Halló. Ég heiti Vinicius og er mjög skrítið lukkudýr

Lukkudýr Ólymp­íu­leik­anna í Ríó og er stórfurðu­leg fígúra sem minnir helst á Hello Kitty-kött­inn eftir þvott með vit­lausum litum.

Furðulukkudýrið Vinicius í fangi barns.
Furðulukku­dýrið Vinicius í fangi barns. Mynd: EPA

Fyrir öll stærstu íþrótta­mót í heimi hefur orðið til sú hefð að mót­staðnum sé gefið líf með ein­hvers­konar lukku­dýrum sem skemmta börnum og setja svip sinn á hátíð­ar­höldin. Það er engin breyt­ing á þessu á Ólymp­íu­leik­unum í Ríó.

Ólymp­íu­leik­arnir í Ríó hafa átt undir högg að sækja und­an­farna mán­uði vegna ýmissa van­kanta á fram­kvæmd móts­ins. Stjórn­völdum í Brasilíu hafa verið gagn­rýnd harð­lega fyrir að tryggja ekki vatns­gæði á keppn­is­stöðum (sér­stak­lega í róðri), fyrir hús­næði íþrótta­fólks­ins og Zíka-veiru­far­ald­ur­inn sem enn herjar á Brasilíu. Vegna allra þess­ara mála, og fleiri, þá hefur nán­ast ekk­ert verið fjallað um lukku­dýrið.

Við kynnum til sög­unnar lukku­dýr Ólymp­íu­leik­anna í Ríó. Sá er kall­aður Vinicius og er í fyrstu sýn álku­legur köttur sem hefur risið á aft­ur­lapp­irnar og fengið ávalan haus. Hann er ekki ósvip­aður Hello Kitty-kett­inum eftir nokkrar ferðir í þvotta­vél með vit­lausum litum. Á vef lukku­dýr­anna segir að Vinicius hafi „fæðst í gleði­sprengin­unni sem varð þegar Ríó var valin til að halda leik­ana í ár.“

En hönn­uðir Viniciusar, sem nefndur er eftir brasil­ískum tón­list­ar­manni, virð­ast samt hafa leyst verk­efni sitt því upp­skriftin sem þeir fengu í hend­urnar frá móts­stjórn­inni var eitt­hvað sem margir hefðu klórað sér lengi hausnum yfir. Þeir vildu fá blöndu af alls­konar brasil­ískum dýrum og hönn­unin átti að vera inn­blásin af dæg­ur­menn­ingu, tölvu­leikjum og teikni­myndum. Ætli Vinicius sé ekki eðli­leg nið­ur­staða úr þeirri jöfnu.

Ólymp­íulukku­dýr hafa hins vegar í seinni tíð, með örfáum und­an­tekn­ingum, nær öll verið stórfurðu­leg. Ólymp­íu­vefur USA Today tók saman eft­ir­far­andi dæmi af Twitter.

Þessi hér að ofan var lukku­dýr Ólymp­íu­leik­anna í Atlanta í Banda­ríkj­unum 1996. Ómögu­legt virð­ist að skýra til­vist þess.

Áströlsku lukku­dýrin tóku líka mið af ástr­al­skri fánu fyrir leik­ana í Sydney árið 2000.

Það eina breska við lukku­dýrin á leik­unum í London árið 2012 sýn­ist manni í fyrstu vera leigu­bíla­skiltin sem báðar týpur bera á hausnum. Þegar betur er að gáð þá virð­ist hins vegar allt vera breskt við þessar fígúrur enda.

Í Sotsjí árið 2014 voru lukku­dýrin hins vegar bara nokkuð „kjút“ – svona eins og mark­aðs­fígúrur á Kelloggs-morg­un­korn­s­pakka – þar til maður áttar sig á að þau voru auð­vitað líka í spari­bún­ingnum fyrir leik­ana eins og allt annað í kringum þessa dýr­ustu Ólymp­íu­leika sög­unnar.

Fjölbreyttir eins og náttúran

Vinicius er hins vegar ekki eina lukku­dýrið í Ríó því í seinni tíð hefur það tíðkast að hafa tvær týpur. Vinicius á að hafa „eig­in­leika allra brasil­ískra dýra“ en frændi hans Tom verður lukku­dýr Ólymp­íu­leika fatl­aðra. Tom er sam­kurl af fjöl­breyttum plöntum og gróðri sem þrífst í Brasilíu.

Í anda leik­anna þá eiga þessi lukku­dýr að vera til þess að fagna nátt­úruperlunni Brasilíu og fjöl­breyttri nátt­úr­unni. En það er einnig önnur leið til að túlka hlut­verk þess­ara fígúra, eins og sumir net­miðlar hafa kosið að gera. Vinicius og Tom eru sam­blanda af þekkt­ustu teg­und­unum þar í landi en þeir eru einnig áminn­ing um þær fórnir sem færðar eru til þess að halda íþrótta­mót á borð við þetta.

Vegna óhrein­lætis verður róðr­ar­mótið haldið í ein­hvers­konar drullupytti sem Guana­bara-flói var orð­inn. Hrylli­legar myndir bár­ust stuttu fyrir leik­ana af svæð­inu þar sem mótið átti að fara fram og leik­maður velti fyrir sér hvernig það ætti að verða hægt að halda Ólymp­íu­mót innan um ruslið sem fyllti fló­ann. Nú hefur verið hreinsað til þannig að ásætt­an­legt er að keppa í vatn­inu. Ástandið er enn svo slæmt að fólki er ráð­lagt að baða sig ekki í sjónum.

Nokkrum dögum áður en leik­arnir hófust kom í ljós að loft­gæðin í borg­inni Rio de Janeiro voru mun verri en ráð­lagt er af Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­un­inni. Og þetta hefur ekki aðeins áhrif á mann­fólkið sem býr í borg­inni eða sækir leik­ana því dýrin, öll þau sem eru fyr­ir­mynd Viniciusar líða einnig fyrir þennan subbu­skap.

Til þess að Brasilía geti haldið öll þessi mót hafa stjórn­völd sagst þurfa að fella skóga og upp­ræta heim­kynni villtra dýra. Fyrir Ólymp­íu­leik­ana var til dæmis byggður nýr golf­völlur á svæði sem fyrir var ósnert nátt­úra og heim­kynni villtra dýra og plantna. Fyrir heims­meist­ara­mótið í fót­bolta árið 2014 sem haldið var í Brasilíu voru margir fer­kíló­metrar af regn­skóg­inum felldir til að reisa risa­stóran fót­bolta­völl. Inn í miðjum Amazon-frum­skóg­inum.

Vinicius og Tom eru þess vegna ágætis áminn­ing um fjöl­breyti­leika Brasilíu og mik­il­vægi þess að hugsa um umhverfið. Náttúran er ekki bara vist­ar­verur allra dýra­teg­unda og plantna í heim­inum heldur einnig manns­ins. Án nátt­úr­unnar erum við ekk­ert.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ríó2016

Pistillríó2016

Ásdís Ólafsdóttir

Hung­ur­leikar alþjóða­sam­fé­lags­ins

Ólymp­íu­leik­arnir eru fyrir alla: Íþrótta­menn sem upp­skera loks ávöxt erf­iðis síns, áhorf­end­urna sem flykkj­ast til fram­andi landa til að hvetja kepp­endur áfram, og okkur sem heima sitjum, með nammi­skál­ina á bumbunni, og fylgj­umst með helstu íþrótta­mönnum heims merja út sigur út á örfá sek­úndu­brot eða ful­kom­lega teygða rist. Á sama tíma eru Ólymp­íu­leik­arnir meira en íþrótta­við­burður. Þeir leiða saman þjóðir...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár