Sigurður Ingi ætlar ekki að bjóða sig fram gegn Sigmundi Davíð

Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra.
Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sigurður Ingi Jóhanns­son, vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra, ætlar ekki að bjóða sig fram gegn Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, for­manni flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, ef sá síð­ar­nefndi ákveður að bjóða sig aftur fram til for­manns. Þetta sagði Sigurður Ingi í útvarps­þætt­inum Sprengisandi í morgun.

Sigurður Ingi sagði þar að það væri ekk­ert laun­ung­ar­mál að ýmsar raddir væru uppi innan flokks­ins um hvað skyldi gera varð­andi flokks­for­yst­una, en Sig­mundur Davíð sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra í kjöl­far þess að opin­berað var að hann hefði átt aflands­fé­lagið Wintris, skráð á Bresku Jóm­frú­areyj­unum, með eig­in­konu sinni. Félagið, sem yfir millj­arð króna í eignum, lýsti kröfum í slitabú föllnu bank­anna. Það er í dag skráð ein­ungis í eigu eig­in­konu Sig­mundar Davíðs.

Eig­in­kona Sig­mundar Davíðs sagði frá til­vist Wintris á Facebook í mars. Nokkrum dögum áður, þann 11. mars, hafði þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra verið spurður út í félagið í frægu við­tali við sænskan sjón­varps­mann. Það við­tal var síðan sýnt í sér­stökum Kast­ljós­þætti 3. apríl sem fjall­aði um aflands­fé­laga­eign kjör­inna full­trúa á Íslandi. Sigurður Ingi sagði í Sprengisandi að það hefði verið betra ef Sig­mundur Davíð hefði stigið strax fram og skýrt málið. Hann hefði getað upp­lýst flokk­inn og þjóð­ina alla.

For­sæt­is­ráð­herr­ann sagði það væri alveg öruggt að kosið yrði í haust. Það væri ekki hægt að hætta við kosn­ingar við þær aðstæður sem uppi væru. Þá dragi eng­inn fram­sókn­ar­maður það í efa að mik­il­vægt væri að halda flokks­þing fyrir kosn­ingar í haust og kjósa for­ystu flokks­ins. Sigurður Ingi sagð­ist styðja Sigmund Davíð til áfram­hald­andi for­mennsku og að hann myndi ekki bjóða sig fram gegn honum ef Sig­mundur Davíð ákveður að bjóða sig aftur fram.

Sig­mundur Davíð flutti yfir­lits­ræðu á mið­stjórn­ar­fundi Fram­sókn­ar­manna í gær. Þar ræddi hann Wintris-við­talið og sagði m.a. að hann hefði verið leiddur í gildru af fjöl­miðla­mönnum og að um óþokka­bragð hefði verið að ræða sem snérist um að koma höggi á hann og Fram­sókn­ar­flokk­inn. Sig­mundur Davíð sagði einnig í ræðu sinn að í ótal skipti hafi verið reynt að ráða hann af dög­um, ekki í eig­in­­legri merk­ingu, heldur með mann­orðs­morði. Það sé eins og að það séu gefin út heilu dag­blöðin bara til að klekkja á Fram­­sókn­­ar­­flokkn­­um.

Þeir sem stóðu að við­tal­inu sendi frá sér yfir­lýs­ingu vegna ásak­ana Sig­mundar Davíðs í gær. Þar sagði m.a. að blaða­full­trúi for­sæt­is­ráð­herra hafi hringt í Nils Han­son, aðal­rit­stjóra frétta­skýr­inga­þátt­ar­ins Upp­drag Granskning sem sýndur er í sænska rík­is­sjón­varp­inu, strax eftir að Sven Berg­man, frétta­maður þátt­ar­ins, hafði tekið við­talið við Sig­mund Davíð þann 11. mars og kraf­ist þess að hluta við­tals­ins yrði eytt. Sá hluti sem blaða­full­trú­inn vildi að yrði eytt snéri að spurn­ingum og svörum um Wintris. Undir yfir­lýs­ing­una skrif­uðu starfs­menn Reykja­vik Media, Kast­ljós­s, Upp­drag Granskning og alþjóð­legu blaða­manna­sam­tak­anna ICIJ. Í yfir­lýs­ing­unni voru einnig birtir fjöl­margir tölvu­póstar sem sýndu að Sig­mundi Davíð var, í gegnum Jóhannes Þór Skúla­son aðstoð­ar­mann sinn, margoft boðið að koma í annað við­tal til að skýra mál­efni Wintr­is. Hann hafn­aði því hins vegar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.
FréttirPanamaskjölin

Fengu fjöl­skyldu­mál­verk í hend­urnar eftir umfjöllun Stund­ar­innar

Skoskar mæðgur sem komu til Íslands í byrjun árs í leit að svörum við spurn­ingum sem leitað hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakk­látar Íslend­ingi sem sendi þeim mál­verk sem var í eigu ömmu þeirra og langömmu á Íslandi. Gunnar Eggert Guð­munds­son taldi rétt­ast að fjöl­skyldan fengi mál­verkið þar sem þau fengu lítið sem ekk­ert úr búi Áslaugar.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár