Samherjamálið: „Þetta er sorglegt“

Einn helsti sér­fræð­ingur Sví­þjóðar í pen­inga­þvætti, Louise Brown, segir að mis­notk­unin á DNB-bank­anum í Sam­herj­a­mál­inu sé alvar­leg og sorg­leg. Hún segir að DNB hefði átt að bregð­ast við miklu fyrr gegn skatta­skjóls­fé­lag­inu Cape Cod FS sem Samherji not­aði til að greiða út laun sjó­manna sinna í Namibíu.

Samherjamálið: „Þetta er sorglegt“
„Mögulega glæp­sam­legt“ Louise Brown segir að það sé hryggi­legt að DNB bank­inn hafi ekki brugð­ist við fyrr og leyft Samherja að flytja pen­inga sem til urðu með „mögu­lega glæp­sam­legum“ hætti í gegnum bank­ann. Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja í leyfi, sést hér í Hafn­ar­fjarð­ar­höfn með þremur af Namib­íu­mönn­unum sem tóku við mút­unum í Sam­herj­a­mál­inu auk tveggja Angóla­manna sem tengd­ust þáver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra lands­ins.

„Það er sér­stakt að þetta [við­skipta­sam­bandið í gegnum Cape Cod FS] hafi getað haldið áfram svo lengi þrátt fyrir aukna áhættu af því. Ólögleg við­skipti með kvóta í gegnum spill­ingu hafa áhrif á stöðu fiski­stofn­anna í land­inu sem og mögu­leik­ann til efna­hags­legrarar fram­þró­unar. […] Þetta er sorg­legt,“ segir einn þekkt­asti sér­fræð­ingur Sví­þjóðar í pen­inga­þvætti, Louise Brown, í við­tali við norska við­skipta­blaðið Dagens Nær­ingsliv í dag aðspurð um Sam­herj­a­málið í Namibíu sem fjallað hefur verið um í Stund­inni, Kveik, Al Jazeera og norska rík­is­út­varp­inu á grund­velli gagna frá Wikileaks. 

Louise Brown, sem er end­ur­skoð­andi að mennt,  hefur meðal ann­ars unnið náið með starfs­mönnum sænska frétta­skýr­ing­ar­þátt­ar­ins Uppdrag Granskning að fréttaum­fjöll­unum um pen­inga­þvætti í Svíþjóð, meðal ann­ars í sænska bank­anum SEB sem sagt var frá í vik­unni. 

„Það virð­ist vera sem bank­arnir á Norð­ur­lönd­unum séu of barna­legir“ 

„Mögulega glæpsamlegt“ 

Eins og komið hefur fram not­aði Samherji banka­reikn­inga í DNB bank­anum í Noregi, banka sem er að 1/3 leyti í eigu norska rík­is­ins, til að flytja millj­arða króna í félagið Cape Cod FS í skatta­skjól­inu Marshall-eyjum á árunum 2011 til 2018 auk þess sem félagið greiddi mútur til spilltra namibískra emb­ætt­is­manna inn á banka­reikn­inga í Dubaí og Namibíu í gegnum DNB. 

Skatt­skjóls­fé­lag­inu á Marshall-eyjum var slitið í byrjun þessa mán­aðar, eftir að Kveikur og Al Jazeera höfðu ítrekað krafið Samherja svara um mútu­málið í Namibíu fyrir hönd þeirra fjöl­miðla sem unnu umfjall­anir um málið. 

Louise Brown segir að almennt séð séu bankar á Norð­ur­lönd­unum of blá­eygir þegar kemur að því að vinna gegn pen­inga­þvætti. „Í DNB er vanda­málið einnig það að traustir bankar með gott orð­spor, og sem stað­settir eru í mörk­uðum sem eru með þeim opn­ustu í heimi, eru not­aðir til að gera eitt­hvað sem mögu­lega er glæp­sam­legt. Fáir halda sjálf­sagt að þetta geti gerst í þessum heims­hluta og þess vegna er gott að fela slíkar gjörðir í þessum bönkum […] Það virð­ist vera sem bank­arnir á Norð­ur­lönd­unum séu of barna­legir í vinnu sinni við  að sporna gegn pen­inga­þvætti og það eiga sér ekki stað nægi­lega miklar rann­sóknir innan þeirra og eft­ir­lits­kerfin innan bank­anna eru ekki nægi­lega góð,“ segir Brown í við­tal­inu við Dagens Nær­ingsliv.

Alvar­legt málLouise Brown, sér­fræð­ingur í pen­inga­þvætti sem var stjórn­ar­maður í Transparency International í Svíþjóð þar til í fyrra, segir að mis­notk­unin á DNB-bank­anum sé alvar­leg.

Horfði í gegnum fingur sér

Eitt af því sem Louise Brown bendir á að sér alvar­legt er að DNB bank­inn hafi valið að horfa í gegnum fingur sér gagn­vart Cape Cod FS þrátt fyrir að bank­inn hafi lengi vitað að félagið væri vara­samt sökum þess að eig­enda­upp­lýs­ingar um það skorti.

Líkt og greint hefur verið frá gerði bank­inn athugun á því hver væri eig­andi Cape Cod FS sum­arið 2017, fékk enga skýra nið­ur­stöðu, en ákvað samt að gera ekk­ert í við­skipta­sam­band­inu þrátt fyrir að eign­ar­haldið væri óþekkt. „Það er alvar­legt sökum þess að í gögn­unum sjáum við dæmi­gerð „rauð flögg“ með óvana­lega aug­ljósa teng­ingu við pen­inga sem byggja á spilltum við­skiptum en bank­inn valdi samt að gera ekki neitt,“ segir hún í við­tal­inu.  

Eins og Stundin greindi frá í gær vill upp­lýs­inga­full­trúi DNB, Even Westerveld, ekki svara því af hverju bank­inn gerði ekki neitt í við­skipta­sam­bandi sínu við Cape Cod FS um sum­arið 2017 jafn­vel þó nið­ur­staða bank­ans væri sú að hann vissi ekki hver ætti félagið. 

Í grein Dagens Nær­ingsliv er haft eftir Even Westerveld að DNB bank­inn hafi lagt mikið á sig á síð­ustu árum til að bæta eft­ir­lits­kerfi sitt í bar­átt­unni við pen­inga­þvætti en að aldrei sé hægt að úti­loka alla mis­notkun á bank­anum. „Á síð­ustu árum höfum við fjár­fest mikið í því að gera það erf­ið­ara að mis­nota þjón­ustu bank­ans til að fremja efna­hags­brot. Vid höfum komið í veg fyrir alls konar svik upp á hund­ruð millj­óna norskra króna og við höfum til­kynnt um þús­undir grun­sam­legra milli­færslna til lög­regl­unnar,“ segir Westerveld. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár