Fyrrverandi sjávarútvegsráðherrann handtekinn

Útvarps­stöð í Namibíu segir að Bernhard Esau og Ricardo Gustavo séu í haldi lög­regl­unnar vegna mútu­greiðslna Samherja í Namibíu. Lög­reglan leitar nú að þremur öðrum sem tengj­ast mútu­mál­inu.

Fyrrverandi sjávarútvegsráðherrann handtekinn
Esau í haldi lög­regu Bernhard Esau, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namibíu, hefur verið færður til yfir­heyrslu sam­kvæmt útvarps­stöð í Namibíu. Hann sést hér með Þor­steini Má Bald­vins­syni á heim­ili tengda­sonar sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­ans sem er lyk­il­maður í mútu­mál­inu.

Útvarps­stöð í Namibíu greindi frá því fyrr í dag að Bernhard Esau, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namibíu, væri nú í haldi lögegl­unnar þar í landi. Lög­reglan er sögð hafa fært ráð­herr­ann fyrr­ver­andi, Bernhard Esau, til yfir­heyrslu.

Þá mun Ricardo Gustavo, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins Namgomar, einnig vera í haldi sam­kvæmt útvarps­stöð­inni. Gustavo var fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins Namgomar sem Samherji fékk kvóta í gegnum á grund­velli milli­ríkja­samn­ings við Angóla sem gerður var gagn­gert til þess að hægt væri að útvega Samherja meiri kvóta. Fyrir þennan kvóta greiddi Samherji hálfan millj­arð í mútur til skúffu­fé­lags í Dubaí.

Dag­blaðið The Namibian segir einnig frá hand­tök­unum.

Þetta ger­ist í kjöl­far opin­ber­unar upp­lýs­inga um að sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­ann hafi verið einn þeirra sem tók við stór­felldum mútu­greiðslum frá íslenska útgerð­ar­fé­lag­inu Samherja á árunum 2012 til 2019. Stundin greindi frá þessu í sam­starfi við Wikileaks, frétta­skýr­inga­þátt­inn Kveik í Rík­is­sjón­varp­inu og katör­sku sjón­varps­stöð­ina Al Jazeera í síð­ustu viku. 

Eins og kom fram í umfjöll­un­unum hafa félög í eigu Samherja greitt vel á annan millj­arð króna til ein­stak­linga sem eru tengdir sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­anum til að tryggja fyr­ir­tæk­inu aðgang að fisk­veiði­kvóta í land­inu.

Berhard Esau sagði af sér í síð­ustu viku ásamt dóms­mála­ráð­herr­anum Sacky Shangala. 

Einn af mönn­unum sem þegið hafa greiðsl­urnar frá Samherja er James Hatuikulipi, stjórn­ar­for­maður rík­is­fyr­ir­tækis sem heitir Fishcor sem meðal ann­ars úthlutar kvóta til útgerð­ar­fé­laga í land­inu. Annar sem fengið hefur fengið greitt er frændi James og tengda­sonur sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­ans, Tamson „Fitty“ Hatuikulipi. Þriðji mað­ur­inn er fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra Namibíu, Sacky Shangala, sem er einn af höf­uð­paur­unum í skipu­lagn­ingu við­skipt­anna en hann var meðal ann­ars eig­andi að einu fyr­ir­tæki sem fékk greitt frá Samherja. Sá fjórði er svo Mike Nghip­unya, for­stjóri rík­is­fyr­ir­tæk­is­ins Fishcor.

Þeir sem tekið hafa á móti mút­unum frá Samherja sem hafa hætt í opin­berum störfum eftir umfjall­an­irnar eru því Bernhard Esaus, Sacky Shangala og James Hatuikulipi. 

Samkvæmt The Namibian leitar lög­reglan nú þriggja ann­arra aðila sem tengj­ast mál­inu. Lög­reglan vill ekki segja að hverjum hún leitar. Ljóst er að þeir James, Tamson og Sacky eru þeir ein­stak­lingar sem skipu­lögðu mút­urnar  mest af þeim sem því tengj­ast og einnig þeir sem nutu góðs af þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár