Airbnb veldur vandræðum á fasteignamarkaði

Vaxta­verkir Airbnb eru orðnir aug­ljósir víða um heim. Sér­stak­lega eru borg­ar­yf­ir­völd víða farin að þrengja mögu­leika á leigu íbúða til ferða­manna.

Leigu­miðlun á hús­næði í gegnum vef­síð­una Airbnb er víða farin að valda vand­ræðum á fast­eigna­mark­aði. Ástæðan er sú að fjöl­margar íbúðir, einkum mið­svæðis í borgum, hverfa af mark­aði sem heils­árs búsetu eignir, og eru þess í stað not­aðar sem leigu­hús­næði fyrir ferða­menn til skamms tíma. Þróunin hefur verið hröð, og hafa borgir víða um heim nú gripið til aðgerða til þess að sporna við nei­kvæðum áhrifum, sem eru einkum mikil hækkun fast­eigna­verðs þar sem fram­boð af eignum til lang­tíma­bú­setu minnkar á meðan eft­ir­spurnin eykst stöðugt.

Í umfjöllun Lauren Comiteau, blaða­manns breska rík­is­út­varps­ins BBC, rekur hún hvernig útleiga á hús­næði hennar í Amster­dam skipti sköpum fyrir hana sjálfa. Hún gat náð sér í umtals­verða fjár­muni með því að leigja íbúð­ina út í skamms tíma, dætrum hennar til ama, þar sem þær þurftu að yfir­gefa íbúð­ina þegar hún var leigð út. Amster­dam var með fyrstu borgum í Evrópu til að búa til reglu­verk, sem tak­mark­aði mögu­leika til útleigu í gegnum Airbnb við 60 daga á ári og aðeins til fjög­urra ein­stak­linga að hámarki. Það var árið 2014 en margar borgir hafa fylgt í kjöl­farið, og enn fleiri, bæði í Banda­ríkj­unum og Asíu, er með reglu­verkið í sífelldri end­ur­skoðun og hafa borist fregnir af því að mögu­lega verði útleiga á íbúðum veru­lega tak­mörkuð eða jafn­vel bönnuð, frá og með næsta ári, í mörgum borgum Banda­ríkj­anna.

Comiteau vitnar meðal ann­ars til Reykja­víkur, og segir að þar hafi margir þurft að yfir­gefa íbúðir sínar þar sem eig­endur sjái mikil gróða­tæki­færi í því að leigja þær til skamms tíma til ferða­manna.

Skapar vandamál

Borg­ar­yf­ir­völd í Berlín hafa þegar gripið til aðgerða vegna Airbnb og hafa ein­fald­lega bannað útleigu á íbúðum í gegnum vef­síð­una, á ákveðnum svæðum í borg­inni, einkum mið­svæðis. Rökin fyrir þeirri ákvörðun eru þau, að umfang útleigu á íbúðum hafi verið orðið svo mikið að það var farið að hafa nei­kvæð áhrif á fast­eigna­markað og tekið út þús­undir íbúða fyrir heils­ár­sí­búa, bæði leigj­endur og kaup­endur. Þá hafi kvart­anir frá fólki sem býr í grennd við íbúðir sem hafa verið leigðar til ferða­manna verðir algengar. Í grunn­inn var þetta líka spurn­ing um skipu­lags­mál, þar sem íbúða­hverfi í mið­borg­inni eru skipu­lögð sem heils árs búsetu­svæði fyrir fólk jafn­vel í grennd við blóm­legt atvinnu­líf og skóla. Útleiga á íbúðum til ferða­manna á þessum svæðum fer illa saman við þessar áherslur.

Ísland er vinsælt hjá Airbnb

Ísland er feyki­lega vin­sælt á vef Airbnb. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru tæp­lega þrjú þús­und íbúðir til útleigu, og eru þær lang­flestar mið­svæðis í Reykja­vík. Þetta hefur þegar skapað vanda­mál þar sem íbúðir hafa horfið af mark­aði til heils árs búsetu, en ný lög­gjöf, sem tak­markar útleigu við 90 daga á ári, á að vinna gegn nei­kvæðum áhrifum. Lög­gjöfin kemur hins vegar seint þar sem stöð­ugur vöxtur hefur verið í þess­ari skamm­tíma­leigu und­an­farin fimm ár.

Á lands­byggð­inni er svip­aða sögu að segja, en víða um landið eru íbúðir til leigu fyrir ferða­menn til skamms tíma. Sem dæmi eru tæp­lega 80 íbúðir og her­bergi til leigu á Húsavík og í nágranna­sveitum, en þar fara um 80 þús­und manns í hvala­skoðun yfir sum­ar­mán­uð­ina.

Heild­ar­yf­ir­leit um fjölda íbúða á vef Airbnb, sem eru til leigu á Íslandi, liggur þó ekki fyrir og er ekki gefið upp á vefnum. Ljóst er þó að íbúð­irnar eru í það minnsta vel á fjórða þús­und um allt land.

Airbnb var stofnað árið 2008 en hefur vaxið hratt, og er félagið nú metið á um 25 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um þrjú þús­und millj­arða króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fasteignamarkaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár