Píratar kæra forsetakosningarnar

Þrír hafa lagt fram kæru til Hæsta­réttar vegna utan­kjör­fund­ar­at­kvæða­greiðslu fyrir for­seta­kosn­ing­arnar. Tveir eru virkir í starfi Pírata. Það er gert á grund­velli þess að end­an­legur listi fram­bjóð­enda lá ekki fyrir þegar atkvæða­greiðsla hófst.

Kosning utan kjör­fundar í for­seta­kosn­ing­unum hefur verið kærð til Hæsta­réttar. Þrír karl­menn standa að kærunni, þeir Bjarni V. Bergmann, Þórólfur Dagsson og Björn Leví Gunn­ars­son. Þórólfur er kapteinn Pírata á Suð­ur­nesjum og Björn Leví er vara­þing­maður flokks­ins. Vísir greinir frá kærunni.

Þar segir að kæran snúi að þeim hluta utan­kjör­fund­ar­at­kvæða­greiðslu sem var gerð frá 30. apríl 2016 fram til 25. maí 2016, eða þegar inn­an­rík­is­ráðu­neytið aug­lýsti hverjir væru lög­legir fram­bjóð­endur til kjörs for­seta Íslands, segir í til­kynn­ingu.

Samkvæmt kærunni og Vísir greinir frá bygg­ist kæran á því að það hafi ekki sam­ræmst ákvæðum laga nr. 36/1945 um fram­boð og kjör for­seta Íslands að hefja utan­kjör­fund­ar­at­kvæða­greiðslu áður en upp­lýs­ingar lágu fyrir um hvaða ein­stak­lingar hefðu skilað inn lög­legu fram­boði. Listi yfir nöfn lög­legra fram­bjóð­enda var ekki birtur fyrr en 25. maí. Þre­menn­ing­arnir segja í til­kynn­ingu að það sé mik­il­vægt fyrir kjós­endur að geta tekið upp­lýsta ákvörðun um hvernig þeir ráð­stafa atkvæðum sínum á grund­velli traustra og lög­mætra upp­lýs­inga um hverjir séu raun­veru­legir og lög­legir fram­bjóð­endur í kosn­ing­unum, segir Vísir, sem vitnar í til­kynn­ingu frá kærendum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár