæð­ing­ar­or­lofs­greiðslur verða hækk­aðar í 500 þús­und krónur frá og með 15. októ­ber næst­kom­andi. Þetta var sam­þykkt á fundi rík­is­stjórn­ar­innar þann dag, að til­lögu Eyglóar Harð­ar­dóttur félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra.

Hámarks­greiðslur í fæð­ing­ar­or­lofi eru nú 370 þús­und krón­ur, en verða hækk­aðar í 500 þús­und krónur sem fyrr seg­ir. Fæð­ing­ar­styrkur og lág­marks­greiðslur í fæð­ing­ar­or­lofi hækka einnig.

Eygló hafði áður áformað að leggja fram frum­varp til breyt­inga á lögum um fæð­ing­ar­or­lof, sem byggði á til­lögum starfs­hóps sem hún skip­aði árið 2014 til að móta fram­tíð­ar­stefnu stjórn­valda í þessum mál­um. Sam­kvæmt því frum­varpi átti að hækka hámarks­greiðslur í 600 þús­und krón­ur, auk þess sem lengja átti fæð­ing­ar­or­lofið í áföng­um. Þá liggur fyrir frum­varp inni í þing­inu frá þing­flokki Sam­fylk­ing­ar­innar þar sem lagt er til að hámarks­greiðslur hækki í 500 þús­und krón­ur, auk þess sem fæð­ing­ar­or­lof yrði lengt í áföng­um. Það frum­varp hefur verið í vel­ferð­ar­nefnd þings­ins frá því í mar­s.

Kveðið verður á um þessar hækk­anir með reglu­gerð, en ekki með lögum frá Alþingi eins og venjan er. Breyt­ing­arnar eiga að taka gildi 15. októ­ber og gildir aðeins um for­eldra barna sem fæð­ast, verða ætt­leidd eða tekin í var­an­legt fóstur þann dag eða síð­ar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár