Sigmundur Davíð kom ekki að ákvörðunum um nauðasamninga slitabúa

Fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra kom ekki að stjórn­sýslu­á­kvörð­unum í tengslum við nauða­samn­inga föllnu bank­anna. Hann var hins vegar upp­lýstur og sat kynn­ing­ar­fundi. Félag í eigu eig­in­konu hans er kröfu­hafi í bú föllnu bank­anna þriggja.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson tilkynnti um afsögn sína sem forsætisráðherra 5. apríl í kjölfar Wintris-málsins.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son til­kynnti um afsögn sína sem for­sæt­is­ráð­herra 5. apríl í kjöl­far Wintris-máls­ins. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, kom ekki að stjórn­sýslu­á­kvörð­unum í tengslum við nauða­samn­inga slita­búa föllnu bank­anna. Þær voru teknar af Seðla­banka Íslands og fólust í veit­ingu und­an­þágu frá fjár­magns­höftum. Aðkoma Sig­mundar Davíðs að mál­inu fólst í því að hann „fékk upp­lýs­ingar um stöðu mála og val­kosti á fundum ráð­herra­nefndar um efna­hags­mál og sat kynn­ing­ar­fundi með sér­fræð­ingum úr fram­kvæmda­hópi um losun fjár­magns­hafta og full­trúum í stýrinefnd um losun hafta.“

Þetta kemur fram í svari Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Árna Páls Árna­sonar, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, um aðkomu að samn­ingum við kröfu­hafa og með­ferð slita­búa föllnu bank­anna. Svarið var birt í dag en fyr­ir­spurnin var lögð fram 4. apríl, dag­inn áður en að Sig­mundur Davíð til­kynnti um afsögn sína sem for­sæt­is­ráð­herra.

Í svari sínu segir Bjarni að und­an­þágu­beiðnir slita­búa föllnu bank­anna byggi á nauða­samn­ingum þeirra við kröfu­hafa en ekki samn­ingum við stjórn­völd. Til­teknir aðilar og hópar hafi komið að sam­skiptum við kröfu­hafa og slitabú föllnu bank­anna. Þeir hafi verið starfs­menn fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytis, for­sæt­is­ráðu­neytis og Seðla­banka Íslands, stýrinefnd um losun fjár­magns­hafta, sér­fræð­inga­hópar um losun fjár­magns­hafta og aðir ráð­gjafar, sam­ráðs­nefnd þing­manna og ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál. Allir þessir aðilar hafi und­ir­ritað sér­stakar trún­að­ar­upp­lýs­ingar, þagn­ar­heit, verið bundnir reglum um Stjórn­ar­ráð Íslands og sér­stökum inn­herja­reglum sem settar voru við losun. hafta. Brot gegn við­kom­and­i ­reglum gat þýtt að sá sem framdi það brot ætti yfir höfði sér fang­els­is­vist.

Ekki framkvæmt sérstakt hagsmunamat

Ein spurn­ing Árna Páls snérist um hvernig þess hefði verið gætt að þeir sem komu að mál­inu af hálfu stjórn­valda væru ekki fjár­hags­lega tengdir eða hags­muna­tengdir kröfu­höfum, bæði sjálfir og í gegnum maka eða vensla­menn. Í svari Bjarna segir að við und­ir­bún­ing samn­inga við kröfu­hafa og með­ferð slita­búa föllnu bank­anna hafi ekki verið fram­kvæmt sér­stakt hags­muna­mat heldur hafi verið „á því byggt að þeir sem áttu hlut að máli vikju sæti, teldu þeir sig hafa slík tengsl við kröfu­hafa að það hefði áhrif á hæfi þeirra.“

Ástæða fyr­ir­spurn­ar­innar er sú stað­reynd að panamska félagið Wintris átti kröfur í slitabú Lands­banka Íslands, Kaup­þings og Glitnis upp á sam­tals 523 millj­ónir króna. Sig­mundur Davíð var helm­ingseig­and­i ­fé­lags­ins Wintris Inc. þegar það lýsti kröfum í slitabú föllnu bank­anna ­þriggja. Hann seldi síðan helm­ings­hlut sinn í félag­inu til eig­in­konu sinnar á einn Banda­ríkja­dal 31. des­em­ber 2009. Hún er í dag einn eig­andi þess. Kröf­urnar eru til­komnar vegna skulda­bréfa sem Wintris keypti á bank­anna þrjá fyrir hrun. Sig­mundur Davíð hefur ekki viljað upp­lýsa hvenær nákvæm­lega umrædd skulda­bréf hafi verið keypt.

Fékk upplýsingar og sat kynningarfundi

Árni Páll spurði svo hver raun­veru­leg form­leg aðkoma Sig­mundar Davíðs að þeim samn­ingum sem gerðir voru við kröfu­hafa hafi verið? Í svari Bjarna segir: „Þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra fékk upp­lýs­ingar um stöðu mála og val­kosti á fundum ráð­herra­nefndar um efna­hags­mál og sat kynn­ing­ar­fundi með sér­fræð­ingum úr fram­kvæmda­hópi um losun fjár­magns­hafta og full­trúum í stýrinefnd um losun hafta.[...] For­sæt­is­ráðu­neytið kom ekki að stjórn­sýslu­á­kvörð­unum í tengslum við nauða­samn­ing­ana. Þær voru teknar af Seðla­banka Íslands og fólust í veit­ingu und­an­þága frá fjár­magns­höftum.“

Varðandi störf ráð­herra­nefndar um efna­hags­mál, sem Sig­mundur Davíð sat í, segir Bjarni hana ekki hafa átt neina aðkomu að und­an­þágu­beiðnum slita­bú­anna. „Málefni sem varða losun fjár­magns­hafta á slitabú föllnu bank­anna voru tekin upp með reglu­bundnum hætti á fundum nefnd­ar­innar og kynnt af fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra ásamt sér­fræð­ingum ráðu­neyt­is­ins eða fram­kvæmda­hópi um losun fjár­magns­hafta eftir atvikum. Val­kostir voru ræddir og afstaða tekin til þeirra en ákvarð­anir, sér í lagi um laga­setn­ingu, voru teknar í rík­is­stjórn. Fund­ar­gerðir nefnd­ar­innar liggja fyrir í mála­skrám for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins.“

Varðandi starfs­svið stýri­hóps um afnám hafta segir Bjarni að hún hafi verið skipuð af sér, og að hann hafi sjálfur verið for­maður hennar. „Nefndin hefur það verk­efni að stýra vinnu og til­lögu­gerð um losun fjár­magns­hafta. Tillögur stýrinefnd­ar­innar eru svo ræddar í ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál og eftir atvikum sam­þykktar af rík­is­stjórn. Þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra sat ekki fundi stýrinefndar en sat hins vegar kynn­ing­ar­fundi með ráð­gjöfum ásamt full­trúum í stýrinefnd. Í stýrinefnd­inni sitja ráðu­neyt­is­stjóri for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins og efna­hags­ráð­gjafi for­sæt­is­ráð­herra og ráð­herra­nefnda rík­is­stjórn­ar­innar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Erlent

Guardian segir engan smán­aðan þjóð­ar­leið­toga jafn óhepp­inn og Sigmund

„Af öllum þjóð­ar­leið­tog­unum sem urðu sér til skammar vegna fal­ins auðs á aflandseyjum, þá var eng­inn jafn óhepp­inn og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son. Örvænt­inga­full til­raun hins óheppna for­sæt­is­ráð­herra Íslands við að útskýra und­ir­skrift sína á skjölum Wintris Inc., félags á Bresku Jóm­frú­areyj­unum sem hélt á hlut í einum af föllnu bönkum þjóð­ar­innar, var fest á filmu.“ Svona hefst umfjöllun á vef...
Fréttir

Vill ekki svara því hvort Ólafur Ragnar hafi ætlað að mynda utan­þings­stjórn

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, vill ekki svara spurn­ingum um hverjar hann telur áætl­anir Ólafs Ragnars Gríms­sonar, þáver­andi for­seta Íslands, hafa verið þann 5. apríl síð­ast­lið­inn þegar Sig­mundur Davíð fór skyndi­lega til fundar við hann. Sig­mundur Davíð sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra síðar þann dag. Í við­tali á Útvarpi Sögu í gær var hann spurður hvort hann...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár