Greinilega eitthvað mikið að vinnumarkaðnum

Vinnu­mark­aðs­fræð­ingur segir að end­ur­skoða þurfi verk­lag í kringum kjara­samn­inga í ljósi end­ur­tek­inna verk­falla afmark­aðra hópa. For­sæt­is­ráð­herra tekur í svip­aðan streng. Lög á flug­um­ferð­ar­stjóra eru þau 15. síðan árið 1985.

Alþingi setti lög á aðgerðir flugumferðarstjóra í vikunni. Það er í fimmtánda sinn sem slíkt er gert síðan árið 1985. Vinnumarkarðsfræðingur segir að greinilegt sé að eitthvað mikið sé að vinnumarkaðnum.
Alþingi setti lög á aðgerðir flug­um­ferð­ar­stjóra í vik­unni. Það er í fimmt­ánda sinn sem slíkt er gert síðan árið 1985. Vinnu­mark­arðs­fræð­ingur segir að greini­legt sé að eitt­hvað mikið sé að vinnu­mark­aðnum. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Gylfi Dalmann Aðal­steins­son, vinnu­mark­aðs­fræð­ingur og dós­ent á félags­vís­inda­sviði Háskóla Íslands, segir greini­legt að eitt­hvað mikið sé að í skipu­lag­inu á vinnu­mark­aðnum í ljósi þess að svo virð­ist sem að ekki sé hægt að gera kjara­samn­inga hjá ákveðnum hópum. Það sé samt sem áður baga­legt að stjórn­völd kippi ítrekað úr sam­bandi þeim samn­ings­rétti launa­fólks sem sé stjórn­ar­skrár­var­inn og varði mann­rétt­inda­sátt­mál­ann.

„Það virð­ist vera í lagi hjá fjöl­mennum hópum eins og versl­un­ar­fólki og iðn­að­ar­mönnum,“ segir hann. „En svo eru afmark­aðir hópar sem hafa mikil völd í sam­fé­lag­inu þar sem verk­fall hefur víð­tæk áhrif, sem virð­ast ekki ná að semja, og þar er verið að beita verk­falls­vopn­inu.“

Nauðsynlegt að endurskoða skipulagið í heild

Gylfi segir þessa hópa, sem beita verk­falls­vopn­inu, yfir­leitt ekki vera þá launa­lægstu.

„Það þarf að skoða skipu­lagið og vinnu­lagið í kring um þetta,” segir hann. „Eins og Hicks bendir á, eru verk­föll bein afleið­ing mis­heppn­aðs kjara­samn­inga­fer­ils þar sem samn­ings­mark­mið hafa ekki verið nægi­lega skýr og oft og tíðum ákveðið ósam­ræmi á milli vænt­inga þeirra sem koma að samn­inga­borð­inu.“

[adspot]

Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra tók í svip­aðan streng á Morg­un­vakt­inni á Rás 1 í morgun. Hann sagði greini­legt að eitt­hvað þurfi að end­ur­skoða í kerf­inu í ljósi þess að þessir litlu hópar, sem geta í raun sett sam­fé­lagið á hlið­ina með verk­föllum, séu að fara fram á mun meiri launa­hækk­anir heldur en gengur og ger­ist í kjara­samn­ingum.

„Það er eitthvað að í þessu kerfi“

Gylfi bendir á í því ljósi að bæði lækna­fé­lögin hafi þurft 88 samn­inga­fndi til að ná saman.

„Það er eitt­hvað að í þessu kerfi, skipu­lagi og reglu­verki. Vinnu­lög­gjöfin frá 1938 býr til rammann um hvernig á að haga þegar deilur eru á vinnu­mark­aði hvernig eigi að leiða þær til lykta,“ segir hann og bætir við að í til­felli flug­um­ferða­stjóra þá voru þeir að koma úr löngum kjara­samn­ingi, til fimm ára, en þeir hafi dreg­ist aftur úr á þeim tíma. Sumir hópar njóti ekki launa­skriðs­ins og að vissu leyti sé því ekki gott að vera með langa samn­inga.

Lög á aðgerðir flug­um­ferð­ar­stjóra vegna kjara­deilu þeirra sem Alþingi sam­þykkti á mið­viku­dags­kvöld eru fimmt­ándu kjara­að­gerða­lögin frá árinu 1985. Samkvæmt nýju lög­unum hafa flug­um­ferð­ar­stjórar til 24. júní til að semja, en tak­ist það ekki verður skip­aður gerð­ar­dómur til að úrskurða um laun þeirra.

Fimmtán lög vegna verkfallsaðgerða síðan 1985

Lög á aðgerðir vegna kjara­deilna hafa verið nokkuð algeng síð­ustu ár. Á árunum 1985 til 2010 gripu stjórn­völd tólf sinnum inn í kjara­deilur, við lít­inn fögnuð verka­lýðs­hreyf­inga. Á sama tíma voru 166 verk­föll verið. Á árunum 2011 til 2016 hafa fimm lög verið sett á vegna kjara­deilna, með flug­virkja­lög­unum með­töldum.

Í grein Gylfa og Friðriks Frið­riks­sonar lög­fræð­ings frá árinu 2010, Lög og verk­föll á Íslandi frá 1985 til 2010, er farið yfir allar laga­setn­ingar sem stjórn­völd hafa sett á starf­stéttir vegna kjara­deilna og verk­falla á tíma­bil­inu. Gylfi vinnur nú að frek­ari við­bótum við grein­ina í ljósi aðgerða stjórn­valda und­an­farin ár vegna kjara­deilna.

Flugfreyjur 1985

Félagar í Flug­freyju­fé­lagi Íslands fóru í verk­fall þann 23. októ­ber 1985, en verkallið var bannað með lögum degi síðar. Rökin voru meðal ann­ars þau að með verk­fall­inu myndi fjöldi ferða­manna þessa stærsta flug­fé­lags lands­ins þurfa að breyta ferða­á­ætl­unum sínum.

Mjólkurfræðingar 1986

Félags­menn Mjólk­ur­fræð­inga­fé­lags Íslands fóru í verk­fall 24. mars 1986. Lög voru sett á degi síðar með þeim rökum að kröfur þeirra væru langt umfram það sem eðli­legt geti talist og auk þess fæli verk­fall þeirra í sér mikla röskun í mjólk­ur­fram­leiðslu og verð­mæta­tjóni.

Farmenn 1986

Félags­menn í Skip­stjóra­fé­lagi Íslands og Sjó­manna­fé­lagi Reykja­víkur sem störf­uðu á far­skipum fóru í verk­fall 30. apríl 1986, en það var stöðvað með bráða­birgða­lögum 9. maí 1986 og voru lögin síðar sam­þykkt. Rökin voru að verk­fallið hafi valdið veru­legri röskun á flutn­ingum til og frá land­inu og skapað erf­ið­leika í helstu útflutn­ings­greinum.

Arnarflug 1986

Félags­menn í Flug­virkja­fé­lagi Íslands, þ.e. flug­virkjar og flug­vélstjórar sem störf­uðu hjá Arn­ar­flugi hf., fóru í verk­fall 10. júlí 1986, en það var stöðvað með bráða­birgða­lögum 11. júlí 1986 sem voru síðar stað­fest. Rökin voru meðal ann­ars þau að ef vinnu­deilan haldi áfram muni hún hafa í för með sér stöðvun alls milli­landa­flugs og inn­an­lands­flugs félags­ins og „senni­lega gera verk­efni þess að píla­gríma­flugi frá Alsír til Jeddah að engu, en það á að hefj­ast 19. júlí n.k.“ er segir í athuga­semd með frum­varp­inu.

Bráðabirgðalög um aðgerðir í efnahagsmálum 1988

Með þessum lögum voru allar vinnu­stöðv­anir sem áttu að bæta kjör fólks á annan hátt en lögin gerðu ráð fyrir bann­aðar í heilt ár. Þetta var gert til að tryggja að tryggja aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar til að verja geng­is­breyt­ingu krón­unnar.

Brottfall kjarasamninga BHMR 1990

Alþingi mat það svo að koma yrði í veg fyrir víxl­verk­anir launa og verð­lags og fella úr gildi launa­hækk­un­ar­á­kvæði kjara­samn­inga milli aðild­ar­fé­laga BHMR og fjár­mála­ráð­herra frá maí 1989 og hlið­stæð ákvæði í kjara­samn­ingum aðild­ar­fé­laga BHMR við aðra við­semj­endur. Lögin voru kærð til Hæsta­réttar, sem dæmdi fjár­mála­ráð­herra til greiðslu umsamdra launa­hækk­ana.

Herjólfur 1993

Félags­menn Stýri­manna­fé­lags Íslands sem störf­uðu á Herjólfi fóru í verk­fall 3. febr­úar 1993, en það var bannað 23. mars, sjö vikum síðar. Rökin voru meðal ann­ars þau að verk­fallið hafi haft áhrif á atvinnu­ör­yggi ann­arra skip­verja og þeirra sem vinna á skip­inu. Verk­fallið hafi valdið marg­vís­legri röskun, tjóni og vöru­skorti í Vest­manna­eyjum.

Sjómenn 1994

Sjó­manna­sam­band Íslands, Farmanna- og fiski­manna­sam­bands Íslands utan Vest­fjarða, Vél­stjóra­fé­lags Íslands, Vél­stjóra­fé­lags Suð­ur­nesja og Vél­stjóra­fé­lags Vest­manna­eyja fóru í verk­fall á fiski­skipum 2. til 5. jan­úar 1994. Verk­fallið var stöðvað með bráða­birgða­lögum 14. jan­úar, sem voru sam­þykkt. Rökin voru þau að ítrek­aðar sátta­til­raunir hafi ekki borið árangur og vinnu­deilan hafi valdið víð­tæku atvinnu­leysi meðal ann­arra laun­þega. Deilan muni hafa alvar­legan skaða fyrir íslenskt atvinnu­líf og valda óbæt­an­legu tjóni.

Sjómenn 1998

Félags­menn í sam­tökum sjó­manna á fiski­skipum fóru í verk­fall 3. febr­úar 1998, en á þeim tíma voru vinnu­stöðv­anir bann­aðar. Alþingi setti lög á verk­fallið eftir tæpa tvo mán­uði.

Sjómenn 2001

Félags­menn sam­taka sjó­manna á fiski­skipum fóru í verk­fall 16. mars 2001 og sam­tök útvegs­manna settu verk­bann á sjó­menn frá sama tíma. Vinnu­stöðv­unum var frestað til 1. apríl. Lög­gjaf­inn mat það sem svo að vinnu­stöðv­unin myndi óleyst valda óbæt­an­legu tjóni fyrir atvinnu­lífið og ríkir almanna­hags­munir voru í húfi.

Grunnskólakennarar 2004

Félag grunn­skóla­kenn­ara og Skóla­stjóra­fé­lags Íslands sem störf­uðu hjá sveit­ar­fé­lögum fóru í verk­fall 20. sept­em­ber 2004, en verk­falls­að­gerðir þeirra voru bann­aðar sam­kvæmt lögum. Alþingi stöðv­aði verk­fallið 13. nóv­em­ber,

Flugvirkjar 2010

Flug­virkjar hjá Icelandair fóru í verk­fall 22. mars 2010 en vinnu­stöðv­anir voru bann­aðar. Síðustu kjara­samn­ingar flug­virkja voru fram­lengdir til 30. nóv­em­ber.

Atvinnuflugmenn 2014

Félags­menn Félags íslenskra atvinnu­flug­manna hjá Icelandair fóru í verk­fall 9. maí 2014. Lög voru sett á verk­fallið sex dögum síðar, 15. maí, með þeim rökum að það hafi áhrif á um sex hund­ruð flug til og frá land­inu og um hund­rað þús­und far­þega. Gríð­ar­legir sam­fé­lags­legir og efna­hags­legir hags­munir væru í húfi.

Sjómenn 2014

Félags­menn Sjó­manna­fé­lags Íslands sem störf­uðu á Herjólfi fóru í verk­fall 5. mars 2014, en því var frestað með lögum til og með 15. sept­em­ber 2014. Lögin voru sam­þykkt 2. apríl, þó að ekki hafi verið um algert verk­fall að ræða heldur yfir­vinnu­bann og vinnu­stöðvun um helgar. Rökin voru þau að aðgerð­irnar hafi nei­kvæð áhrif á atvinnu­starf­semi í Vest­manna­eyjum og íbúa sem reiða sig á Herjólf til að kom­ast til og frá eynni.

BHM og hjúkrunarfræðingar 2015

Hluti aðild­ar­fé­laga Banda­lags háskóla­manna fóru í verk­föll á mis­mun­andi tímum árið 2015 og hjúkr­un­ar­fræð­ingar fóru í ótíma­bundið verk­fall 27. maí. Lög voru sett á kjara­mál þess­ara hópa og verk­föll þeirra bönnuð. Rökin voru þau að tjónið sem verk­föllin höfðu valdið hafi verið mikið og við­ræður hafi reynst árang­urs­lausar. Lögin voru sam­þykkt 13. júní 2015.

Flugumferðarstjórar 2016

Alþingi var kallað saman á mið­viku­dags­kvöld 8. júní til að sam­þykkja lög inn­an­rík­is­ráð­herra á yfir­vinnu­bann flug­um­ferð­ar­stjóra. Þeir hafa frest til 24. júní til að ná samn­ingum, ellegar verður skip­aður gerð­ar­dómur sem ákveður laun þeirra. Rökin voru fyrst og fremst nei­kvæð áhrif aðgerð­anna á ferða­þjón­ust­una á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár