Ekkert bann gegn öllum Rússum í Ríó

Ákveðið hefur verið að leyfa rúss­neskum íþrótta­mönnum að njóta vafans í RÍó. Allir verða hins vegar að fara í gegnum strangt lyfja­eft­ir­lit. Sér­sam­bönd gætu enn bannað alla Rússa,eins og frjáls­í­þrótta­sam­bandið.

Thomas Bach, formaður alþjóða ólympíunefndarinnar, eftir tilkynninguna í dag.
Thomas Bach, for­maður alþjóða ólymp­íu­nefnd­ar­innar, eftir til­kynn­ing­una í dag. Mynd: EPA

Alþjóða ólymp­íu­nefndin hefur ákveðið að banna ekki alla rúss­neska íþrótta­menn á Ólymp­íu­leik­unum í Ríó sem haldnir verða í næsta mánð­uði. Einstaka íþrótta­menn gætu hins vegar hlotið bann ef sér­sam­bönd ákveða að meina Rússum þátt­töku.

Öllu frjáls­í­þróttaliði Rússa hefur verið bannað að taka þátt á Ólymp­íu­leik­unum eftir að rann­sókn leiddi í ljós víð­tækt lyfja­svindl rúss­nesks frjáls­í­þrótta­fólks. Alþjóða frjáls­í­þrótta­sam­bandið greip til þess ráðs í júní að banna alla rússa frá keppni í frjálsum íþróttum á mót­inu jafn­vel þó að ekki hafi verið sýnt fram á að allir hefðu notað lyf eða hag­rætt líf­sýnum við lyfja­próf­anir. Það er hins vegar undir hverjum og einum íþrótta­manni komið að sýna fram á sak­leysi sitt.

Önnur skýrsla um rann­sókn á lyfja­svindli Rússa á Vetr­ar­ólymp­íu­leik­unum í Sotsjí í Rúss­landi árið 2014 jók svo press­una á alþjóða ólymp­íu­nefnd­ina um að banna alla Rússa frá mót­inu. Sú rann­sókn sýndi fram á að skipun um lyfja­svindl og hag­ræð­ingu líf­sýna kom beint frá íþrótta­mála­ráðu­neyt­inu í Kreml.

Thomas Bach, for­maður alþjóða ólymp­íu­nefnd­ar­innar, hafði áður sagt að honum hugn­að­ist ekki að refsa öllum rúss­neskum íþrótta­mönnum fyrir brot sumra. Fimmtán manna stjórn nefnd­ar­innar tók svo ákvörð­un­ina í dag. Minna en tvær vikur eru í að leik­arnir verða settir í Ríó 5. ágúst.

Nefndinr útskýrir ákvörðun sína þannig að það sé rétt­látt að leyfa þeim íþrótta­mönnum sem ekki hafa verið bendl­aðir við svindl að njóta vafans. Hins vegar verði íþrótta­menn­irnir rúss­nesku að sætta sig við að það gæti verið nauð­syn­legt að meina þeim þátt­töku til þess að vernda trú­verðu­leika ólympískra íþrótta­greina. Þeir sem hafa verið gripnir við lyfja­svindl fá alls ekki að keppa í Rio.

Keppt verður í 28 íþrótta­greinum á Ólymp­íu­leik­unum í Ríó.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ólympíuleikar

Fréttirólympíuleikar

Guð­mundur og danska lands­liðið Ólymp­íu­meist­ari

Danska karla­lands­liðið í hand­bolta varð Ólymp­íu­meist­ari rétt í þessu þegar það lagði Frakka, 28-26, í Ríó. Guð­mundur Guð­munds­son, fyrr­ver­andi lands­liðs­þjálf­ari Íslands, þjálfar danska lands­liðið og var hann að fara í úrslit leik Ólymp­íu­leika í annað sinn frá árinu 2008, þegar hann stýrði íslenska lands­lið­inu til silf­urs. Þetta er í fyrsta skipti sem íslenskur þjálf­ari stýrir karla­lands­liði til sig­urs á Ólymp­íu­leikum...
Erlentólympíuleikar

Rússland hugs­an­lega bannað á Ólymp­íu­leikum

Sér­stakur gerð­ar­dómur fyrir íþróttir hafn­aði áfr­í­un­ar­kröfu rúss­nesku ólymp­íu­nefnd­ar­innar um að öllu rúss­nesku frjáls­í­þrótta­fólki verði bannað að keppa á Ólymp­íu­leik­unum í Río sem hefj­ast í byrjun ágúst. Alþjóða ólymp­íu­nefndin mun kynna ákvörðun sína um hvort bannið muni taka til allra rúss­neskra íþrótta­manna á leik­unum um helg­ina. Tvær sér­stakar rann­sókn­ar­nefndir sem könn­uðu lyfja­mis­ferli rúss­neskra íþrótta­manna hafa komið upp um stór­fellt lyfja­svindl á...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár