Hart verður barist um efstu sætin í prófkjöri Pírata fyrir Reykjavíkurkjördæmin

Að minnsta kosti fjórir ætla að gefa kost á sér til að leiða lista Pírata í Reykja­vík. Birgitta Jóns­dóttir ætlar að halda áfram og Jón Þór Ólafsson er að íhuga fram­boð.

Þingmennirnir Ásta Guðrún Helgadóttir og Birgitta Jónsdóttir vilja halda áfram á Alþingi. Helgi Hrafn Gunnarsson ætlar hins vegar að segja skilið við pontuna.
Þing­menn­irnir Ásta Guðrún Helga­dóttir og Birgitta Jóns­dóttir vilja halda áfram á Alþingi. Helgi Hrafn Gunn­ars­son ætlar hins vegar að segja skilið við pont­una. Mynd: Birgir Þór

Hart verður barist um odd­vita­sætin hjá Pírötum í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum. Að minnsta kosti fjórir gefa kost á sér í próf­kjöri til að leiða listana, að frá­taldri Birgittu Jóns­dóttur, og fyrr­ver­andi þing­mann­inum Jóni Þóri Ólafs­syni. Birgitta ætlar að gefa kost á sér en hefur ekki gefið upp í hvaða sæti þó að lík­legt verði að telj­ast að hún muni leiða list­ann í öðru hvoru kjör­dæm­inu og Jón Þór er að íhuga fram­boð á ný.

Að minnsta kosti fjórir vilja oddvitasætið

Meðal þeirra sem hafa form­lega gefið kost á sér til að leiða listana í Reykja­vík eru Ásta Guðrún Helga­dóttir, sem tók við sem þing­maður eftir að Jón Þór hætti síð­ast­liðið haust, Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, Arnaldur Sig­urðs­son og Olga Margrét Cilia. Þór­hildur Sunna gefur einnig kost á sér til að leiða list­ann í Kraganum. Smári McCarthy mun að öllum lík­indum leiða í Suð­ur­kjör­dæmi.

Úr Hreyfingunni í Pírata

Í síð­ustu viku gaf Þór Saari, fyrr­ver­andi þing­maður Hreyf­ing­ar­innar, út að hann væri geng­inn til liðs við Pírata. Gunnar Hrafn Jónsson, fyrr­ver­andi frétta­maður á RÚV, til­kynnti fyrr í mán­uð­inum að hann hafði sagt upp störfum á frétta­stof­unni til að snúa sér að starfi flokks­ins. Hann sæk­ist eftir öðru sæti á lista í öðru hvoru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu.

Dramatík á Norðurlandi

Gunnar Hrafn er ekki eini fjöl­miðla­mað­ur­inn sem hefur leitað til Pírata, því rit­stjór­inn fyrr­ver­andi, Björn Þor­láks­son, gaf kost á sér til að leiða lista flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi.
Hann hafn­aði þó í sjö­unda sæti í próf­kjöri og sagði sig frá starf­inu í kjöl­farið. Hann sak­aði flokk­inn á Norð­ur­landi um klíku­skap og að leynd hefði hvílt yfir próf­kjör­inu. Þá greindi Björn frá því að hann hafði verið kærður fyrir brot á siða­reglum rétt eftir að kosn­ing í próf­kjöri hófst, en viku áður en úrslit látu fyrir. Nefnd innan Pírata sem tók málið fyrir vís­aði kærunni frá að lok­inni skoðun.

Helgi hættir sáttur

Eins og fram hefur komið ætlar Helgi Hrafn Gunn­ars­son að segja skilið við Alþingi eftir þetta kjör­tíma­bil. Hann sagði í við­tali við Kjarnann í febr­úar að hafði í raun engan áhuga á að vera þing­maður eða ráð­herra. Hann sagð­ist einnig dauð­öf­unda Jón Þór, sem hafði sagt skilið við þingið eftir tvö kjör­tíma­bil og snúið sér að mal­bikun og stöðu­mæla­vörslu. 

Stærsti flokkurinn

Píratar eru að mæl­ast með í kring um 27 pró­senta fylgi og hafa verið með mest fylgi í skoð­ana­könn­unum und­an­farið. Þó hefur mun­ur­inn á fylgi flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins oft reynst ómark­tækur, en sam­kvæmt síð­ustu Kosn­inga­spá eru Píratar með 27,3 pró­senta fylgi og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn með 23,6 pró­sent. Sam­eig­in­legt próf­kjör Pírata fyrir Reykja­vík­ur­kjör­dæmin og Kragann fara fram dag­ana 2. til 12. ágúst. Nið­ur­stöður liggja fyrir 12. eða 13. ágúst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...
Fréttirkosningar2016

Katrín stað­festir við­ræður við Framsókn og Sam­fylk­ingu

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, stað­festir að flokkur hennar hafi átt í óform­legum við­ræðum við Fram­sókn­ar­flokk og Sam­fylk­ingu um félags­legar áherslur sem flokk­arnir þrír geti sam­ein­ast um hvort sem er við stjórn­ar­myndun eða í stjórn­ar­and­stöðu. Hún segir ótíma­bært og ekki við hæfi að svara spurn­ingum um hvort þessir flokkar stefndu á stjórn­ar­mynd­ar­við­ræður við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Frá þessu er greint á mbl.is....
Fréttirkosningar2016

Segir að mis­tök við einka­væð­ingu hafi breytt bönkum í spila­víti

Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, segir að í síð­ustu einka­væð­ingu banka­kerf­is­ins upp úr alda­mót­unum hafi íslenskum bönkum verið breytt í spila­víti, í þeim spilað djarft og Ísland var lagt að veði. Síðasta spilið tap­að­ist og þjóðin sat eftir í rúst­unum. Sú saga megi ekki end­ur­taka sig nú þegar ríkið hugar á ný að sölu á eign­ar­hlutum sínum í bönkum. Þetta kemur...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár