Samkeppniseftirlitið hakkar búvörusamningana í sig

Sam­keppn­is­eft­ir­litið segir að frum­varp um nýja búvöru­samn­inga þarfn­ist gagn­gerrar end­ur­skoð­unnar áður en það verður að lögum. Óbreytt muni það bæði skaða hag­muni bænda og neyt­enda.

Sigurður Ingi Jóhannsson, þáverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, skrifar undir búvörusamninana.
Sigurður Ingi Jóhanns­son, þáver­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, skrifar undir búvöru­samn­in­ana. Mynd: stjornarrad.is

Nýir búvöru­samn­ingar skaða bæði hags­muni bænda og neyt­enda, verði þeir sam­þykktir af Alþingi óbreyttir. Nauð­syn­legt sé að taka þá til gagn­gerrar end­ur­skoð­unar til að tryggja almanna­hags­muni. Verið er að taka enn stærra skref í að und­an­þyggja mjólkur­iðn­að­inn frá sam­keppn­is­lögum. Þetta er mat Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins í umsögn sem send var atvinnu­vega­nefnd Alþingis á mánu­dag og RÚV greinir frá.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, þáver­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, skrif­aði undir samn­ing­ana í vetur, en þeir hlutu ekki afgreiðslu Alþingis fyrir sum­ar­frí. Stefnt er að því að afgreiða þá í haust, fyrir kosn­ingar.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið segir í umsögn sinni að raunar virð­ist ljós að ef frum­varpið verði óbreytt að lögum muni það koma í veg fyrir eða tak­marka beit­ingu banns á mis­notkun á mark­aðs­ráð­andi stöðu gagn­vart afurða­stöðvum í mjólkur­iðn­aði. Þá virð­ast þær sér­reglur sem settar eru um mark­aðs­ráð­andi afurð­ar­stöðvar skapa keppi­nautum og neyt­endum jafn­framt minni vernd heldur en núgild­andi lög.

Þá spyr Sam­keppn­is­eft­ir­litið jafn­framt Alþingi hvort það sé reiðu­búið að sam­þykkja sér­reglur um Mjólk­ur­sam­söl­una áður en rann­sókn á fyr­ir­tæk­inu vegna hugs­an­legs brots á banni við mis­notkun á mark­aðs­ráð­andi stöðu sé lokið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Búvörusamningar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár