Hækkanir á áfengisgjöldum valda aukningu í VSK-veltu

Virð­is­auka­skattsvelta (VSK) vegna veit­inga­húsa og gisti­staða hefur stór­auk­ist á milli ára, sé horft til jan­úar og febr­úar. Aukn­ingin nemur 28 pró­sentum, en í fyrra var hún 14,1 millj­arður en á þessu ári 18,1 millj­arður. Skýr­ing­una er að finna í því að vöru­gjöld á áfengi hafa hækkað.

Um ára­mótin tóku í gildi breyt­ingar á vöru­gjöldum, m.a. hækk­aði vöru­gjald á áfengi um leið og áfengi var fært úr efra þrepi virð­is­auka­skatts í neðra.

Virð­is­auka­skattur leggst ofan á vöru­gjald og því veldur hækkun vöru­gjalds hækkun á virð­is­auka­skatts­skyldri veltu. Hækkanir á vöru­gjaldi á áfengi valda því veltu­aukn­ingu í liðum sem Hagstofa Íslands skil­greinir sem „Heild- og smá­sölu­verslun“ og „Rekstur gisti­staða og veit­inga­rekstur“.

Sé horft til sam­an­burðar á tólf mán­aða tíma­bili, frá mars 2014 til febr­úar í fyrra, og síðan frá mars í fyrra til febr­úar á þessu ári, þá nemur aukn­ingin um 20 pró­sentum. Heildar VSK-velta veit­inga­húsa og gisti­staða nam 115 millj­örðum milli áranna 2014 til 2015, en 138 millj­örðum milli áranna 2015 og 2016.

Velta í virð­is­auka­skatt­skyldri starf­semi í jan­úar og febr­úar 2016 nam 551 millj­örðum króna, sem er 5 pró­sent aukn­ing miðað við sama tíma­bil árið 2015, sam­kvæmt tölum Hagstofu Íslands. Á síð­ustu tólf mán­uðum er aukn­ingin níu pró­sent sam­an­borið við tólf mán­uði þar áður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár