Hafna því að búið sé að ákveða að aflýsa Ólympíuleikunum

Þetta er ekki rétt. Þetta er ekki rétt. Þannig hafa svör jap­anskra stjórn­valda sem og aðstand­enda Ólymp­íu­leik­anna í Tókýó verið í dag vegna frétta um að þegar sé búið að ákveða að aflýsa leik­unum. „Ólymp­íu­eld­ur­inn verður kveiktur 23. júlí.“

Leikarnir áttu að fara fram í Tókýó síðasta sumar en var frestað til sumarsins 2021. Hálft ár er nú til stefnu.
Leik­arnir áttu að fara fram í Tókýó síð­asta sumar en var frestað til sum­ars­ins 2021. Hálft ár er nú til stefnu. Mynd: EPA

Óvissa hefur enn og aftur skap­ast um hvort Ólymp­íu­leik­arnir fari fram í Tókýó í ár líkt og ákveðið var er þeim var frestað í fyrra vegna heims­far­ald­urs­ins. Í fréttum The Times og Reuters er vitnað til ónafn­greindra heim­ild­ar­manna um að japönsk stjórn­völd hafi þegar ákveðið að aflýsa leik­unum sem fram eiga að fara í júlí.

Þessum fréttum hafa stjórn­völd í Japan neitað í dag á sama tíma og far­ald­ur­inn er enn útbreiddur víð­ast hvar í heim­inum og gríð­ar­leg óvissa umlykur fram­gang bólu­setn­inga.

[adspot]

For­sæt­is­ráð­herra Japans sagði fyrr í vik­unni að enn væri stefnt að því að halda Ólymp­íu­leik­ana í júlí. Það sama sagði for­seti alþjóða ólymp­íu­nefnd­ar­innar. Í kjöl­farið fóru fjöl­miðlar að kafa ofan í málið og loks birta fréttir af því að ákvörðun um að aflýsa liggi þegar fyrir.

[links]„Enginn vill vera fyrstur til að segja það en allir eru sam­mála um að þetta yrði of erfitt,“ hefur Times eftir heim­ild­ar­manni sem sagður er hátt­settur innan japönsku stjórn­sýsl­unnar. „Per­sónu­lega held að það verði ekki af þeim.“

Frétt­irnar voru fyrst birtar í morgun og tals­maður japönsku rík­is­stjórn­ar­innar hafn­aði þeim þegar í stað. „Það er ekk­ert sann­leiks­korn í frétt­inni,“ sagði hann á blaða­manna­fundi.

Í frétt­inni er einnig sagt að japönsk stjórn­völd og skipu­leggj­endur leik­anna í Tókýó ætli að reyna að tryggja sér leik­ana árið 2032, næstu leika sem eru „á lausu“.

Mikill meiri­hluti almenn­ings í Japan er á því að hætta eigi við leik­ana. Í könnun sem gerð var í des­em­ber af rík­is­út­varp­inu NHK voru aðeins 27 pró­sent aðspurðra fylgj­andi því að halda þá í sumar. Sú könnun var gerð áður en ný bylgja far­ald­urs­ins skall á í land­inu. Síðustu daga hafa verið að grein­ast yfir 6.000 til­felli á dag. Á þriðju­dag lét­ust í fyrsta sinn yfir hund­rað manns á einum degi vegna COVID-19.

Slúðurfréttir eða afneitun?

Borg­ar­stjóri Tókýó vís­aði fréttum um að leik­unum verði aflýst á bug í dag og sagði að engar slíkar við­ræður hefur farið fram. Enn sé stefnt að því að halda leik­ana.

Aðstand­endur leik­anna segja „slúð­ur­fréttir“ á borð við þessar mjög óheppi­legar þar sem þús­undir íþrótta­fólks um allan heim séu að und­ir­búa sig fyrir þátt­töku. Stjórn­ar­and­staðan á jap­anska þing­inu segir hins vegar að óvissan sé þegar til staðar og því betra að taka ákvörðun fyrr en síðar.

Ástr­alskir fjöl­miðlar hafa greint frá því í dag að for­sprakkar ólymp­íu­nefndar þar í landi segi „orðróm­inn“ ekki eiga við nein rök að styðj­ast. „Ólymp­íu­eld­ur­inn verður kveiktur 23. júlí 2021,“ sagði Matt Carroll, for­maður áströlsku nefnd­ar­innar í morgun.

Neyðarástand í Tókýó

Fleiri lands­nefndir hafa tjáð sig í morgun. Bæði banda­ríska nefndin og sú kanadíska til­kynntu á Twitter að þær hefðu engar upp­lýs­ingar fengið um að til greina komi að fresta leik­unum.

Neyð­ar­á­standi hefur verið lýst yfir í Tókýó og fleiri borgum og landa­mærum Japans lokað fyrir ferða­mönnum vegna þriðju bylgju far­ald­urs­ins sem nú gengur yfir.

„Núna höfum við ekki nokkra ástæðu til að halda að Ólymp­íu­leik­arnir í Tókýó verði ekki settir þann 23. júlí á ólymp­íu­leik­vang­inum í Tókýó,“ hefur Reuters eftir Thomas Bach, for­seta alþjóða ólymp­íu­nefnd­ar­innar.

Sex mán­uðir eru til stefnu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár