Þurfa 2,4% af Guðna á dag til að vinna

Guðni Th. Jóhann­es­son nýtur stuðn­ings meira en helm­ings kjós­enda í emb­ætti for­seta Íslands, sam­kvæmt kosn­inga­spánni.

Guðni Th. Jóhannesson mælist með mest fylgi allra frambjóðenda.
Guðni Th. Jóhann­es­son mælist með mest fylgi allra fram­bjóð­enda. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ætli Davíð Oddsson, Andri Snær Magnason eða Halla Tóm­as­dóttir að vinna Guðna Th. Jóhann­es­son, sagn­fræð­ing, í for­seta­kosn­ing­unum þurfa að minnsta kosti 2,4 pró­sentu­stig af fylgi Guðna að flytj­ast til ann­ars fram­bjóð­anda á dag fram til kosn­inga eftir átta daga. Guðni hefur tapað 60,4 pró­sent stuðn­ingi niður í 53,4 pró­sent síðan um mán­að­ar­mót.

Á mynd­inni hér að ofan hefur þessi sviðs­mynd verið sett fram til útskýr­ingar. Miðað við þá þróun sem hefur orðið á fylgi fram­bjóð­enda í kosn­inga­spánni verður að telj­ast ólík­legt að þetta verði raunin.

Aðeins fimm pró­sentu­stig skilja að for­seta­fram­bjóð­end­urna Davíð Oddsson, Andra Snæ Magnason og Höllu Tóm­as­dóttur í kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar. Guðni Th. Jóhann­es­son nýtur ennþá stuðn­ings meira en helm­ings kjós­enda sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spánni en tapar fylgi síðan síð­ast.

Bæði Guðni og Davíð tapa tveimur til þremur pró­sentu­stigum milli þess sem kosn­inga­spáin var gerð í síð­ustu tvö skipti; 14. júní og 16. júní. Bæði Andri Snær og Halla virð­ast vera að sækja þennan stuðn­ing af Guðna og Davíð. Kosið verður 25. júní.

[adspot]

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, mælist nú með 16,2 pró­sent fylgi og fellur úr 18 pró­sent­unum sem hann hafði síð­ast þegar kosn­inga­spáin var gerð. Andri Snær Magnason, rit­höf­undur, er nú með 13,6 pró­sent fylgi, það mesta sem hann hefur mælst með síðan kosn­inga­spáin var gerð fyrst fyrir for­seta­kosn­ing­arnar 13. maí. Halla Tóm­as­dóttir, athafna­kona, hefur jafn­framt ekki mælst með jafn mikið fylgi. Hún nýtur nú stuðn­ings 11,8 pró­sent kjós­enda sam­kvæmt kosn­inga­spánni. Til sam­an­burðar var hún aðeins með 2 pró­sent 13. maí.

Sturla Jónsson, bíl­stjóri, mælist enn með meira en tvö pró­sent fylgi og fengi 2,5 pró­sent atkvæða ef gengið yrði til kosn­inga nú. Ástþór Magn­ús­son fengi eitt pró­sent, Elísabet Jök­uls­dóttir fengi 0,9 pró­sent, Guðrún Margrét Páls­dóttir fengi 0,4 pró­sent og Hildur Þórð­ar­dóttir fengi 0,2 pró­sent.

Kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar er gerð í fyrsta sinn fyrir for­seta­kosn­ingar í ár. Í nýj­ustu kosn­ings­pánni fyrir for­seta­kosn­ing­arnar eru nýj­ustu kann­an­irnar vegnar:

  • Skoð­ana­könnun Gallup 8. – 15. júní (vægi 47,5%)
  • Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins 13. júní (væg: 23,4%)
  • Skoð­ana­könnun Félags­vís­ind­ast. HÍ fyrir Morg­un­blaðið 8. – 12. júní (vægi 29,1%)

Hvað er kosn­­­inga­­­spá­in?

Kosn­­­­inga­­­­spálíkan Bald­­­­urs Héð­ins­­­­sonar miðar að því að setja upp­­­­lýs­ing­­­­arnar sem skoð­ana­kann­­­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­­­inga. Kjarn­inn birti Kosn­­­­inga­­­­spá Bald­­­­urs fyrir sveit­­­­ar­­­­stjórn­­­­­­­ar­­­­kosn­­­­ing­­­­arnar og reynd­ist sú til­­­­raun vel. Á vefnum kosn­­­­inga­­­­spá.is má lesa nið­­­­ur­­­­stöður þeirrar spár og hvernig vægi kann­ana var í takt við frá­­­­vik kann­ana miðað við kosn­­­­inga­úr­slit­in.

Áreið­an­­­­leiki könn­un­­­­ar­að­ila er reikn­aður út frá sög­u­­­­legum skoð­ana­könn­unum og kosn­­­­inga­úr­slit­­­­um. Einnig hefur það vægi hversu langt er síðan könn­unin var fram­­­­kvæmd og svo hversu margir svara í könn­un­un­­­­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár