Fleiri kjósa nú en í síðustu forsetakosningum

KJörsókn er betri í núver­andi for­seta­kosn­ingum heldur en þeim sem voru 2012. Klukkan 17 höfðu rúm­lega 40 pró­sent kosn­inga­bærra kosið í Reykja­vík.

Kjósendur hafa staðið sig vel í dag og er kjörsókn ívið betri en í fyrra í mörgum kjördæmum.
Kjós­endur hafa staðið sig vel í dag og er kjör­sókn ívið betri en í fyrra í mörgum kjör­dæmum. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Kjörsókn í Reykja­vík er tölu­vert meiri nú en hún var í for­seta­kosn­ing­unum árið 2012. Klukkan 17 í dag voru rúm­lega 40 pró­sent kosn­inga­bærra búnir að kjósa. Það sama á við um Kragann, er fram kom í fréttum RÚV klukkan 18. Þetta á við um mörg kjör­dæmi, en á nokkrum stöðum virð­ist kjör­sókn vera svipuð nú og fyrir fjórum árum.

Fyrstu tölur verða kynntar á ell­efta tím­anum í kvöld. Kosn­inga­vaka RÚV hefst í sjón­varpi, útvarpi og á vef klukkan 22.

Allir for­seta­fram­bjóð­endur eru búnir að kjósa. Guðni Th. Jóhann­es­son var fyrstur, klukkan 10 í morgun á Sel­tjarn­ar­nesi, og Guðrún Margrét Páls­dóttir var síð­ust, klukkan 16 í Fjöl­braut­ar­skól­anum í Garðabæ.

Rúmlega 254 þús­und manns eru á kjör­skrá á land­inu öllu. Kjör­staðir opn­uðu klukkan 9 í morgun og loka flestir klukkan 22 í kvöld, en sums staðar loka þeir fyrr. Hægt er að sjá hvar kjör­staðir eru á síð­unni Kosning.is.

Hér má fylgj­ast með kjör­sókn í Reykja­vík á hverjum klukku­tíma. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár