Wintris skilaði ekki CFC-framtali

Aflands­fé­lag sem var í eigu Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, og er í eigu eig­in­konu hans, skil­aði ekki svoköll­uðu CFC-fram­tali líkt og aflands­fé­lög eiga að gera. Átta vikur eru síðan að Kjarninn spurði fyrst um CFC-skil félags­ins.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og Anna Sig­ur­laug Páls­dóttir, eig­in­kona hans, töldu aflands­fé­lagið Wintris, sem skráð er á Bresku Jóm­frú­areyj­unum, ekki fram í sam­ræmi við CFC-lög­gjöf­ina. Í blogg­færslu sem Sig­mundur Davíð birti í dag kemur fram að við fram­tals­gerð þeirra hjóna hafi „verið horft í gegnum félagið eins og það hafi aldrei verið til og eignir þess skráðar sem bein eign Önnu frá því ári áður en svo kall­aðar CFC-reglur tóku gildi. Sú var­færna leið að greiða skatta af öllum eignum, hverri fyrir sig, í stað þess að nýta félagið og líta á það sem fyr­ir­tæki í atvinnu­rekstri (og skila CFC-fram­tali) hefur skilað sér í hærri skatt­greiðslum til rík­is­ins en ef stuðst hefði verið við atvinnu­rekstrar-/CFC-leið­ina.“

Í færslu Sig­mundar Davíðs segir einnig að skatta­yf­ir­völd hafi aldrei gert athuga­semdir við með hvaða hætti talið var fram. Kjarninn hefur ítrekað beint fyr­ir­spurnum til Sig­mundar Davíðs um hvort Wintris hafi staðið að skatt­skilum í sam­ræmi við CFC-reglur. Fyrsta fyr­ir­spurn þess efnis var send 21. mars, eða fyrir rúmum átta vikum síðan. Þrátt fyrir fjöl­margar ítrek­anir hafa ekki feng­ist svör við því hvort að skatt­skil hafi verið í sam­ræmi við þá lög­gjöf fyrr en nú, þegar fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra stað­festir í blogg­færslu að skatt­skil hafi ekki verið í sam­ræmi við CFC-reglur.

CFC tekur ekki bara til rekstrarfélaga

CFC lög­gjöfin tók gildi í byrjun árs 2010. CFC stendur fyrir Controlled For­eign Cor­poration, erlend fyr­ir­tæki, félög eða sjóði í lág­skatta­ríkjum í eigu, eða undir stjórn íslensks eig­anda, hvort sem sá eig­andi er félag eða ein­stak­ling­ur. Lögin kveða meðal ann­ars á um að greiða skuli tekju­skatt hér á landi af hagn­aði félags sem íslenskur skatt­að­ili á en er í lág­skatta­rík­i. Íslend­ingar sem eiga félög á lág­skatta­­svæðum eiga að skila sér­­­stöku fram­tali með skatt­fram­tal­inu sínu vegna þessa, skýrslu ásamt grein­­ar­­gerð þar sem meðal ann­­ars eru sund­­ur­lið­aðar tekj­­ur, skatta­­legar leið­rétt­ing­­ar, arðsút­­hlutun og útreikn­ingur á hlut­­deild í hagn­aði eða tapi á grund­velli árs­­reikn­inga, sem eiga að fylgja. Ef það er ekki gert brýtur það í bága við lög um tekju­skatt.

Í kjöl­far þess að til­vist aflands­fé­lags­ins Wintris varð opin­ber leit­uðu fjöl­miðlar eftir svörum við því hvort Sig­mundur Davíð og eig­in­kona hans, Anna Sig­ur­laug Páls­dótt­ir, hafi talið fram félagið Wintris í sam­ræmi við CFC regl­urn­ar. Í Kast­ljós­þætti sem sýndur 3. apríl var greint frá því að Sig­mundur Davíð hefði selt sinn hlut í Wintris 31. des­em­ber 2009, dag­inn áður en CFC-lög­gjöfin tók gildi.

Kjarn­inn hefur ítrekað leitað svara við þessu frá því skömmu eftir að Anna Sig­ur­laug greindi frá til­vist fyr­ir­tæk­is­ins, en fyr­ir­spurnum hefur ekki verið svar­að. Fyrsta fyr­ir­spurn Kjarnans um málið var send til aðstoð­ar­manns Sig­mundar Davíðs 21. mars, fyrir rúmum átta vikum síðan. Fleiri fjöl­miðlar hafa einnig spurst fyrir um mál­ið. Í við­tali við Morg­un­blaðið í apríl sagði Sig­mundur Davíð að CFC lög­gjöfin taki bara til rekstr­ar­fé­laga. Félagið Wintris hafi hins vegar ekki verið rekstr­ar­fé­lag.

Þetta er ekki rétt sam­kvæmt upp­lýs­ing­unum sem fram koma um CFC félög á vef rík­is­skatt­stjóra. Þar kemur fram að það eigi að skila CFC eyðu­blaði ef:

  • Félag­ið, sjóð­ur­inn eða stofn­unin er stað­sett í lág­skatta­ríki. Þau ríki telj­ast lág­skatta­ríki ef sá tekju­skattur sem lagður er á lög­að­il­ann ytra er lægri en tveir þriðju hlutar af þeim tekju­skatti sem hefði verið lagður á lög­að­il­ann hefði hann verið heim­il­is­fastur á Íslandi og
  • Íslenskir skatt­að­il­ar, einn eða fleiri sam­an, eiga beint eða óbeint minnst helm­ing í CFC-­fé­lag­inu eða stjórn­un­ar­leg yfir­ráð þeirra hafa verið til staðar innan tekju­árs. Ekki er litið til eign­ar­halds hvers ein­staks eig­anda við ákvörðun þess hvort skil­yrði telst upp­fyllt, heldur sam­eig­in­legs eign­ar­halds eða stjórn­un­ar­legra yfir­ráða allra íslenskra skatt­að­ila í hinu erlenda félagi.

Í grein­ar­gerð sem fylgdi frum­varp­inu sem inn­leiddi CFC-regl­urnar í íslensk lög er einnig gerð skýr grein fyrir hvers konar félög falli undir regl­urnar. Þar segir: „Félög, sjóðir og stofn­anir sem hafa aðal­lega tekjur af eignum svo sem arð, vexti og sölu­hagnað, þ.e. óvirkar tekjur (e. passive income), þ.m.t. tekjur af óefn­is­legum eignum, svo sem rétt­indum hvers konar og sæta skatt­lagn­ingu undir þeim mörkum sem sett eru í grein­inni, falla undir ákvæði hennar."

Kjarninn leit­aði um miðjan apríl eftir upp­lýs­ingum hjá emb­ætti rík­is­skatt­stjóra um hversu margir aðilar hefðu skilað CFC-fram­tali síðan að lögin tóku gildi. Í svari Skúla Eggerts Þórð­ar­sonar rík­is­skatt­stjóra kom fram að hann hefði ekki upp­lýs­ingar um það.

Skúli Eggert sagði að CFC-­eyðu­blaðið sé fyrst og fremst verk­færi til að leiða fram ákveðnar upp­lýs­ing­ar, það er „skatt­stofna þar sem félag á lág­skatta­svæði er skatt­lagt hjá eig­and­anum eins og ekk­ert félag væri fyrir hendi. Skatt­lagn­ing verður þá hin sama og ein­stak­lingur í atvinnu­rekstri með þeim reglum sem um slíka skatt­lagn­ingu gilda.“

Indriði segir ummælin jafnvel tilraun til blekkingar

Engin önnur skil­yrði eru til­tek­in. Skúli Egg­ert Þórð­ar­son rík­is­skatt­stjóri hefur ekki viljað tjá sig um ein­staka ummæli, en for­veri hans, Ind­riði H. Þor­láks­son, hefur sagt að ummæli eins og Sig­mundar Dav­íðs, um að lög­gjöfin taki ein­ungis til rekstr­ar­fé­laga, séu jafn­vel til­raun til blekk­ing­ar.

„Eign­­ar­halds­­­fé­lag eða hvað annað félag sem starfar í þeim til­­­gangi að sýsla með eignir og afla tekna fyrir eig­anda sinn er með atvinn­u­­starf­­sem­i skv. þeim lögum sem hér skipta máli, þ.e. tekju­skatts­lag­anna. Hvort sem ­tekj­­urnar eru afrakstur af sölu á vöru eða þjón­ustu, þókn­an­ir, arð­­ur, tekjur af ­eigna­­sölu, þ.m.t. fast­­eignum eða vextir af banka­inn­i­­stæð­um, skulda­bréf­um o.s.fr. eru það skatt­­skyldar tekjur af atvinn­u­­rekstri í skiln­ingi þeirra laga. Það skipt­ir og engu hvort félagið hefur starfs­­menn á sínum snærum eða kaupi þjón­­ustu af öðr­um,“ skrif­aði hann í grein í Kjarn­anum í apríl.

Einnig kemur fram á vef rík­is­skatt­stjóra að CFC félög eiga að hafa íslenska kenni­tölu til þess að skila til­skildum gögnum til rík­is­skatt­stjóra. „Án íslenskrar kenni­tölu er ekki hægt að skila til­skildum gögnum til rík­is­skatt­stjóra.“ Félagið Wintris er ekki með íslenska kenni­tölu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.
FréttirPanamaskjölin

Fengu fjöl­skyldu­mál­verk í hend­urnar eftir umfjöllun Stund­ar­innar

Skoskar mæðgur sem komu til Íslands í byrjun árs í leit að svörum við spurn­ingum sem leitað hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakk­látar Íslend­ingi sem sendi þeim mál­verk sem var í eigu ömmu þeirra og langömmu á Íslandi. Gunnar Eggert Guð­munds­son taldi rétt­ast að fjöl­skyldan fengi mál­verkið þar sem þau fengu lítið sem ekk­ert úr búi Áslaugar.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár