Auglýsingastofur og birtingahús vilja RÚV áfram á auglýsingamarkaði

Stærstu aug­lýs­inga­stofur lands­ins og tvö birt­inga­hús segja það bæði aug­lýsendum og neyt­endum í hag að breyt­ingar á fjöl­miðla­mark­aði feli ekki í sér að taka RÚV af aug­lýs­inga­mark­aði.

Ef RÚV hverfur af aug­lýs­inga­mark­aði mun það skerða mögu­leika aug­lýsenda á að ná til neyt­enda. Þetta segja Samband íslenskra aug­lýs­inga­stofa, Birt­inga­húsið og Mediacom, sem hafa sam­an­lagt um helm­ings­mark­aðs­hlut­deild á íslenskum aug­lýs­inga­mark­aði.

SÍA eru sjö stærstu aug­lýs­inga­stofur lands­ins, og Birt­inga­húsið og Mediacom þjón­usta mörg af stærstu fyr­ir­tækjum lands­ins með aug­lýs­inga­birt­ingar. Þau hafa sent frá sér sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu í kjöl­far umræð­unnar um að RÚV verði tekið af aug­lýs­inga­mark­aði, og að breyt­ingar verði gerðar á lög­gjöf til að jafna sam­keppn­is­stöðu fjöl­miðla. Umræð­unni hefur ekki síst verið haldið á lofti af einka­reknum ljós­vaka­miðlum hér á landi, sem meðal ann­ars slökktu á útsend­ingum sínum í sjö mín­útur síð­asta fimmtu­dags­kvöld. 

„Saman hafa sjón­varps- og útvarps­stöðvar RÚV afger­andi mesta viku­lega dekkun ljós­vaka­miðl­anna og gæti brott­hvarf þess­ara stöðva af aug­lýs­inga­mark­aði orðið til þess að neyt­endur verði af mik­il­vægum upp­lýs­ingum um vörur og þjón­ustu,“ segir í frétta­til­kynn­ingu frá SÍA, Birt­inga­hús­inu og Mediacom. Innan SÍA eru sjö stærstu aug­lýs­inga­stofur lands­ins, og Birt­inga­húsið og Mediacom þjón­usta mörg af stærstu fyr­ir­tækjum lands­ins með aug­lýs­inga­birt­ingar.

„Að auki gegna sjón­varps­aug­lýs­ingar mik­il­vægu hlut­verki í vöru­merkja- og ímynd­ar­upp­bygg­ingu fyr­ir­tækja. Það yrði erf­ið­ara fyrir þau að byggja upp virði vöru­merkja sinna þegar þau ná ekki augum og eyrum jafn­margra. Hætta er á að dregið yrði úr fram­leiðslu sjón­varps­aug­lýs­inga sem hefði skað­leg áhrif á fyr­ir­tæki og ein­stak­linga sem hafa tekjur af aug­lýs­inga­fram­leiðslu.“

Það sé hagur íslenskra neyt­enda að aug­lýsendur nái til þeirra með hag­kvæmum hætti en ekki síður að næg fjöl­breytni ríki á aug­lýs­inga­mark­aði og eðli­leg sam­keppni þrí­fist. Sjónvarp og útvarp séu enn áhrifa­miklir aug­lýs­inga­miðlar á Íslandi, en fjöl­miðlaum­hverfið sé að taka hröðum breyt­ingum og það hafi áhrif á rekstr­ar­um­hverfi allra sem með beinum eða óbeinum hætti hafi tekjur af aug­lýs­ingum. „Sam­keppni frá erlendum miðlum er og verður þeim íslensku erfið og mik­il­vægt að leitað verði leiða til þess að auð­velda íslenskum fjöl­miðlum að dafna. Það er aug­lýsendum og neyt­endum í hag að það verði gert án þess að taka sjón­varps- og útvarps­stöðvar RÚV af aug­lýs­inga­mark­aði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

auglýsingar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár