McDonalds vinsælasti matur Ólympíufara

Ólymp­íu­í­þrótta­fólk stendur flestum framar þegar kemur að lík­am­legu atgervi, aga og heilsu almennt. En það fer samt á McDonalds eins og aðrir, jafn­vel á Ólymp­íu­leik­unum.

McDonalds er ein þekktasta skyndi­bita­keðja heims, og hefur verið styrkt­ar­að­ili Ólymp­íu­leik­anna um langt skeið. Í krafti þess er McDonalds eini skyndi­bit­inn sem er í boði í Ólymp­íu­þorp­inu í Ríó, þar sem Ólymp­íu­leik­arnir eru nú í algleym­ingi.

Þvert á það sem margir gætu haldið, þá er stað­ur­inn svo vin­sæll að það hefur verið röð út úr dyrum nán­ast allan sól­ar­hring­inn. Biðin eftir afgreiðslu og mat var orðin svo löng að stað­ur­inn brá á það ráð að tak­marka pant­anir hvers og eins við 20 hluti af mat­seðl­inum til þess að stytta bið­ina.

[adspot]

Washington Post fjall­aði ítar­lega um þetta McDonalds æði í síð­ustu viku og síðan þá hefur það vakið athygli í fjöl­miðlum víða um heim. Blaða­maður Washington Post sagði að þetta væri eig­in­lega eini fast­inn í Ólymp­íu­þorp­inu – röðin fyrir utan McDonalds. Þegar hann fór á svæðið og tal­aði við sund­mann­inn Brandon Schuster frá Samóa-eyjum voru 53 á undan Schuster í röð­inni. „Við erum brjóst­um­kenn­an­leg. Það er rign­ing og við erum að bíða í röð eftir McDonalds.“

Time-tíma­ritið fór enn lengra með málið og tal­aði við nær­ing­ar­fræð­ing um áhrifin af McDonalds-áti á íþrótta­fólkið. Nið­ur­staðan er sú að Ólymp­íu­farar hafa hrað­ari efna­skipti og geta höndlað óholl­ust­una miklu betur en við hin. „En það breytir ekki þeirri stað­reynd að þetta er ekki það besta fyrir íþrótta­fólk í keppni,“ segir Dan Benardot nær­ing­ar­fræð­ingur.

Hluti ástæð­unnar fyrir vin­sældum McDonalds er tak­markað mat­ar­úr­val íþrótta­fólks­ins og þjálf­ar­anna. Það er mat­salur í stóru tjaldi og einn veit­inga­staður með brasil­ískum mat, en mat­ur­inn þykir almennt ekki góður. Önnur ástæða er að mat­ur­inn á McDonalds er ókeypis fyrir íþrótta­menn og þjálf­ara, eins og annar matur í þorp­inu, einmitt vegna þess að McDonalds er styrkt­ar­að­ili.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem McDonalds er í boði fyrir Ólymp­íu­í­þrótta­fólk, heldur eru leik­arnir í ár þeir tíundu í röð þar sem skyndi­bita­keðjan er opin­beri skynda­bita­staður Ólymp­íu­leik­anna. Tengslin við Ólymp­íu­leik­ana hófust þó á leik­unum 1968, þegar flogið var með ham­borg­ara til banda­ríska íþrótta­fólks­ins sem keppti á leik­unum í Grenoble í Frakk­landi það ár.

Ein­hverjir hafa beðið þar til þeir hafa lokið keppni með að fá sér ham­borg­ara, líkt og ástr­alski bad­minton-spil­ar­inn Sawan Ser­asinghe sem sjá má á mynd­inni hér að ofan. Aðrir verð­launa sig eftir góðan árangur. En sumir koma bara reglu­lega hvort sem þeir eru enn í keppni eða ekki. „Kín­verska körfu­boltalands­liðið kemur hingað á hverjum degi, allan dag­inn,“ sagði einn starfs­maður McDonalds við blaða­mann Washington Post. „Þeir borða Big Mac klukkan níu á morgn­anna. Það er klikkað.“

Hlaupar­inn Usain Bolt, sem nýverið varð fyrsti mað­ur­inn til að vinna gull­verð­launin fyrir 100 metra hlaup þrenna Ólymp­íu­leika í röð, er aðdá­andi kjúkling­anagg­anna hjá skyndi­bita­keðj­unni, líkt og sjá má hér að neðan. Hann greindi frá því í ævi­sögu sinni árið 2013 að á Ólymp­íu­leik­unum í Kína fyrir átta árum hafi hann borðað um 100 kjúkling­anagga á dag, af þvi að honum þótti kín­verskur matur svo skrýt­inn. Á þeim Ólymp­íu­leikum vann hann þrenn gull­verð­laun og setti heims­met í hverri grein.

Í bók­inni, sem heitir

Faster Than Lightn­ing

, segir þessi heims­met­hafi frá Jamaíku frá því að fyrst um sinn hafi hann borðað 20 nagga kassa í hádeg­is­mat og svo aftur í kvöld­mat. „Næsta dag borð­aði ég tvo kassa í morg­un­mat, einn í hádeg­is­mat og svo nokkra í við­bót á kvöldin. Ég borð­aði meira að segja franskar og epla­böku með." Og eins og sjá má á mynd­inni hér að ofan, sem er tekin af Snapchat-reikn­ingi Bolt, er hann kom­inn á svipað matar­æði á þessum Ólymp­íu­leikum. Bráðum kemur svo í ljós hvort hann slær enn fleiri met á þessum leikum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ríó2016

Pistillríó2016

Ásdís Ólafsdóttir

Hung­ur­leikar alþjóða­sam­fé­lags­ins

Ólymp­íu­leik­arnir eru fyrir alla: Íþrótta­menn sem upp­skera loks ávöxt erf­iðis síns, áhorf­end­urna sem flykkj­ast til fram­andi landa til að hvetja kepp­endur áfram, og okkur sem heima sitjum, með nammi­skál­ina á bumbunni, og fylgj­umst með helstu íþrótta­mönnum heims merja út sigur út á örfá sek­úndu­brot eða ful­kom­lega teygða rist. Á sama tíma eru Ólymp­íu­leik­arnir meira en íþrótta­við­burður. Þeir leiða saman þjóðir...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár