SWAPO flokkurinn fær sína verstu útreið en heldur völdum

Hage Geingob, for­seti Namibíu, hlaut end­ur­kjör en fylgi hans hrundi um rúm 30 pró­sentu­stig. SWAPO flokkur hans tap­aði auknum meiri­hluta sem gerir honum erf­ið­ara fyrir að breyta stjórn­ar­skrá.

Hage Geingob
Hage Geingob For­set­inn hlaut end­ur­kjör en tap­aði þó miklu fylgi.

SWAPO flokk­ur­inn í Namibíu tap­aði auknum meiri­hluta sínum í þing­kosn­ingum sem fram fóru á mið­viku­dag. Er þetta minnsta fylgi flokks­ins í kosn­ingum frá því að hann tók við stjórn lands­ins árið 1994. Flokk­ur­inn heldur þó völdum og var for­set­inn Hage Geingob var end­ur­kjör­inn sam­kvæmt nið­ur­stöð­unum sem birtar voru í gær.

Umfjöllun Stund­ar­innar, Kveiks, Wikileaks og Al Jazeera um mútu­greiðslur Samherja til namibískra stjórn­mála­manna til að kom­ast yfir fisk­veiði­heim­ildir vakti gríð­ar­lega athygli í aðdrag­anda kosn­inga í land­inu. Tveir ráð­herrar, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­ann Bern­hardt Esau og dóms­mála­ráð­herr­ann Sacky Shang­hala, sögðu af sér vegna máls­ins og voru þeir báðir hand­teknir ásamt fjórum öðrum.

Í kosn­ing­unum fékk SWAPO flokk­ur­inn 63 sæti á þing­inu, aðeins minna en tvo þriðju sæta, sem hefur gert flokknum kleift að breyta stjórn­ar­skrá lands­ins þrátt fyrir and­stöðu úr öðrum flokkum. Var það mark­mið stjórn­ar­and­stöð­unnar að brjóta á bak þennan aukna meiri­hluta SWAPO flokks­ins sem hefur notið mik­ils meiri­hluta á þing­inu frá 1994 og fékk sitt mesta fylgi í sög­unni í síð­ustu kosn­ingum með 77 af 96 þing­sætum.

Geingob var end­ur­kjör­inn for­seti með 56,3 pró­sent atkvæða í for­seta­kosn­ingum, en fylgi hans í síð­ustu kosn­ingum árið 2014 hafði verið 87 pró­sent. Óháður fram­bjóð­andi, Pandu­leni Itula, hlaut 29,4 pró­sent atkvæða.

„Ég vil þakka Namib­íu­mönnum fyrir að kjósa mig aftur sem for­seta,“ sagði Geingob í yfir­lýs­ingu á laug­ar­dag. „Ég finn fyrir auð­mýkt og lofa að þjóna namibísku þjóð­inni af meiri ástríðu og algjörum ein­hug við að bæta líf íbú­anna til­finn­an­lega. Ég hef heyrt skila­boðin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

19 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár